Hæstiréttur íslands
Mál nr. 5/2026
Lykilorð
- Kærumál
- Kæruheimild
- Frávísun frá Hæstarétti
Reifun
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Skúli Magnússon.
2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. febrúar 2026 sem barst réttinum 4. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 21. janúar sama ár þar sem staðfestur var úrskurður héraðsdóms 20. nóvember 2025 um að vísa kröfu sóknaraðila frá dómi. Um kæruheimild vísar sóknaraðili til a-liðar 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
3. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
4. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.
Niðurstaða
5. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 sæta kæru til Hæstaréttar úrskurðir Landsréttar ef þar hefur verið mælt fyrir um frávísun frá héraðsdómi eða Landsrétti eða niðurfellingu máls að hluta eða að öllu leyti fyrir héraðsdómi eða Landsrétti ef ekki er um að ræða staðfestingu á slíkri dómsathöfn héraðsdóms. Ákvæðinu var breytt í núverandi horf með 9. gr. laga nr. 76/2019 að gengnum dómi Hæstaréttar 5. júní 2018 í máli nr. 8/2018.
6. Samkvæmt framangreindu geta úrskurðir Landsréttar ekki sætt kæru til Hæstaréttar án kæruleyfis ef með þeim hefur verið staðfest frávísun frá héraðsdómi svo sem hér er raunin.
7. Í málinu hefur sóknaraðili ekki sótt um kæruleyfi til Hæstaréttar á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Brestur heimild til að kæra úrskurð Landsréttar og verður málinu því sjálfkrafa vísað frá Hæstarétti.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Sóknaraðili, Abíll ehf., greiði varnaraðila, Orkusölunni ehf., 300.000 krónur í kærumálskostnað.