Hæstiréttur íslands
Mál nr. 346/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 3. júlí 2006. |
|
Nr. 346/2006. |
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Hjördís Hákonardóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. júní 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. júní 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 4. júlí 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Rökstuddur grunur er um að kærði hafi átt aðild að skotárás á [B-hús] 21. júní síðastliðinn. Vopn það sem notað var er ófundið og rannsókn málsins er ólokið. Um alvarlegt atvik er að ræða og ljóst að háttsemi kærða getur varðað fangelsisrefsingu ef sök sannast. Úrskurður héraðsdóms verður staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 28. júní 2006.
Lögreglustjórinn í Hafnarfirði hefur krafist þess með beiðni dagsettri í dag að X, [kt. og heimilisfang] verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 4. júlí nk. kl. 16:00.
Vísað er til úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R113/2006 en þar voru málavextir þeir að lögreglunni í Hafnarfirði var tilkynnt um að tveir skothvellir hefðu heyrst í hverfinu við A að morgni 21. júní sl. Vitni sögðu að eftir að skothvellirnir höfðu heyrst hefði bifreið verið ekið hratt af staðnum og stuttu síðar hafi þrír menn og tveir hundar komið út úr húsinu B. Hafi þeir skoðað verksummerki í flýti og að því búnu farið upp í svarta [...] bifreið og ekið af stað á miklum hraða. Einn mannanna hafi verið vopnaður felgulykli. Lögreglan reyndi að ná samband við húsráðanda, C og tókst að ná tali af honum kl. 09:28. Hann leyfði húsleit heima hjá sér en hefur ekki viljað tjá sig frekar um málið.
Kærði X kvað fyrir dómi ekki hafa hugmynd um hvað málið snérist. Hann hafi verið sofandi heima hjá sér eða kærustu sinni þennan morgun en var ekki alveg viss um á hvorum staðnum það var. Lögreglustjórin hafði einnig krafist gæsluvarðhalds yfir D og E í þágu rannsóknar málsins og hafði E ekki viljað tjá sig um málið en D hafði viðurkennt að hafa verið með kærða X og E á vettvangi umræddan morgun og hefði E skotið úr haglabyssu að húsinu.
Lögreglan telur að eftir uppkvaðningu úrskurðarins þann 22. júní sl. og við frekari rannsókn málsins hafi grunur um aðild kærða að málunum enn styrkst. Framburður kærða hafi verið einkar ótrúverðugur, með hliðsjón af framburði meðkærðu, vitna og annarra gagna sem lögregla hefur aflað við rannsókn málsins. Skotvopnið sem beitt hafi verið að morgni 21. júní sl. hafi ekki fundist. Þá bendi upplýsingar við meðferð málsins til þess að vitni gætu vitað hvar vopnið er niður komið og hætta sé á að kærði geti haft áhrif á framburð þeirra og meðkærðu og/eða komið vopninu undan gangi hann laus.
Rannsókn máls þessa er nokkuð vel á veg komin og er fallist á það, að böndin hafi borist enn nær kærða X og meðkærðu E og D um þátttöku í ætluðu broti. Það verður að teljast mjög mikilvægt fyrir rannsókn málsins að umrædd haglabyssa finnist og hefur lögreglan upplýsingar um að tvö vitni gætu gefið upplýsingar um hvar haglabyssan er nú niður komin. Telja má það mjög líklegt að það muni torvelda rannsókn málsins ef kærða og meðkærðu verður sleppt úr haldi áður en vitni þessi hafa verið yfirheyrð og eru því rannsóknarnauðsynjar til þess að kærði X sæti áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er og er krafa lögreglustjórans í Hafnarfirði tekin til greina með vísun í a lið 1. mg. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 þriðjudaginn 4. júlí nk.