Hæstiréttur íslands
Mál nr. 13/2025
Lykilorð
- Kærumál
- Vanreifun
- Lögvarðir hagsmunir
- Frávísunardómur staðfestur
Reifun
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 5. mars 2025 en kærumálsgögn bárust réttinum 6. sama mánaðar. Kærður er dómur Landsréttar 20. febrúar sama ár í máli nr. 50/2024 þar sem málinu var vísað frá héraðsdómi. Kæruheimild er í a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
3. Sóknaraðilar krefjast þess að hinn kærði dómur verði felldur úr gildi og málinu vísað til efnismeðferðar fyrir Landsrétti. Þá krefjast þeir kærumálskostnaðar.
4. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði dómur verði staðfestur og sóknaraðilum gert að greiða honum kærumálskostnað.
5. Fyrir Hæstarétti hafa sóknaraðilar lagt fram ný gögn svo sem hluta af skattframtölum, gögn um greiðslur frá tveimur sláturhúsum og vigtarskýrslur vegna slátraðra nautgripa. Þessi gögn breyta engu fyrir niðurstöðu málsins.
6. Með vísan til forsendna hins kærða dóms verður hann staðfestur.
7. Sóknaraðilum verður gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Hinn kærði dómur er staðfestur.
Sóknaraðilar, Kjartan Gústafsson og Arnar Gústafsson, greiði óskipt varnaraðila, íslenska ríkinu, 300.000 krónur í kærumálskostnað.