Hæstiréttur íslands

Mál nr. 64/2025

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (Karl Ó. Karlsson lögmaður)
gegn
Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair ehf. (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Félagsdómur
  • Kjarasamningur
  • Sakarefni
  • Frávísun frá Félagsdómi
  • Frávísunarúrskurður staðfestur

Reifun

Staðfestur var úrskurður Félagsdóms þar sem máli F gegn S var vísað frá dómi.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. desember 2025 sem barst réttinum 22. sama mánaðar. Kærumálsgögn bárust 29. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Félagsdóms 10. desember 2025 þar sem máli sóknaraðila á hendur varnaraðila var vísað frá dómi. Kæruheimild er í 1. tölulið 67. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.

3. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir Félagsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

4. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.

5. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur þar sem ákvæði það sem kröfur kæranda eru reistar á getur ekki talist hluti kjarasamnings og sakarefni málsins fellur því utan valdsviðs Félagsdóms, sbr. 2. tölulið 1. mgr. 44. gr. laga nr. 80/1938. Með því er engin afstaða tekin til þess hvort í þeim skjölum sem lögð hafa verið fyrir í málinu kunni allt að einu að felast skuldbindingar annars eðlis.

6. Sóknaraðila verður gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðili, Félag íslenskra atvinnuflugmanna, greiði varnaraðila, Samtökum atvinnulífsins, 500.000 krónur í kærumálskostnað.