Hæstiréttur íslands
Mál nr. 61/2025
Lykilorð
- Kærumál
- Dánarbú
- Frávísun frá Landsrétti staðfest
- Aðfinnslur
Reifun
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. desember 2025 sem barst réttinum 16. sama mánaðar. Kærumálsgögn bárust 23. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 28. nóvember 2025 þar sem einni af kröfum sóknaraðila á hendur varnaraðilum var vísað frá Landsrétti. Krafan laut að því að viðurkennd yrði nánar tiltekin skaðabótaskylda varnaraðila og Landsréttur tæki afstöðu til ákveðinna refsiviðurlaga. Kæruheimild er í a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 133. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl.
3. Málatilbúnaður sóknaraðila verður með hliðsjón af þeirri kæruheimild sem hann byggist á skilinn svo að hún krefjist þess að frávísun á nefndri kröfu verði hnekkt og lagt fyrir Landsrétt að taka hana til úrlausnar. Þá krefst hún þess að varnaraðilum verði gert að greiða „allan málskostnað í málinu og í tengslum við það auk réttarfarssekta samkvæmt XXII. kafla laga nr. 91/1991“.
4. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar fyrir Hæstarétti.
5. Hinn [...] 2021 andaðist D, eiginmaður sóknaraðila, en þau höfðu verið í hjúskap í 27 ár. Að kröfu varnaraðila, sona D úr fyrri hjúskap, var dánarbú hans tekið til opinberra skipta 20. júlí 2022. Með bréfi skiptastjóra búsins 28. október 2024 var á grundvelli 1. mgr. 122. gr. laga nr. 20/1991 vísað til úrlausnar héraðsdóms tilteknum ágreiningsefnum og var leyst úr þeim í héraði og fyrir Landsrétti. Sú krafa sóknaraðila sem er tilefni kæru hennar var ekki meðal þeirra krafna sem skiptastjóri vísaði til úrlausnar héraðsdóms. Samhliða því að kæra til Hæstaréttar frávísun á fyrrgreindri kröfu hefur sóknaraðili óskað eftir leyfi réttarins til að kæra til hans önnur atriði sem voru til úrlausnar í hinum kærða úrskurði. Þeirri beiðni hefur rétturinn hafnað með ákvörðun fyrr í dag nr. 2025-181.
6. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest sú niðurstaða hans að vísa fyrrgreindri kröfu frá Landsrétti.
7. Það athugast að sóknaraðili hefur í greinargerð og með nokkrum afar óljósum erindum til Hæstaréttar haft uppi ýmsar aðrar kröfur fyrir réttinum sem koma ekki til álita við úrlausn þessa kærumáls og því óþarft að reifa. Þessi málatilbúnaður sóknaraðila er aðfinnsluverður.
8. Sóknaraðila verður gert að greiða varnaraðilum kærumálskostnað eins og greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Staðfest er niðurstaða hins kærðar úrskurðar um að vísa frá Landsrétti dómkröfu sóknaraðila, A, um viðurkenningu á tiltekinni skaðabótaskyldu og um að Landsréttur taki afstöðu til ákveðinna refsiviðurlaga.
Sóknaraðili greiði varnaraðilum, B og C, hvorum um sig, 150.000 krónur í kærumálskostnað fyrir Hæstarétti.