Hæstiréttur íslands

Mál nr. 1/2026

Höfði ehf., fatalitun/þvottahús (Leifur Runólfsson lögmaður)
gegn
Ikaupum ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Björgvini Yngvasyni (enginn)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Kæruheimild
  • Málskostnaður
  • Frávísun frá Landsrétti staðfest

Reifun

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli var vísað frá réttinum en H hafði kært til réttarins þann hluta úrskurðar héraðsdóms um frávísun sem laut að málskostnaði. Í forsendum úrskurðar Landsréttar kom fram að ekki væri heimild til að kæra ákvæði um málskostnað eftir að aðalmeðferð máls væri hafin. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu hins kærða úrskurðar og taldi heimild bresta til þess að kæra ákvæði úrskurðar héraðsdóms um málskostnað eitt og sér til Landsréttar.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Skúli Magnússon.

2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. janúar 2026 sem barst réttinum 5. sama mánaðar. Kærumálsgögn bárust réttinum 7. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 18. desember 2025 þar sem máli var vísað frá réttinum. Kæruheimild er í a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

3. Sóknaraðili krefst þess að úrskurður Landsréttar verði felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka kröfuna til efnismeðferðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

4. Varnaraðili Ikaup ehf. krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.

5. Varnaraðili Björgvin Yngvason hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

6. Varnaraðili Ikaup ehf. höfðaði mál á hendur sóknaraðila 10. febrúar 2025 og krafðist ógildingar á tilteknum ákvörðunum hluthafafundar sóknaraðila sem og staðfestingar á lögbannsgerð. Sóknaraðili krafðist aðallega frávísunar í héraði en til vara sýknu af kröfunum.

7. Með meðalgöngustefnu krafðist varnaraðili Björgvin Yngvason að sér yrði heimiluð meðalganga í málinu og fallist yrði á kröfur varnaraðila Ikaupa ehf. Var það mál sameinað hinu fyrra máli án þess að afstaða hefði verið tekin til skilyrða fyrir meðalgöngu.

8. Samkvæmt þingbók gáfu við aðalmeðferð skýrslu aðilar og vitni og fór fram munnlegur málflutningur samkvæmt 3. mgr. 103. gr. laga nr. 91/1991. Að loknum málflutningi var bókað að varnaraðili Ikaup ehf., stefnandi málsins í héraði, gerði „ekki sérstakar athugasemdir við það að málinu verði vísað frá dómi“. Enn fremur var bókað eftir honum að hann teldi „eðlilegt í ljósi atvika allra að málskostnaður verði felldur niður“. Aðalmeðferð lauk með þeim hætti að bókað var um að málið væri tekið til dóms eða úrskurðar.

9. Með úrskurði héraðsdóms var fallist á meðalgöngu en málinu jafnframt vísað frá dómi og málskostnaður felldur niður.

10. Sóknaraðili kærði til Landsréttar þann hluta úrskurðarins sem laut að málskostnaði. Um kæruheimild vísaði hann til g-liðar 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991.

11. Með hinum kærða úrskurði var málinu vísað frá Landsrétti án kröfu. Í forsendum úrskurðarins kom fram að aðalmeðferð máls í héraði hefði þegar farið fram og að í stafliðum a til f í 2. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 væri með tæmandi hætti mælt fyrir um það hvenær unnt væri að kæra úrskurð til Landsréttar eftir að aðalmeðferð máls væri hafin. Ekki væri þar að finna heimild til að kæra ákvæði um málskostnað.

12. Í hinum kærða úrskurði var réttilega lagt til grundvallar að kæra til réttarins eftir að aðalmeðferð máls er hafin yrði eingöngu reist á heimild í 2. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991. Sóknaraðili freistaði þess ekki að kæra í heild sinni úrskurð héraðsdóms um frávísun til Landsréttar eftir heimild í c-lið þeirrar málsgreinar með kröfu um staðfestingu hans um frávísun en breytingu málskostnaðarákvæðis. Þess í stað krafðist hann aðeins endurskoðunar á niðurstöðu úrskurðarins um málskostnað. Fallast verður á með Landsrétti að heimild bresti til að það ákvæði úrskurðar héraðsdóms verði eitt og sér kært til réttarins, sbr. meðal annars til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 9. febrúar 2001 í máli nr. 26/2001. Hinn kærði úrskurður verður því staðfestur.

13. Sóknaraðila verður gert að greiða varnaraðila Ikaupum ehf. kærumálskostnað fyrir Hæstarétti eins og greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðili, Höfði ehf. fatalitun/þvottahús, greiði varnaraðila, Ikaupum ehf., 350.000 krónur í kærumálskostnað fyrir Hæstarétti.