Hæstiréttur íslands
Mál nr. 15/2026
Lykilorð
- Kærumál
- Kærumálsgögn
- Frestur
- Frávísun frá Landsrétti staðfest
Reifun
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.
2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. mars 2026 sem barst réttinum 9. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 12. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 20. febrúar sama ár þar sem máli sóknaraðila á hendur varnaraðila var vísað frá Landsrétti. Kæruheimild er í a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
3. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnislegrar meðferðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
4. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.
5. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
6. Sóknaraðila verður gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sóknaraðili, A, greiði varnaraðila B, 300.000 krónur í kærumálskostnað fyrir Hæstarétti.