Print

Mál nr. 750/2009

Lykilorð
  • Eignarréttur
  • Fasteign
  • Þjóðlenda
  • Afréttur
  • Aðild
  • Gjafsókn

Fimmtudaginn 7. október 2010.

Nr. 750/2009.

Ólafur Birgir Vigfússon

(Ólafur Björnsson hrl.)

(Hlynur Jónsson hdl.)

gegn

íslenska ríkinu

(Indriði Þorkelsson hrl.)

(Stefán A. Svensson hdl.)

Eignarréttur. Fasteign. Þjóðlenda. Afréttur. Aðild. Gjafsókn.

Ó höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og krafðist þess að fellt yrði úr gildi ákvæði í úrskurði óbyggðanefndar 29. maí 2007 í máli nr. 4/2005 um að landsvæðið Hvappur í Svalbarðshreppi væri þjóðlenda innan tilgreindra marka. Þá krafðist hann viðurkenningar á því að landsvæðið væri engin þjóðlenda og háð beinum eignarrétti sínum. Fyrir Hæstarétti reisti Ó kröfu sína á því að hann væri þinglýstur eigandi jarðarinnar Syðra-Álands og Hvappur heyrði undir hana. Í dómi réttarins er vísað til heimilda um jörðina Hvapp og að þar hafi búskapur verið tekinn upp um 1840. Hvappur hafi verið byggður úr jörðinni Álandi, sem síðar varð Syðra-Áland  og mætti ljóst vera að landið hafi á árinu 1845 verið selt JA. Ófullkomnar upplýsingar væru hins vegar um eignarhald að Hvappi upp frá því, en í yngstu heimildinni, fasteignamatinu frá 1916 til 1918, hafi þess verið getið að eigandi hafi þá verið SJ, sem ætla mætti að væri sonarsonur JA. Því hafi ekki verið borið við í málinu að eigendur Syðra-Álands hafi eignast Hvapp fyrir kaup eða að erfðum úr hendi SJ, eða annarra sem leitt gátu rétt sinn frá honum. Við skýrslugjöf fyrir óbyggðanefnd hafi Ó verið spurður hvernig hann hafi orðið eigandi að jörðinni Hvappi og hafi hann svarað því til að honum væri ekki kunnugt um hver væri eigandi að henni, en hún væri angi frá Syðra-Álandi og þar á undan frá Ytra-Álandi. Þá hefði hann lýst því að eigendur Syðra-Álands hafi nýtt þetta land til beitar. Að þessu öllu virtu taldi Hæstiréttur ekki unnt að líta svo á að sýnt hafi verið fram á að Ó gæti með réttu kallað til beins eignarréttar að landi Hvapps, hvorki sem réttartaki JA né á grundvelli laga um nr. 46/1905 um hefð, enda hefði notum af landinu ekki verið háttað þannig eftir gildistöku þeirra laga að til eignarréttar gæti hafa stofnast samkvæmt þeirri heimild. Þar sem Ó hefði hvorki lagt fram haldbær gögn til stuðnings tilkalli sínu til eignarréttar að landi Hvapps né borið við að hann ætti af öðrum sökum lögvarinna hagsmuna að gæta, gæti hann ekki átt aðild að kröfu um ógildingu úrskurðar óbyggðanefndar að því er varðaði þetta landsvæði. Þar sem engin skilyrði voru talin vera fyrir hendi til að taka til greina kröfu Ó um viðurkenningu á eignarrétti að landinu Hvappi var íslenska ríkið sýknað af kröfum Ó.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. desember 2009. Hann krefst þess að fellt verði úr gildi ákvæði í úrskurði óbyggðanefndar 29. maí 2007 í máli nr. 4/2005 um að landsvæðið Hvappur sé þjóðlenda innan eftirgreindra marka: „Að utan ræður bein lína í vestur úr Hölkná miðjavega milli Hafursstaða og Hvapps í Balafellsbrún svo ræður fjallsbrúnin suður í Vatnsendaskarð en svo ræður lækur sá er úr skarðinu rennur í Hölkná. Að austan ræður Hölkná.“ Þá krefst hann að viðurkennt verði að innan framangreindra merkja sé engin þjóðlenda og landsvæðið háð beinum eignarrétti hans. Áfrýjandi krefst og málskostnaðar fyrir Hæstarétti án tillits til gjafsóknar, sem honum hefur verið veitt.

Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.

Dómendur í málinu fóru á vettvang 9. september 2010.

I

Samkvæmt ákvæðum laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta tók óbyggðanefnd 1. mars 2004 til meðferðar landsvæði á norðausturlandi, sem réðist að vestan af Jökulsá á Fjöllum frá ósi hennar í Öxarfirði að Dyngjujökli, en þaðan var fylgt jaðri hans að Kverkfjöllum í Hveradal, þar sem dregin var lína til suðurs inn á Vatnajökul. Austurmörk svæðisins fylgdu Lagarfljóti frá ósum á Héraðssandi þangað sem Gilsá fellur í það, en þeirri á var svo fylgt og síðan mörkum Fljótsdalshrepps að Geldingafelli, þaðan sem lína var dregin inn á Vatnajökul. Að norðan náði svæðið að hafi. Óbyggðanefnd bárust kröfur stefnda 11. nóvember 2004, sem vörðuðu allt svæðið, og birti hún þær samkvæmt 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998, ásamt því að skora á þá, sem teldu þar til eignarréttinda, að lýsa kröfum sínum. Fjölmargar kröfur og athugasemdir bárust nefndinni. Í júlí 2005 ákvað hún að fjalla um svæðið í fimm aðskildum málum. Eitt þeirra var nr. 4/2005, sem náði til Svalbarðshrepps, Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps, en þeir tveir síðastnefndu hafa nú verið sameinaðir í eitt sveitarfélag, Langanesbyggð. Málið tók meðal annars til landsvæðisins Hvapps í Svalbarðshreppi, sem áfrýjandi kallaði til eignarréttar yfir sem eigandi Syðra-Álands, en stefndi taldi það til þjóðlendna. Í úrskurði óbyggðanefndar 29. maí 2007 var komist að þeirri niðurstöðu að Hvappur væri þjóðlenda með þeim mörkum, sem áður greinir í dómkröfum áfrýjanda, en viðurkennt var á hinn bóginn að þetta landsvæði væri afréttareign eigenda Syðra- og Ytra-Álands samkvæmt 2. mgr. 5. gr. og c. lið 7. gr. laga nr. 58/1998.

Áfrýjandi höfðaði mál þetta 17. janúar 2008 og er ekki deilt um að það hafi verið innan þess frests, sem um ræðir í 1. mgr. 19. gr. laga nr. 58/1998. Í héraði voru aðalkröfur áfrýjanda þær sömu og dómkröfur hans fyrir Hæstarétti, en með hinum áfrýjaða dómi var stefndi sýknaður af þeim, svo og af varakröfu, sem áfrýjandi hefur fallið frá.

II

Samkvæmt gögnum málsins var gert landamerkjabréf fyrir Hvapp 8. maí 1890, þar sem merkjum var lýst eins og greinir í dómkröfum áfrýjanda, og er óumdeilt að landið sé rétt afmarkað í þeirri lýsingu. Að norðan ráðast merkin af beinni línu, sem dregin er til vesturs frá Hölkná á miðri leið milli Hvapps og Hafursstaða að brún Balafells, og ná þau þar að landi Hafursstaða, sem mun fylgja jörðinni Ytra-Álandi. Frá Balafelli fara merkin til suðurs eftir fjallsbrún til Vatnsendaskarðs, en þaðan fylgja þau Skarðslæk austur í Hölkná. Á þessu bili liggja merkin að landsvæðinu Vatnsenda, sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í máli nr. 748/2009. Loks ræður Hölkná austurmerkjum norður að þeim stað, sem fyrst var nefndur, en handan árinnar er land, sem eigendur jarðarinnar Laxárdals gera tilkall til og fjallað er að hluta um í dómi Hæstaréttar í máli nr. 723/2009. Þetta land Hvapps myndar eins konar ferhyrning og eru þar tæplega 5 km frá norðri til suðurs, en um 2 km milli merkja að vestan og austan.

Samkvæmt gögnum málsins er Hvappur rétt sunnan við miðju svokallaðrar Álandstungu, sem liggur frá norðri við Þistilfjörð til suðurs milli Hölknár í austri og Sandár í vestri. Um 37 km eru frá sjó til syðstu marka Vatnsenda, sem liggur syðst á tungunni, en hún er að breidd frá rúmum 2 km upp í um 6 km. Á Álandstungu eru jarðirnar Ytra-Áland og Syðra-Áland einar í byggð og bæjarhús norðarlega á henni. Fyrrnefnda jörðin mun áður hafa kallast Áland og sú síðarnefnda orðið til sem hjáleiga frá henni ekki síðar en á 17. öld. Fyrir miðri Álandstungu var jörðin Hafursstaðir, sem nefnd var „fornt eyðiból” í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1712 og hermt að þar hafi áður verið kirkja eða bænahús. Sunnan við Hafursstaði mun um 1840 hafa verið stofnað til heiðarbýlis á Hvappi og búið þar til 1886. Enn sunnar var síðan Vatnsendi, þar sem reist var býli um 1840 og búið til 1862. Heimildir eru um nokkurn fjölda annarra eyðibýla á Álandstungu, sem ekki eru efni til að gera hér frekari grein fyrir. Í úrskurði óbyggðanefndar er landi Hvapps lýst svo að það sé hallalítið og gróið votlendi, sem liggi að mestu í 200 til 300 m hæð. Það hækki jafnt og þétt til vesturs frá Hölkná að austurhlíðum Balafells, þar sem það hækki skarpt, en fellið nái 434 m hæð.

Elstu heimildir um Áland mun vera að finna í bréfi frá 13. janúar 1379, þar sem Arngeir prestur Jónsson seldi klaustrinu á Möðruvöllum jörðina, en þar sagði meðal annars: „áá saugd jord alla iardar eign millum haulknar ok sandar. land gaugn ok fioru gaugn.” Hinn 23. mars 1380 keypti Arngeir jörðina aftur með öllum þeim gögnum og gæðum, sem fylgt höfðu við sölu ári fyrr, en þó að undanskildum „ollum rekum þeim sem þui landi hafa fylgt”. Í testamentisbréfi Gottskálks biskups Nikulássonar á Hólum frá 6. júní 1520 var því lýst að Áland væri meðal þeirra jarða, sem hefðu „vnder oss borid j þann tijma. sem almattugur Gud hefur oss overdugan þolad yffer Hola Byskupzdæme“ og hann ráðstafaði þar „heilagri Holadomkyrkiu til æfinligrar eignar“. Áland mun síðan hafa tilheyrt Hólastóli þar til það var selt eins og aðrar jarðir stólsins við Þistilfjörð á fyrstu árum 19. aldar og mun þá Sigurður Magnússon hafa eignast Ytra-Áland ásamt Syðra-Álandi, sem mun á þeim tíma hafa kallast Fremra-Áland.

Í máldögum Auðunar biskups rauða Þorbergssonar fyrir Hólabiskupsdæmi frá 1318 var þess getið að Sauðaneskirkja ætti „selfor hia Balafelli.” Samkvæmt samantekt þjóðskjalasafnsins um sögu jarða á svæðinu, sem mál nr. 4/2005 hjá óbyggðanefnd tók til, mun þetta sama hafa komið fram í yngri máldögum Hólastóls, svo og í vísitasíum fyrir Sauðaneskirkju allt frá 16. öld til þeirrar 19. Samkvæmt gögnum málsins hófust um 1820 deilur um eignarhald á landsvæði í nágrenni Balafells, sem áttu eftir að standa í nokkra áratugi. Upphaf þeirra virðist mega rekja til þess að árið 1817 hafi fyrrnefndur Sigurður Magnússon byggt eyðikotið Hafursstaði dóttur sinni til ábúðar í sellandi, sem sóknarpresturinn í Sauðaneskirkju taldi tilheyra henni. Ritaði hann biskupi bréf 21. janúar 1820 og óskaði álits um hvort hann ætti að höfða mál gegn Sigurði. Presturinn kvað sellandið liggja fram af landi Álands, en Sigurður hefði engin skjöl fyrir því hversu langt það næði, því enginn máldagi hafi fylgt jörð hans, sem áður heyrði til Hólastóli. Hafursstaðir, sem lægju undir Balafelli, hefðu verið í eyði frá stóru plágu. Máldagi Sauðaness segði að kirkjan ætti selför undir Balafelli, en hún hafi þó ekki verið notuð síðan í tíð séra Ólafs Guðmundssonar, sem þar var prestur frá 1567 til 1609. Í bréfi 27. mars 1820 kvaðst biskup ekki geta gefið prestinum áreiðanlegt svar fyrr en hann hefði fengið frekari upplýsingar í hendur, en þó teldi hann nokkuð ísjárvert að gera tilkall til þessarar selfarar ef Sauðanesprestur hefði engin not haft af henni í meira en tvö hundruð ár. Presturinn lét á manntalsþingi á Svalbarði 30. júní 1820 lesa upp lögfestu fyrir sellandi kirkjunnar fram í Svalbarðsheiði og á manntalsþingi 14. júlí 1821 lét Sigurður lesa upp byggingarbréf nýlendunnar Hafursstaða, en þessi skjöl munu vera glötuð. Að beiðni amtmanns mun Þórður Björnsson sýslumaður hafa samið álitsgerð vegna þessarar deilu 5. nóvember 1825. Þar kvaðst hann ekki kannast við að nokkur eyðijörð í Þistilfirði tilheyrði Sauðaneskirkju, en í máldagabók Ólafs biskups Rögnvaldssonar frá 1461 segði að kirkjan ætti selför undir eða hjá Balafelli, án þess þó að staðsetja hana nákvæmlega. Hann sagði Balafell liggja býsna langt inn í auðnum Þistilfjarðar og væri víðlent og láglent svæði, sem gengi þar þvert í gegn ofan við jarðirnar og nýttist af íbúum byggðarinnar sem „afrétt“. Byggð hefði verið á þessu svæði fyrir löngu og enn mætti sjá leifar hennar, en talið væri að hún hefði farið í eyði í svarta dauða, sem gengið hefði í tvígang við upphaf og lok 15. aldar. Landsvæðið væri óvarið fyrir veðrum og þar væru langir vetur með miklum snjóþunga, sem hörfi ekki fyrr en langt væri liðið á sumar. Á móti kæmi hins vegar prýðilegt beitiland og gott sláttuengi á vissum stöðum og væri það megin ástæða þess að farið hefði verið fram á að byggð yrði tekin þar upp á ný. Sýslumaður lét þess getið að Sigurður Magnússon hefði keypt Áland ásamt hjáleigunni Fremra-Álandi þegar jarðir Hólastóls hefðu verið boðnar upp 1805. Balafell lægi næst þessum jörðum, en takmörk þeirra til suðurs væru óvís og því eignaði Sigurður sér bæði Balafell og Hafurstaðaland og segðist hafa keypt það með Álandi. Hann hefði byggt eyðibýlið Hafursstaði 1816 og reist nokkra kofa þar sem börn hans hófu búskap. Byggðin hefði haldist við til aftakaharðs vetrar 1821 til 1822, en þá hefðu ábúendur neyðst til að yfirgefa staðinn sem síðan hefði legið í eyði.

Framangreindar deilur munu enn hafa verið óleystar þegar byggð var tekin upp á Hvappi um 1840, en á manntalsþingi 23. júní það ár lét presturinn á Sauðanesi lesa upp bréf, þar sem hann lagði bann við því að „Nýlendu mennirnir á Hafursstödum og Hvappi borgi nockud fyrir Abúd sína til Þorsteins á Backa eda leiti hanns Lofs eda Leyfis til Abúdar eda Lands nyjta”, þar sem „þeir búi í Sauda ness Kyrkju landi”. Á sama þingi var jafnframt lesið upp „Protest ... undirskrifad af Prestinum og fleyri bændum hér í Sveyt á móti nýlendu byggíngum framvegis. – Protesti Bænda er þannig svarad: ad hvörjum Manni hereptir fyrirbydst ad uppbyggja eda láta uppbyggja nýlendr héreptir fyrri enn Platsid er löglega útmælt af Sysslu manni og allra vid komenda Uppástond og Prótest á bádar Sídur eru vid Lög og Rett af gjörd.” Í fyrrnefndri samantekt þjóðskjalasafns er leitt getum að því að Þorsteinn Bjarnason á Bakka hafi á þessum tíma verið eigandi að Álandi. Af gögnum málsins verður ekki séð að niðurstaða hafi fengist í þessari deilu og virðist hún hafa fjarað út kringum 1850.

Í málinu liggur ekki fyrir frekar en að framan greinir hvernig stofnað var til býlis á Hvappi eða hverjir hafi átt þar hlut að máli, en óumdeilt er að það hafi ekki verið gert eftir reglum tilskipunar 15. apríl 1776 um fríheit fyrir þá, sem vilja upp taka eyðijarðir eða óbyggð pláss á Íslandi. Meðal gagna málsins er bókun frá manntalsþingi 19. júní 1845 um að lesið hafi verið upp kaupbréf frá 21. febrúar sama ár, þar sem Þorsteinn Bjarnason á Bakka hafi selt Jóni Andréssyni Hvapp. Í jarðatali frá 1847 var Hvapps getið og tekið fram að hann væri ásamt meðal annars Hafursstöðum og Vatnsenda „afbýli frá Syðra og Ytra Álandi”. Í jarðamati frá 1849 sagði að Hvappur væri „fyrir nokkru byggt úr landareign Ytra- og Siðraálands og nú sérstök eign”, svo og að þar væri „ekkert tún, en nokkrar útheyslægjur sem géfa all gott hey; landrými er sæmilegt og til sumarbeitar kjarngott, enn vetrarbeit sökum hardinda alls eingin.”

Áðurnefndur Jón Andrésson mun samkvæmt gögnum málsins hafa búið á Hvappi fram til 1844. Í úrskurði óbyggðanefndar segir að sonur Jóns Andréssonar hafi verið Jón Jónsson, sem kvæntur hafi verið Kristbjörgu Jónsdóttur, en þeirra sonur hafi verið Sigurður Jónsson. Kristbjörg hafi að eiginmanni sínum látnum gifst Lárusi Guðmundssyni, sem átt hafi Syðra-Áland. Hvappur mun sem áður segir hafa farið í eyði 1886, en fyrrnefnt landamerkjabréf fyrir hann frá 8. maí 1890 var gert í nafni „eigandans L. Guðmundssonar í Papey.” Það var áritað um samþykki vegna Hafursstaða og Vatnsenda og lesið á manntalsþingi 26. júní 1890. Í fasteignamati frá 1916 til 1918 kom fram að eigandi Hvapps væri Sigurður Jónsson, bóndi á Brimnesi við Seyðisfjörð, og „notandi” Guðbjörn Grímsson, bóndi á Syðra-Álandi. Í málinu liggja ekki fyrir gögn um að þinglesnar hafi verið frekari eignarheimildir fyrir Hvappi en áðurnefnt kaupbréf Jóns Andréssonar frá 1845.

III

Áfrýjandi reisir aðalkröfur sínar á því að hann sé þinglýstur eigandi jarðarinnar Syðra-Álands og heyri Hvappur undir hana. Hér að framan er rakið efni fyrirliggjandi gagna um sögu jarða á Álandstungu og eignarhald að landinu, þar sem búskapur var tekinn upp á Hvappi um 1840. Í fyrrgreindum heimildum er því lýst að Hvappur hafi verið byggður út úr jörðinni Álandi, sem síðar varð Ytra-Áland, og má ljóst vera að þetta land hafi á árinu 1845 verið selt Jóni Andréssyni undan þeirri jörð. Í málinu eru ófullkomnar upplýsingar um eignarhald að Hvappi upp frá því, en í yngstu heimild, fasteignamatinu frá 1916 til 1918, var þess getið að eigandi hafi þá verið Sigurður Jónsson, sem ætla má af áðursögðu að hafi verið sonarsonur Jóns Andréssonar. Því hefur ekki verið borið við í málinu að eigendur Syðra-Álands hafi eignast Hvapp fyrir kaup eða að erfðum úr hendi Sigurðar eða annarra, sem leitt hafi rétt sinn frá honum, en til þess verður og að líta að ekkert liggur fyrir um að skyldleikatengsl hafi staðið milli þess manns og áfrýjanda. Við skýrslugjöf fyrir óbyggðanefnd var áfrýjandi spurður hvernig hann hafi orðið eigandi að jörðinni Hvappi og sagði hann að sér væri „í rauninni ekki kunnugt um hver er eigandi að henni”, en hún væri „angi frá Syðra-Álandi og þar á undan frá Ytra-Álandi.“ Þá lýsti hann því einnig að eigendur Syðra-Álands hafi nýtt þetta land til beitar. Að þessu öllu virtu er ekki unnt að líta svo á að sýnt hafi verið fram á að áfrýjandi geti með réttu kallað til beins eignarréttar að landi Hvapps, hvorki sem réttartaki Jóns Andréssonar né á grundvelli laga nr. 46/1905 um hefð, enda hefur notum af landinu ekki verið háttað þannig eftir gildistöku þeirra laga að til eignarréttar geti hafa stofnast samkvæmt þeirri heimild.

Með því að áfrýjandi hefur samkvæmt framansögðu hvorki lagt fram haldbær gögn til stuðnings tilkalli sínu til eignarréttar að landi Hvapps né borið við að hann eigi af öðrum sökum lögvarinna hagsmuna að gæta getur hann ekki átt aðild að kröfu um ógildingu úrskurðar óbyggðanefndar 29. maí 2007 í máli nr. 4/2005 að því er þetta landsvæði varðar. Engin skilyrði eru til að taka til greina kröfu hans um viðurkenningu eignarréttar að landinu. Þegar af þessum sökum verður niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest.

Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður. Um gjafsóknarkostnað áfrýjanda hér fyrir dómi fer eftir því sem í dómsorði segir, en við ákvörðun málflutningsþóknunar lögmanns hans er tekið tillit til þess að hann hefur samhliða þessu máli farið með sex önnur, sem varða ákvörðun marka eignarlanda og þjóðlendna við Þistilfjörð.

Dómsorð:

Héraðsdómur skal vera óraskaður.

Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, Ólafs Birgis Vigfússonar, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans, 300.000 krónur.

Dómur Héraðsdóms Norðurlands eystra 23. september 2009.

Mál þetta, sem dómtekið var 28. ágúst sl., eftir endurtekinn málflutning, hefur Ólafur Birgir Vigfússon, kt. 050571-5809, Syðra-Álandi, 681 Þórshöfn, höfðað hér fyrir dómi á hendur íslenska ríkinu, Arnarhvoli, Reykjavík, með stefnu birtri 17. janúar 2008.

Dómkröfur stefnanda eru:

Aðallega að felldur verði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar frá 29. maí 2007 í málinu nr. 4/2005, Svalbarðshreppur, Þórshafnarhreppur og Skeggjastaðahreppur, þess efnis að jörðin Hvappur sé þjóðlenda, þ.e. eftirtalin úrskurðarorð:

Það er því niðurstaða óbyggðanefndar að umrætt landsvæði, svo sem það er afmarkað hér á eftir, teljist til þjóðlendu í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr. laga nr. 58/1998.  Að utan ræður bein lína í vestur úr Hölkná miðjavega milli Hafursstaða og Hvapps í Balafellsbrún svo ræður fjallsbrúnin suður í Vatnsendaskarð en svo ræður lækur sá er úr skarðinu rennur í Hölkná.  Að austan ræður Hölkná.  Sama landsvæði er í afréttareign Syðra- og Ytra-Álands, sbr. 2. mgr. 5. gr. og c-lið 7. gr. sömu laga.

Af hálfu stefnanda er gerð krafa um að viðurkennt verði með dómi að hann eigi fullkominn og beinan eignarrétt að landi Hvapps eins og því er lýst hér að neðan:

„Að austan ræður bein lína í vestur úr Hölkná miðjavegu milli Hafursstaða og Hvapps, í Balafellsbrún, svo ræður fjallsbrúnin suður í Vatnsendaskarð, svo ræður lækur sá er úr skarðinu rennur í Hölkná.“

Varakrafa stefnanda er að viðurkennt verði að hann eigi einkarétt til beitar, veiða, dýraveiða, hagnýtingar vatnsréttinda og nýtingar á auðlindum í jörðu, án endurgjalds, á því svæði sem úrskurðað var afréttareign eigenda Hvapps, sbr. 2. mgr. 5. gr. og c-lið 7. gr. laga nr. 58/1998 þó að landið teljist þjóðlenda.

Stefnandi krefst málskostnaðar úr hendi stefnda að mati dómsins, líkt og málið væri eigi gjafsóknarmál, sbr. bréf dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá 13. ágúst 2008.

Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda, en til vara að því er varðar málskostnað krefst hann að hvor aðili beri sinn kostnað af málinu.

Stefnandi er þinglýstur eigandi Syðra-Álands í Svalbarðshreppi, Þistilfirði.  Reisir hann dómkröfur sínar á því að umrætt landsvæði, sem nefnt er Hvappur, tilheyri eignarjörð hans.

I.

1.          Tildrög máls þessa eru þau, að með bréfi, dagsettu 1. mars 2004, tilkynnti óbyggðanefnd fjármálaráðherra þá ákvörðun sína að taka til umfjöllunar landsvæði, sem tekur yfir sveitarfélög í Múlasýslum auk hluta Norður-Þingeyjarsýslu, sbr. 8. gr. og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 58, 1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.  Afmarkaðist svæðið nánar, að vestanverðu, af meginfarvegi Jökulsár á Fjöllum, allt frá Jökulsárósi í Öxarfirði að aðalupptökum árinnar í Dyngjufjöllum.  Að norðan afmarkaðist landsvæðið af hafi, en eigi er í máli þessu þörf á að rekja afmörkun svæðisins frekar.

Kröfulýsingar fjármálaráðherra, fyrir hönd stefnda íslenska ríkisins, á umræddu landsvæði bárust 11. nóvember 2004.  Óbyggðanefnd birti tilkynningu um meðferð sína á svæðinu, svo og útdrátt úr kröfum stefnda ásamt uppdrætti, í Lögbirtingablaðinu 28. desember 2004, en einnig í dagblöðum, sbr. ákvæði 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58, 1998.  Í tilkynningunni var m.a. skorað á eigendur jarða í Svalbarðshreppi, Þórshafnarhreppi og Skeggjastaðahreppi, nú Langanesbyggð, þ.m.t. stefnanda, að lýsa kröfum sínum til landsins fyrir nefndinni, auk þess að gera grein fyrir landamerkjum, í síðasta lagi 31. mars 2005.  Þann dag lagði stefnandi fram kröfulýsingu sína til óbyggðanefndar, en sökum framlengingar á fresti bárust síðustu kröfulýsingar annarra landeigenda í maí 2005.

Í júlí 2005 tilkynnti óbyggðanefnd aðilum þá ákvörðun sína að skipta þjóðlendukröfusvæði íslenska ríkisins í fimm mál, þ. á m. mál nr. 4/2005, er varðaði fyrrnefnd sveitarfélög.  Var það mál fyrst tekið fyrir á fundi óbyggðanefndar og forsvarsmanna málsaðila þann 17. ágúst 2005.  Við fyrirtökur 20. desember 2005 og 9. mars 2006 voru lagðar fram greinargerðir og sýnileg gögn.  Málið var tekið til úrskurðar fyrir óbyggðanefnd 7. júlí 2006 að lokinni vettvangsferð, skýrslutökum og munnlegum flutningi.  Málsmeðferðin var endurupptekin 17. ágúst sama ár og voru þá lögð fram ný gögn, en málið að því loknu tekið til úrskurðar á ný.  Hinn 29. maí 2007 kvað óbyggðanefnd upp úrskurð sinn.  Var það m.a. niðurstaða nefndarinnar, að landsvæði það sem hér er til umfjöllunar, Hvappur í Svalbarðshreppi, væri þjóðlenda í skilningi 1. gr., sbr. a-lið 7. gr., laga nr. 58, 1998, en að landsvæðið væri afréttareign Syðra- og Ytra-Álands, sbr. 2. mgr. 5. gr. og c-lið 7. gr. sömu laga.

Útdráttur úr nefndum úrskurði óbyggðanefndar var birtur í Lögbirtingablaðinu hinn 18. júlí 2007 svo sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 18. gr. laga nr. 58, 1998.

Stefnandi undi ekki niðurstöðu óbyggðanefndar, og leitast hann við með málsókn sinni hér að fá henni hnekkt, og krefst ógildingar úrskurðarins að því er hið umrædda landsvæði varðar.  Málið er höfðað innan þess frests sem veittur er í 19. gr. fyrrnefndra laga til þess að bera úrskurðinn undir dómstóla, en fjármálaráðherra er í fyrirsvari fyrir stefnda, íslenska ríkið, samkvæmt 11. gr. laganna.

Við meðferð málsins fyrir dómi var farið á vettvang, hinn 23. september 2008.

2. Í úrskurði óbyggðanefndar er, eins og áður er lýst, kveðið á um eignarréttarlega stöðu heiðarlanda í Svalbarðshreppi, þar á meðal Hvapps í svonefndri Álandstungu.  Verður hér á eftir gerð grein fyrir helstu atriðum úrskurðarins eins og nauðsynlegt er til úrlausnar málsins.

Úrskurðurinn skiptist í sjö kafla og er 204 blaðsíður.  Í fyrstu köflunum er lýst málsmeðferð fyrir óbyggðanefnd, kröfugerð og gagnaöflun aðila svo og þeim sjónarmiðum sem þeir byggja á.  Í síðari köflum úrskurðarins er lýst landnámi, sveitarmörkum, afnotum og sögu einstakra jarða, þ. á m. Hvapps, en auk þess er í sérstökum kafla, 6.1.1-2, fjallað um gildi landamerkjabréfa.  Gerð er grein fyrir niðurstöðum óbyggðanefndar um einstakar jarðir og svæði, en að lokum eru úrskurðarorð.  Með úrskurðinum fylgir sérstakur uppfærður viðauki þar sem lýst er almennum niðurstöðum óbyggðanefndar, en þær eru m.a. ítarlega raktar í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 48/2004.  Einnig eru önnur skjöl meðfylgjandi, þ. á m. viðeigandi landakort með árituðum merkja- og kröfulínum.

3. Í úrskurði óbyggðanefndar er frá því greint að elstu ritheimildir um landnám og landnámsmörk í Þistilfirði og á Langanesströnd sé að finna í Landnámu, í Hauksbók, Þórðarbók og Sturlubók.  Í þeirri síðastnefndu segir m.a:  Ketill þistill nam Þistilfjörð milli Hundsness(Rakkaness) og Sauðaness.  Hans son var Sigmundr, faðir Laugarbrekku-Einars.  Um landnám á Langanesströnd eru Landnámugerðir samhljóða, en þar segir:  Finni hét maðr, er nam Finnafjörð ok Miðfjörð.  Hans son var Þórarinn, faðir Sigurðar, föður Glýru-Halla.

4. Svalbarðshreppur er sveitarfélag á austanverðri Melrakkasléttu og upp af Þistilfirði.  Hreppurinn er nefndur eftir kirkjustaðnum Svalbarði.  Í jarðamati frá 1889 segir um mörk hreppsins:  Svalbarðshreppur byrjar að vestanverðu við svokallaða Ormars- eða Ormarslónsá og liggur fram með Þistilfjarðarflóa að vestan allt fram til heiða, en að austan aðskilur svonefnd Hafralónsá sveitina frá Sauðaneshreppi.  …  Afréttarlands nýtur sveitin nægilegs fyrir sjálfa sig, en einskis skóglendis.“  Um nánari mörk hreppsins er í úrskurði óbyggðanefndar m.a. vísað til ritgerðar Eiríks Þormóðssonar, Þróun byggðar í Svalbarðshreppi í Þistilfirði, frá árinu 1970, en þar segir:  Að vestanverðu ræður Ormarsá merkjum frá sjó og þar til henni sleppir nokkru fyrir sunnan eyðibýlið Múla syðst á Seljaheiði, … en merkin milli Presthóla og Axarfjarðarhrepps liggja að merkjum Svalbarðshrepps.  Þá liggja mörkin um svonefnt Botnagil, Einbúa, sem er fremur lágt fjall nyrst á Laufskálafjallgarði, og síðan áfram suður eftir endilöngum Laufskálafjallgarð í gegnum Gagndagahnjúk, sem er allhár hnjúkur sunnarlega í fjallgarðinum og suður í Reiðgil, en þar liggja merki Axarfjarðar- og Fjallahrepps að merkjum Svalbarðshrepps.  Síðan liggja merkin til norðausturs með Fossá, þar til hún rennur í Sandá, eina af stærri ám, sem falla gegnum Þistilfjörð.  Þá ræður Sandá merkjum til suðurs að svokölluðu Þorsteinsnefi, sem er nokkurn veginn í austur frá Hvannstöðum, eyðibýli í Fjallahreppi.  Síðan eru merkin í suðaustur gegnum Heljardalsfjöll, sem eru allhá og víðáttumikil fjallbunga, og áfram í Einbúa, en þangað nær land Þistilfirðinga lengst til suðurs, og þar liggja saman merki Fjallahrepps, Vopnfirðinga, Sauðaneshrepps og Svalbarðshrepps.  Loks liggja merkin til norðurs gegnum Stakfell í Heljardalsá, sem ræður merkjum þar til hún fellur í Hafralónsá, en hún ræður merkjum Svalbarðshrepps að austan út í sjó.

5. Álandstungu í Svalbarðshreppi er í heimildum, þar á meðal bókaflokknum Göngum og réttum, frá árinu 1987, lýst svo:  Álandstunga liggur á milli Hölknár og Sandár í Þistilfirði.  Það nafn er ekki einungis á afréttarlandinu eða heiðinni, heldur öllu landinu frá sjó til heiða og hreppsmóta.  Í úrskurði óbyggðanefndar, en einnig í ritsmíð Hjörleifs Guttormssonar náttúrufræðings frá 2006, er landsvæði þessu nánar lýst svo, að breidd þess sé 3–5 km og liggi í 200-500 m hæð yfir sjávarmáli.  Austan til sé landið fjalllent en vestan til hallalítið og gróið.  Nyrst sé ása- og flóaland en síðan taki við röð fjalla.  Balafell (434 m) sé yst, þá Vatnsendahnjúkur (400 m), en á milli þeirra sé Vatnsendavatn í um 280 m hæð yfir sjávarmáli.  Þá taki við tvísett röð, Lambafjallgarður að austan og Álftadyngjufjallgarður að vestan og innst sé Langás sem tengist vestasta hluta Heljardalsfjalla.  Um gróðurinn segir að hann sé fjölbreyttur, en í úrskurði óbyggðanefndar er við það miðað að við landnám hafi landsvæðið verið betur gróið og gróður náð lengra inn á heiðar en nú er.

Í öðrum framlögðum gögnum, þ. á m.  Byggðasögu Norður-Þingeyinga, Landi og Fólki frá 1985, ritsafni Þingeyinga, Lýsingu Þingeyjarsýslu frá 1959, í áðurnefndu riti Þróun byggðar í Svalbarðshreppi og í sýslu- og sóknarlýsingu Svalbarðssóknar, sem Valdimar Ásmundsson, fæddur 1852, og síðar ritstjóri, skráði árið 1875, er atvinnu- og byggðasaga Þistilfjarðar ítarlega rakin.  Er m.a. vísað til þessara rita í málatilbúnaði aðila og úrskurði óbyggðanefndar.

Höfuðbýlið Áland kemur fyrst fyrir í bréfagerð árið 1378 í tengslum við kaup Möðruvallaklausturs á jörðinni af Ásgeiri presti Jónssyni, ásamt með rekum.  Um mörk jarðarinnar segir í bréfinu, að hún eigi alla jarðeign milli Hölknár og Sandár, landgögn og fjörugögn, eða eins og segir orðrétt:  „... á saugd jord alla iardar eign millum halknar. ok sandar. land gaugn ok fioru gaugn.“  Þá eru heimildir um að jörðin hafi verið seld að nýju ári síðar, en þá án rekans.

Samkvæmt máldagabók Ólafs biskups Rögnvaldssonar frá árinu 1461 átti Sauðaneskirkja á Langanesi selför undir eða hjá Balafelli.  Er þess getið í heimildum að selið hafi ekki verið notað eftir tíð Ólafs prófasts Guðmundssonar, en hann hélt Sauðanes á árunum 1567 til 1609.

Í nefndum heimildum segir frá því að Álandsjörðinni hafi verið skipt í Ytra- og Syðra-Áland.  Um fyrrnefnda býlið segir að bæjarhús standi skammt frá sjó, norðvestan í Bæjarási eða Álandsási.  Um jarðeign býlisins segir að það eigi land milli Sandár og Hölknár, suður um Ytri-Hæðarþúfu að vestan og fram undir Syðrigljúfur að austan, en að auki eyðibýlið Hafursstaði.  Talin ágæt sauðjörð, jarðsælt og góð fjörubeit.  Áður voru beitarhús við Bjarnadal og fjárborg í Austurkrók við ströndina.  Trjáreki milli árósa og veiðiréttur í Sandá.  Í sömu heimildum segir að býlið Syðra-Áland sé við Hölkná, og að landareignin nái vestur að Sandá við Ytri- Hæðarþúfu og suður í svonefndan Möngudal.  Víðáttumikið og gott sauðfjárland.  Segir frá því í heimildum að tvö eyðibýli hafi verið í landi Syðra-Álands; Kerastaðir og enn sunnar við Vælindisás býlið Nýstaðir, en einnig hafi Leirlækur árið 1861 verið talin hjáleiga frá býlinu.  Veiðiréttur fylgir í Hölkná og Sandá.

Í sóknarlýsingu Valdimars Ásmundssonar frá 1875 segir að Ytra-Áland hafi fyrrum verið eign Hólastóls.  Segir í lýsingunni að jörðinni fylgi allstórt land og engjar nokkrar og að öll Álandstungan fram að Grófarósi að vestan, og þar yfir, eða enn lengra, hafi tilheyrt jörðinni.  Hafi Syðra-Áland því verið hjáleiga, en önnur býli í tungunni afbýli Ytra-Álands.  Í sóknarlýsingunni segir og að fyrir utan höfuðbýlið Áland hafi Álandstungan fyrrum að mestu verið óbyggð, nema fremstu jarðirnar, Hafursstaðir og Sótastaðir.  Er staðhæft  að Álandstungan sé hið besta sauðland, og því betra sem lengra dregur fram, en að vetrarríki sé mikið, og því meira sem lengra dregur frá sjó.  Um Syðra-Áland segir að land þess sé ekki mikið né engjar.

Kvikfjárrækt, einkum sauðfjárrækt, hefur samkvæmt fyrrnefndum heimildum um aldir verið aðalbjargræðisvegur fólks í Þistilfirði, ekki síst í Svalbarðshreppi.  Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, sem tekin var saman árið 1712 fyrir Svalbarðs- og Sauðaneshreppa, er ekki minnst á afréttarlönd, en vikið að heiðum í lýsingu einstakra jarða svo og að hlunnindum.  Segir frá því að grastekja, hvannatekja og rótargröftur sé bjargleg fyrir heimilin á Hermundarfelli, Flautafelli og í Álandi og ennfremur að fyrir framan Áland séu Hafursstaðir, fornt eyðiból, með ljósar byggingaleifar: „... en ekki vita menn til vissu í hvörrar jarðar landi það liggur.  Í nefndri heimild segir frá fleiri eyðihjáleigum í sókninni, þ. á m. að vestan Álandstungunnar og suðvestan nefndra Hafursstaða séu í heiðinni Bægisstaðir, hið forna eyðiból kirkjustaðarins Svalbarðs.  Í greinargerð, sem útbúin var fyrir nefndan kirkjustað árið 1782 vegna mats á hlunnindum, er tiltekið að veiðivatn sé þar til heiða, um hálfa þingmannaleið frá byggð, en að það hefði ekki nýst vegna mikilla vegalengda og kostnaðar því samfara.  Segir frá því að af sömu ástæðu hafi nefnt býli, Bægisstaðir, farið í eyði.

Í jarðamati frá 1804 er frá því greint að hver ábúandi Svalbarðshrepps geti tínt fjallagrös frítt í almenningi hreppsins.  Að áliti dómsins er í því viðfangi til þess að líta að í nefndri sýslu- og sóknarlýsingu Valdimars Ásmundssonar frá 1875 segir að víða hafi verið selstöður í sókninni, þar á meðal Krubbnasel, langt fram á Dalstungu, frá lögbýlinu Laxárdal, en að selin hafi öll lagst af fyrir aldamótin 1800 „þegar bágindi voru hér mest.  Í lýsingunni er landkostum og byggð í sókninni lýst nánar og það m.a. staðhæft að engar jarðir séu þar til almenningsþarfa.  Um Álandstunguna segir, að menn haldi að landið „... að framan, út að Grófarós, hafi verið almenningseign ... Sama er að segja um afréttinn fram af Álandstungu, en þó á Vatnsendi (eyðijörð) þar nokkurt land ... eru almenningar framan við landamerki Dals (um Grasmannalæk, sem rennur úr Bræðravötnum vestur í Hölkná ...)

Í sóknarlýsingunni frá 1875 er byggð í Svalbarðshreppi lýst, og segir að mjög strjálbyggt sé í sókninni miðað við fyrri tíð.  Er í framhaldi af því greint frá einstökum býlum, í byggð og í eyði, frá strönd til heiða og það tiltekið hvenær þeirra hafi fyrst verið getið: Ytra-Áland (getið fyrst í heimildum 1378), Syðra- (Fremra-) Áland (1672), Leirlækur (nýbýli 1833), Kerastaðir (nýbýli 1828), Nýstaðir (1862, hjáleiga frá Kerastöðum), Ás (nýbýli 1853), Hafursstaðir (1402-4, byggðir að nýju 1816), Hvappur (nýbýli 1840/1), Vatnsendi (nýbýli 1840) og Fagranes/Halldórsstaðir (1855, afbýli frá Vatnsenda).  Þá er þess getið að hið forna eyðibýli Sótastaðir hafi verið vestan undir Balafelli, en austur af Bægisstöðum og austan við Sandána.

Í nefndum heimildum segir frá því að árið 1817 hafi þáverandi eigandi Álands, Sigurður Magnússon hreppstjóri, uppbyggt eyðikotið Hafursstaði dóttur sinni til ábúðar.  Segir og að vegna þessa hafi Stefán Einarsson, prófastur á Sauðanesi á Langanesi, fæddur 1770, en andaður 1847, ritað biskupi bréf í janúar 1820.  Í bréfi þessu staðhæfir prófastur að eigandi Álands hafi engin gögn fyrir því hversu langt land hans nái og leitar hann álits á því hvort höfða eigi dómsmál.  Í bréfinu segir að nefnt býli, Hafursstaðir, liggi undir Balafelli, en að það hafi áður farið í eyði í stóru plágu.  Engar heimildir liggja fyrir um viðbrögð biskups, en hins vegar segir frá því að á manntalsþingi sem haldið var á Svalbarði í júní 1840 hafi verið lesið upp forboðsskjal frá nefndum prófasti.  Hafi hann þar lagt bann við því að nýbýlismenn á Hafursstöðum, en einnig á Hvappi, sem það ár mun hafa verið byggt upp í fornum seltóftum, greiddu Þorsteini nokkrum Bjarnasyni, eiganda jarðarinnar Bakka, leigu fyrir ábúð eða að þeir leituðu leyfis hans fyrir landnýtingu þar eð þeir byggju í Sauðaneskirkjulandi.  Á sama manntalsþingi var lýst andmælum við fleiri nýbýlum í hreppnum.

Samkvæmt gögnum keypti Jón Andrésson af áðurnefndum Þorsteini á Bakka með kaupbréfi dagsettu 21. febrúar 1845 landsvæði sem nefnt er Hvappur.  Þá skömmu áður hafði Þorsteinn selt landsvæðið norðar á Álandstungunni, sem nefnt er Hafursstaðir.  Var bréfinu vegna Hvapps þinglýst á manntalsþingi á Svalbarði í júní 1847.

Ágreiningslaust er að byggð í Hvappi stóð frá 1840 til 1886.  Þá liggur fyrir að afkomandi fyrrnefnds ábúanda á Hvappi, Jóns Andréssonar, tengdist síðar eigendum Syðra-Álands ættarböndum.

Um legu Hvapps segir í Lýsingu Þingeyjarsýslu:  Hvappur er á Álandstungu, aðeins sjö til átta hundruð metra sunnan Hafursstaða, austan Balafells í dálítilli bugðu upp við fjallið.“  Ennfremur segir frá því í sömu heimild að greinilegar tættur, ekki mjög gamlar, séu niður við Hölknána.  Heitir þar Kristjánskot og eru sagnir um að bóndinn á Hvappi hafi flutt þangað bæ sinn.

Í Jarðatali J. Johnsens 1847 segir að Hvappur sé samkvæmt frásögn sýslumanns sérstakt býli í leiguábúð, líkt og Hafursstaðir og fleiri jarðir, en allar séu þær afbýli frá Syðra- og Ytra-Álandi, sem áður hafi verið Hólastólseign.  Í jarðamati frá 1849-1850 er þetta áréttað, en um landrýmið segir að það sé sæmilegt. Í Nýju jarðabókinni frá 1861 er Hvappur talinn sérstök jörð með tilteknu mati.  Í sóknarlýsingu Valdimars Ásmundssonar frá 1875 segir að Hvappur sé bóndaeign og að henni fylgi mikið landrými og engjar allmiklar.

6. Landamerkjabréf fyrir Hvapp var útbúið 8. maí 1890 og var það þinglesið 26. júní sama ár.  Er merkjum þar lýst með sama hætti og í stefnu hér að framan.  Bréfið er undirritað af umboðsmanni jarðeiganda og samþykkt af umráðamanni Hafursstaða og hreppsnefndarmönnum í Svalbarðshreppi vegna Vatnsenda.  Í fasteignamati N-Þingeyjarsýslu 1916-1918 er Hvappur sagður eyðijörð, en merkjum er lýst með sama hætti og nefndu landamerkjabréfi.

Að landi Hvapps liggur til suðurs og vesturs Vatnsendi, til norðurs eru Hafursstaðir, en Laxárdalur til austurs.  Eins og mál þetta er lagt fyrir dóminn er ekki ágreiningur um greind mörk, en miðað er við hin þinglýstu merki.  Þykir því ekki nauðsynlegt að rekja niðurstöðu óbyggðanefndar að því leyti.  Verður látið við það sitja að gera grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar um eignarréttarlega stöðu landsvæðisins.

Í úrskurði óbyggðanefndar er sögu afmörkunar, ráðstafana að eignarrétti og nýtingar jarðeigna á Álandstungu lýst með svipuðum hætti og hér að framan hefur verið gert, þar á meðal að því er varðar Hvapp.  Segir m.a. frá því að í rituðum heimildum frá 1379 hafi jörðin Áland verið seld klaustrinu á Möðruvöllum fyrir lausafé, sbr. og áður tilvitnuð orð um mörk jarðarinnar millum Hölknár og Sandár.  Segir í úrskurðinum eftirfarandi um þetta:

Þessi lýsing nær mögulega, a.m.k. að einhverju leyti, til þess lands sem í dag er gert tilkall til vegna Hvapps, sem liggur vestan Hölknár... ... Engar heimildir finnast að öðru leyti um eignarhald á nefndu svæði fyrr en liðið er á 19. öld og Hvappur kemur til sögunnar.

Þá eru í úrskurði óbyggðanefndar rakin bréfaskrif Svalbarðsprófasts á árinu 1820 vegna uppbyggingar eyðikotsins Hafursstaða og lýst andmælum hans 20 árum síðar vegna landnýtingar leiguliða á Hafursstöðum og á Hvappi í skjóli Þorsteins Bjarnasonar, eiganda jarðarinnar Bakka.  Jafnframt er sagt frá kaupbréfum sem nefndur Þorsteinn gaf út fyrir Hvappi og Hafursstöðum á árinu 1845, og segir um þetta í niðurstöðukafla úrskurðarins:  Af þeim gögnum sem hér hafa verið rakin virðist Hvappur hafa verið byggður í skjóli heimildar frá Þorsteini Bjarnasyni, sem kallaði til eignarréttar að svæðinu.  Þeirri ráðstöfun var hins vegar andmælt af hálfu prestsins í Sauðanesi sem taldi kirkjuna eiga selför undir eða við Balafell.  Í málinu nýtur ekki við neinna gagna sem rennt geta stoð undir eignarhald Þorsteins að umræddu landsvæði.  Þá verður heldur ekki séð á hvaða grundvelli landið getur hafa komist í eigu kirkjunnar á Sauðanesi en sú ályktun verður ekki dregin af því einu að kirkjan hafi átt sel á svæðinu.  Er þá til þess að líta að til slíks búskapar var jafnan stofnað á svæðum sem öllum var heimilt að nýta.  Loks liggur ekki fyrir að stofnað hafi verið til  nýbýlis að Hvappi á grundvelli nýbýlatilskipunarinnar frá árinu 1776.  Af því leiðir að Hvappur hefur ekki stöðu jarðar að lögum, sbr. umfjöllun um hugtakið jörð í Almennum niðurstöðum óbyggðanefndar.  Eftir að byggð lagðist af árið 1886 hefur Hvappur verið nýttur til beitar eins og annað heiðarland á þessum slóðum.

Að öllu framangreindu virtu hefur ekki verið sýnt fram á að Hvappur sé eignarland, hvorki fyrir nám, löggerninga né með öðrum hætti.  Eins og notkun landsins hefur verið háttað hefur heldur ekki verið sýnt fram á að eignarhefð hafi verið unnin á því.  Í því sambandi skal tekið fram að hagnýting landsins þegar þar var býli á árunum 1840-1886 fyrir setningu laga um hefð nr. 46/1905 gat ekki að þágildandi lögum stofnað til eignarréttar að landinu.  Vísast um þetta til Almennra niðurstaðna óbyggðanefndar.  Þá leiðir rannsókn óbyggðanefndar einnig til þeirrar niðurstöðu að á umræddu landsvæði sé þjóðlenda.

Í málinu gera ekki aðrir kröfu um óbein eignarréttindi að landsvæðinu en eigendur Syðra- og Ytra-Álands.  Fyrir liggur og er ágreiningslaust að landsvæðið hefur verið nýtt til beitar frá þessum jörðum og verður landið því talið í afréttareign þeirra jarða.  Það er því niðurstaða óbyggðanefndar að umrætt landsvæði, svo sem það er afmarkað hér á eftir, teljist til þjóðlendu í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr. laga nr. 58/1998:

Að utan ræður bein lína í vestur úr Hölkná miðjavega milli Hafursstaða og Hvapps í Balafellsbrún svo ræður fjallsbrúnin suður í Vatnsendaskarð en svo ræður lækur sá er úr skarðinu rennur í Hölkná.  Að austan ræður Hölkná.

Sama landsvæði er í afréttareign Syðra- og Ytra-Álands, sbr. 2. mgr. 5. gr. og c-lið 7. gr. sömu laga.

II.

Málsástæður og lagarök stefnanda.

Aðalkröfu sína byggir stefnandi á því að umrætt landsvæði, Hvappur, eins og því er lýst og afmarkað í nefndu landamerkjabréfi frá 8. maí 1890, sé háð eignarrétti/eða sé eign þeirra, sem njóti verndar 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33, 1944, sbr. 10. gr. stjórnskipunarlaga nr. 97, 1995 og 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) sem lögfestur hafi verið með lögum nr. 62, 1994.

Aðalkröfu sína styður stefnandi neðangreindum rökum:

Í fyrsta lagi byggir stefnandi á því að það landsvæði sem afmarkað er í aðalkröfu hafi frá öndverðu verið numið og hafi sá eignarréttur ekki fallið niður síðan og því sé hið umdeilda land háð eignarrétti hans.  Þessu til stuðnings vísar stefnandi til Landnámu, áðurnefndra Sturlubókar, Hauksbókar og Þórðarbókar, er lýsi m.a. landnámi Ketils þistils í Þistilfirði.  Bendir hann á að oft hafi Landnáma verið túlkuð þannig að hún styðji við beinan eignarrétt, t.d. í dómum Hæstaréttar Íslands.

Í öðru lagi byggir stefnandi á því að jörð með þinglýstum landamerkjum sé eignarland og sá er haldi öðru fram hafi sönnunarbyrði fyrir því.  Bendir stefnandi á að hér sé um meginreglu íslensks eignarréttar að ræða og áréttar hann að umrætt landsvæði hafi allt frá landnámi verið undirorpið beinum eignarrétti, enda fari landnámsheimildir í Þistilfirði ekki í bága við landamerkjabréf jarðarinnar.  Þá sé til þess að líta að við landnám hafi landið verið betur gróið og náð lengra inn á heiðar en nú sé.

Stefnandi vísar til þess að landamerkjabréfi fyrir jörðina Hvapp frá árinu 1890 hafi verið þinglýst 26. júní sama ár og fært í landamerkjabók án athugasemda og hafi það ráðið merkjum síðan.  Bendir stefnandi á að við setningu landamerkjalaganna nr. 5, 1882 og síðan laga nr. 41, 1919 hafi það verið ætlan löggjafans að framkvæmdavaldið hefði frumkvæði að því að gengið yrði frá landamerkjum jarðeigna og þau skráð og að leyst yrði úr ágreiningi um merki ef slíkt væri fyrir hendi.  Stefnandi bendir og á að landamerkjabréfið fyrir Hvapp byggi á eldri heimildum, en um það vísar hann til þess sem rakið var úr úrskurði óbyggðanefndar hér að framan.  Staðhæfir hann að þær heimildir fari eigi gegn landamerkjum jarðarinnar, en í því viðfangi bendir hann á sjónarmið er fram komi í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 48/2004, en þar hafi verið talið skipta máli hvort land teldist innan upphaflegra landnáma og hvort að með landið hefði verið farið sem eignarland samkvæmt elstu heimildum.

Í þriðja lagi byggir stefnandi á því að hann hafi farið með ráðstöfun á öllum þeim heimildum/réttindum sem fylgja þeirri eign sem umrætt landsvæði er, en þar á meðal sé beitarréttur svo og önnur þau afréttarnot sem getið er um í úrskurði óbyggðanefndar.  Þá er í stefnu staðhæft að skattar og önnur lögboðin gjöld verið greidd af öllu landinu.

Stefnandi vísar til þess að eignarréttur hans hafi verið virtur af öllum frá ómunatíð, þar á meðal af stefnda, sem m.a. hafi lýst sér í því að hann hafi getað bannað öðrum not eignarinnar.  Eignarréttur hans hafi og verið virtur í öllum viðskiptum, en af þeim sökum sé eignarhald hans einnig byggt á viðskiptavenju.

Í fjórða lagi byggir stefnandi á því að venjuréttur og hefðarreglur leiði til þeirrar niðurstöðu að umrætt landsvæði sé undirorpið eignarrétti í skilningi fyrrnefndrar 72. gr. stjórnarskrárinnar og ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu, en fullur hefðartími sé liðinn frá því þeir tóku að nytja landið.  Áréttar stefnandi að öll afnot og nytjar landsins séu háðar leyfi hans sem landeiganda, enda hafi enginn notað landið með nokkrum hætti nema hann.  Sjónarmiði óbyggðanefndar þess efnis að flokka hefð með lögum sem frumstofn eignarréttar hafi ekki verið hnekkt af Hæstarétti.  Um þetta vísar stefnandi nánar til dóma Hæstaréttar, m.a. frá árinu 1997, bls. 2792, og frá árinu 1999, bls. 28, þar sem eignarhefð hafi verið viðurkennd.  Ennfremur vísar stefnandi til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) frá 9. desember 1994, series A 301 – A, og skrifa fræðimanna um venjurétt.

Í fimmta lagi vísar stefnandi til þess að við mat á því hvort umrætt landsvæði sé eign/eignarréttur í skilningi 72. gr. stjórnarskrárinnar beri að líta til þeirra sjónarmiða sem lögð hafi verið til grundvallar af Mannréttindadómstóli Evrópu.  Bendir hann á að hugtakið eign í skilningi 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við Mannréttindasáttmálann hafi verið túlkað af dómstólum á þá leið að það hafi sjálfstæða merkingu.  Með sjálfstæðri merkingu sé átt við að til komi mat á því hvort í tilteknu máli sé um að ræða eign sem njóti verndar nefndrar 1. gr. og þurfi að kanna hvort svo sé samkvæmt innanlandsrétti þess ríkis sem í hlut eigi.  Skortur á slíkri vernd í landsrétti ráði hins vegar ekki alltaf úrslitum um hvort um eign sé að ræða í skilningi nefndrar 1. gr.  Bendir stefnandi á að um eign í skilningi ákvæðisins geti verið að ræða þótt dómstólar aðildarríkis hafi ekki talið svo vera samkvæmt innanlandsrétti.  Mannréttindadómstóllinn hafi lagt mat á atvik máls í hverju tilviki fyrir sig og lagt áherslu á að úrslitum réði tiltekið heildarmat.  Þannig hafi dómstóllinn bæði litið til staðreynda og lagalegra atriða, en við matið hafi í ákveðnum tilvikum einnig ráðið úrslitum hvernig farið hafi verið með umrædda eign í framkvæmd, sérstaklega í lögskiptum og hvaða traust menn báru til þeirrar framkvæmdar.  Þá hafi framkoma handhafa ríkisvaldsins í garð eigenda einnig skipt máli.  Og í þeim málum þar sem komið hafi verið fram við einstaklinga eða lögaðila sem réttmæta eigendur ákveðinna eigna hafi slík framkoma verið talin vekja ákveðnar væntingar hjá þeim aðilum um löglegt eignarhald sitt á þeim eignum.  Bendir stefnandi á að af þessu megi ráða að afskipti og afskiptaleysi ríkisvaldsins skipti máli við greint sönnunarmat.  Bendir stefnandi einnig á, að þegar tekið sé mið af dómum Hæstaréttar Íslands, en þó sérstaklega Mannréttindadómstóls Evrópu, hafi ríkisvaldið með einum eða öðrum hætti viðurkennt eignarrétt landeigenda að jörðum, t.d. með því að þinglýsa eignaryfirfærsluskjölum athugasemdalaust um áratugaskeið, gera um þær samninga og skattleggja þær, og séu réttmætar og lögmætar væntingar landeigenda verndaðar af þessum ákvæðum, sérstaklega nefndri 1. gr., ef þær eru byggðar á sanngjörnu og réttlætanlegu trausti á réttargerningi, sem tengdur er við eignarréttindi og hafi áreiðanlegan lagagrundvöll.  Máli sínu til stuðnings vísar stefnandi m.a. til dóma Mannréttindadómstólsins (MDE) í máli Papamichaloppulos gegn Grikklandi frá árinu 1993, dóms yfirdeildar MDE í máli fyrrum Grikklandskonungs og fleiri gegn Grikklandi frá árinu 2000, dóms yfirdeildar MDE í máli Beyeler gegn Ítalíu frá árinu 2000, dóms MDE í máli Stretch gegn Bretlandi frá árinu 2003 og dóms yfirdeildar MDE í máli Kopecký gegn Slóvakíu frá árinu 2004.

Stefnandi byggir á því, að verði ekki fallist á að þær eignarheimildir sem hann hafi teflt fram í málinu séu fullnægjandi, sé verið að mismuna eigendum jarða með því að gera aðrar kröfur til þeirra um sönnun en annarra eigenda lands hér á landi. Nægir ekki að áliti stefnanda að vísa til dóma Hæstaréttar Íslands í fyrstu málum um þjóðlendukröfur, þar á meðal þess, að þinglýstir eigendur jarða þurfi að styðja eignarheimildir sínar við enn eldri heimildir. Slík íþyngjandi sönnunarbyrði jafngildi bótalausri sviptingu eignarréttar að áliti hans. Staðhæfir stefnandi að sönnunarkröfur óbyggðanefndar, og þar með stefnda, séu óljósar, ógagnsæjar, ófyrirsjáanlegar og tilviljunarkenndar. Bendir stefnandi á að við slíkri mismunun sé lagt bann í 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og heldur hann því fram að með því sé einnig brotið gegn 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við sáttmálann, en að auki sé um brot að ræða gegn 6. gr. vegna ófullnægjandi rökstuðnings.

Með vísan til alls þessa telur stefnandi að óbyggðanefnd hafi ranglega metið sönnunargögn málsins og ekki beitt lögum um réttarágreining með réttum hætti.  Beri því að ógilda úrskurð nefndarinnar.

Stefnandi byggir á því að hann hafi sannað með málatilbúnaði sínum beinan eignarrétt sinn að umræddu landi, en íslenska ríkið hafi ekki sýnt fram á að það hafi með réttum lögum í samræmi við stjórnarskrána eignast landið. Þvert á móti styðji öll gögn málsins greint eignartilkall hans. Úrskurður óbyggðanefndar sé því rangur og brjóti hann í bága við fyrrgreint eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við Mannréttindasáttmála Evrópu.

Stefnandi gerir í málarekstri sínum og málflutningi ýmsar athugasemdir við úrskurð óbyggðanefndar og þar með röksemdir stefnda. Falla þær í meginatriðum saman við áðurraktar málsástæður og lagarök hans. Stefnandi áréttar m.a. að það sé almenn lagaregla á Íslandi, að eignarréttur að fasteign teljist sannaður með framvísun þinglesinnar eignarheimildar og að frá þeirri reglu verði ekki vikið nema að sá sem véfengir réttmæti eignarheimildarinnar sýni fram á betri rétt sinn eða annarra eða að eignarheimildin sé haldin slíkum göllum að hún verði ekki lögð til grundvallar dómi í máli um eignarréttinn. Telur stefnandi að sú ríka sönnunarbyrði sem óbyggðanefnd leggur á hann með því að krefjast sannana um framsal eignarréttar á landinu allt frá landnámi standist ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar né heldur Mannréttindasáttmála Evrópu, en að auki sé málatilbúnaður stefnda í andstöðu við tilgang löggjafans, sbr. að því leyti 1. gr. laga nr. 58, 1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

Stefnandi áréttar að umrætt landsvæði hafi verið numið í öndverðu og bendir í því sambandi á skýra lýsingu í Landnámu. Hann andmælir því einnig að eignarrétturinn hafi fallið niður á síðari tímum, enda bendi engin gögn til þess að landsvæðið hafi verið einhvers konar almenningur. Þá vísar hann til þess að aldrei hafi verið ágreiningur um eignarrétt þeirra aðila sem hann leiðir rétt sinn frá.

Af hálfu stefnanda er öllum röksemdum um að áðurgreindur Þorsteinn Bjarnason hafi ekki talist réttmætur eigandi að Hvappslandi hafnað, enda nægi ekki andmæli Sauðanesprófasts frá árinu 1820 ein til að hnekkja þeim.  Þá hafi prestur engar athugasemdir haft uppi við sölu jarðarinnar á árinu 1845, en af því megi ráða að ágreiningur aðila hafi á þeim tíma verið til lykta leiddur.

Stefnandi áréttar að framlögð gögn styðji málatilbúnað hans, en umrætt landsvæði sé innan þinglýstra landamerkja og styðjist að auki við náttúruleg landamerki. Landið sé því háð einkanýtingarrétti hans og standist ekki málatilbúnaður stefnda, að á skorti samhengi millum eignarréttar og sögu. Beri af þessum sökum að leggja sönnunarbyrðina á stefnda um tilvist þjóðlendu innan landamerkja Hvapps.

Stefnandi byggir kröfur sínar að síðustu á því að í úrskurði óbyggðanefndar skorti fullnægjandi rökstuðning og fari hann því gegn 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37, 1993, sbr. 16. gr. laga nr. 58, 1998.

Stefnandi byggir varakröfu á sömu sjónarmiðum og fram koma í aðalkröfu.

Um lagarök vísar stefnandi til stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33, 1944 með síðari breytingum, sérstaklega 72. gr. um friðhelgi eignarréttar og jafnræðisreglu 65. gr., til réttarreglna um stofnun eignarréttar, hefðar, réttarvenju og tómlætis, en að auki til þjóðlendulaga, landamerkjalaga, stjórnsýslulaga, réttlátrar málsmeðferðar og jafnræðis borgaranna. Þá vísar hann til Mannréttindasáttmála Evrópu og viðauka hans og til laga nr. 91, 1991 um meðferð einkamála, að því er varðar varnarþing og málskostnað.

Málsástæður og lagarök stefnda.

Af hálfu stefnda, íslenska ríkisins, er á því byggt að Hvappslandið sé svæði utan eignarlanda og teljist því vera þjóðlenda í samræmi við úrskurð óbyggðanefndar, sbr. ákvæði 1. og 2. gr. laga nr. 58, 1998. Telur stefndi fullljóst af heimildum að svæðið hafi aldrei verið undirorpið beinum eignarrétti, og að nýting þess hafi ekki verið með þeim hætti. Að mati stefnda hvílir sönnunarbyrðin ótvírætt á stefnanda, að sýna fram á tilvist beins eignarréttar að svæðinu eða einstökum hlutum þess.

Af hálfu stefnda er um röksemdir vísað til áðurrakins úrskurðar óbyggðanefndar. Í greinargerð og við flutning var og sérstaklega staðhæft að Hvappur hefði ekki stöðu jarðar að lögum, og hefðu engin gögn rennt stoðum undir eignarhald að svæðinu.

Stefndi bendir á að nefndur úrskurður sé byggður á umfangsmikilli upplýsingaöflun og rannsóknum og sé niðurstaðan reist á kerfisbundinni leit að gögnum og skjölum frá málsaðilum sjálfum, en einnig á skýrslum sem gefnar hafa verið fyrir nefndinni. Gerir stefndi niðurstöðu nefndarinnar að sinni til stuðnings sýknukröfunni, þ.e. að við gildistöku laga nr. 58, 1998 hafi landsvæðið talist til afrétta samkvæmt þeirri eignarréttarlegu flokkun lands sem almennt hafi verið miðað við fram til þess tíma.

Stefndi byggir á að því sé ekki lýst í Landnámu hversu langt upp til fjalla og inn til lands landnám á þessu svæði náði.  Er á því byggt að það verði að teljast ólíklegt að land á þessu landsvæði hafi verið numið í öndverðu, einkum með hliðsjón af staðháttum og fjarlægð frá byggð, eða teljist lúta beinum eignarrétti. Bendir stefndi á að samkvæmt dómafordæmum teljist heimildarskortur hvað þetta varðar leiða til þess að álitið sé ósannað að heiðarlönd og öræfasvæði hafi verið numin í öndverðu.  Sé það í samræmi við þá reglu, sem ráðin verði af dómafordæmum Hæstaréttar, að sé deilt um upphaflegt nám lands verði aðeins stuðst við glöggar landfræðilegar heimildir, en heimildarskortur leiði til þess, að álitið sé ósannað að heiðarlönd hafi verið numin í öndverðu, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar í málum nr. 67/1996 (Eyvindarstaðaheiði) og áðurnefndan dóm nr. 48/2004 (Úthlíð).

Stefndi segir að ekki verði annað séð en að réttur stefnanda til hins umþrætta landsvæðis hafi orðið til á þann veg, að það hafi verið tekið til sumarbeitar fyrir búpening og ef til vill annarrar takmarkaðrar notkunar, fyrir utan þann skamma tíma er það var í byggð.

Verði talið að landsvæðið hafi verið numið í öndverðu, byggir stefndi á því að það hafi ekki verið numið til eignar heldur eingöngu til takmarkaðra nota svo sem afréttarnota.  Vísar stefndi til þess að allt frá upphafi Íslandsbyggðar hafi menn ekki eingöngu helgað sér ákveðin landsvæði, sem háð hafi verið beinum eignarrétti, heldur einnig ítök, afrétti og öll önnur réttindi sem einhverja þýðingu gátu haft fyrir afkomu þeirra.  Og meðan landsvæði gáfu eitthvað af sér hafi hagsmunir legið til þess að halda við merkjum réttindanna, hvers eðlis sem þau voru.  Um þetta atriði bendir stefndi m.a. á dóma Hæstaréttar í málum nr. 67/2006 (Skjaldbreiður) og nr. 27/2007 (Grænafjall).

Stefndi segir að það styðji ofannefnd sjónarmið, að til beins eignarréttar hafi ekki stofnast á svæðinu, að fjallskil hafi verið á hendi viðkomandi sveitarfélags, að landsvæðið sé ekki afgirt og þangað hafi búfénaður getað leitað frá öðrum jörðum án hindrana.

Stefndi vísar til þess að tilvitnuð heimild frá 1378 sé óljós, einkum varðandi suðurmörk landsvæðisins, þ.e. upp til landsins.  Bendir stefndi á að fyrstu heimildir um hið umþrætta landsvæði, Hvapp, sé að finna frá manntalsþingi árið 1840.  Í framhaldi af því hafi Hvapps verið getið í jarðatali og jarðamötum og loks hafi landamerkjabréf verið útbúið árið 1890.  Bent er á að Hvappur hafi aðeins verið í byggð um skamma hríð, um og eftir miðbik 19. aldar, og án þess að séð verði að sú búseta hafi verið í skjóli eignarréttar, eða að leitt hafi verið í ljós, að stofnað hafi verið til nýbýlis á grundvelli nýbýlatilskipunarinnar frá 1776.  Af hálfu stefnda er sérstaklega vísað til áðurrakinnar niðurstöðu óbyggðanefndar að Hvappur hafi ekki haft stöðu jarðar að lögum og að engra gagna njóti við sem rennt geti stoðum undir eignarhald fyrrnefnds Þorsteins Bjarnasonar á Bakka að umræddu landsvæði.  Vísar stefndi til þess að ekki verði heldur séð á hvaða grundvelli landið hafi komist í eigu kirkjunnar á Sauðanesi, enda verði ályktun um slíkt ekki dregin af því einu að kirkjan hafi átt sel á svæðinu, líkt og lýst sé í máldagabók Ólafs biskups Rögnvaldssonar frá árinu 1461.

Stefndi byggir á því að þegar framangreind atriði séu öll vegin og metin verði að fallast á með óbyggðanefnd, að rök standi til þess að Hvappssvæðið sé afréttur.

Stefndi byggir á því til vara, að verði talið að greint landsvæði kunni að hafa verið innan landnáms eða undirorpið beinum eignarrétti að hluta eða öllu leyti séu allar líkur á því að slíkt eignarhald hafi fallið niður er svæðið var tekið til takmarkaðra nota, þ.e. afréttarnota.  Og þó svo að talið yrði að til beins eignarréttar hefði stofnast í öndverðu yfir landinu byggir stefndi á að ekkert liggi fyrir um að sá réttur hafi haldist í gegnum aldirnar.

Stefndi bendir á að ekki sé ágreiningur um mörk landsvæðisins heldur um inntak réttinda.  Byggir stefndi á því að þótt landamerkjabréf hafi verið gert fyrir Hvappslandið beri við mat slíkra bréfa að meta gildi hvers þeirra sérstaklega.  Vísar stefndi til þess að með því að gera landamerkjabréf hafi menn ekki einhliða getað aukið við land sitt eða annan rétt, sbr. m.a. niðurstöðu Hæstaréttar í máli nr. 48/2004 (Úthlíð).  Þá verði að líta til þess að landamerkjabréf fela fyrst og fremst í sér sönnun um mörk milli eigna, en í því felist á engan hátt að allt land innan merkja sé óskorað eignarland.  Þrátt fyrir að slíkum bréfum sé þinglýst, þá takmarkist gildi þinglýsingar af því, að ekki sé unnt að þinglýsa meiri rétti en viðkomandi eigi.  Slíku eigendalausu landi geti eingöngu löggjafinn ráðstafað.  Þá sé til þess að líta að sæki landamerkjabréf ekki stoð í eldri heimildir dragi það úr sönnunargildi þess, sbr. til hliðsjónar fyrrgreindan dóm Hæstaréttar.  Bendir stefndi á að við mat á gildi landamerkjabréfsins fyrir Hvapp beri einnig að líta til þess að við gerð þess hafi ekki að öllu leyti verið fylgt reglum um áritanir eigenda aðliggjandi landsvæða.

Stefndi andmælir því að skilyrði eignarhefðar séu fyrir hendi, og vísar þar um til áðurgreindra sjónarmiða um nýtingu lands, staðhátta og eldri heimilda.  Áréttar stefndi að nýting svæðisins hafi í aldanna rás ekki falist í öðru en sumarbeit fyrir búfénað, en hefðbundin afréttarnot geti ekki stofnað til beinna eignarréttinda yfir landi, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar í málum nr. 47/2007 (Bláskógabyggð) og fyrrnefndan dóm nr. 48/2004.

Stefndi hafnar þeim málatilbúnaði stefnanda að réttmætar væntingar geti verið grundvöllur fyrir eignarréttartilkalli á umræddu landsvæði.  Bendir hann á að sú regla hafi verið leidd af Landmannaafréttardómi Hæstaréttar hinum síðari, sbr. mál nr. 199/1978, að löggjafinn sé einn bær til þess að ráðstafa réttindum yfir landsvæði utan eignarlanda.  Landslög þurfi til sölu eigna ríkissjóðs.  Athafnir eða athafnaleysi starfsmanna stjórnsýslunnar geti ekki leitt af sér slík umráð nema sérstök lagaheimild hafi verið fyrir hendi, þ.m.t. að þjóðlenda hafi verið látin af hendi.  Réttmætar væntingar geti því ekki stofnast á þeim grundvelli sem haldið sé fram af hálfu stefnanda.  Þar að auki verði væntingarnar vitanlega einnig að vera réttmætar, þ.e. menn geta ekki haft væntingar til að öðlast meiri eða frekari réttindi en þeir geti mögulega átt rétt á.  Ef því háttar þannig til, líkt og í þessu tilviki, að m.a. heimildir, staðhættir, gróðurfar og nýting lands bendi ekki til beins eignarréttar, geti réttmætar væntingar ekki stofnað til slíkra réttinda.

Stefndi andmælir varakröfu stefnanda með sömu rökum og hér að framan hefur verið lýst.  Stefndi mótmælir því sérstaklega að takmörkuð not geti leitt til þess að fullkominn eignarréttur teljist hafa unnist á grundvelli hefðar, hvort heldur að hluta til eða að öllu leyti.  Vísar stefndi í því sambandi m.a. til gildandi laga nr. 57, 1998 um rannsóknir á nýtingu á auðlindum í jörðu.  Gilda að hans mati ákvæði 3. gr. laganna um landsvæðið, enda um þjóðlendu að ræða, en ekki eignarland, samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar.  Bendir stefndi á að ákvæðið feli í sér að í þjóðlendum séu auðlindir í eigu íslenska ríkisins, nema aðrir geti sannað eignarrétt sinn til þeirra.  Stefnandi hafi ekki sannað slíkan eignarrétt sinn að auðlindum á svæðinu, hvorki fyrir hefð né með öðrum hætti.  Stefndi bendir sérstaklega á það, sem rakið hefur verið hér að framan, að nýting svæðisins hafi verið takmörkuð og að það hafi eingöngu verið nýtt sem afréttarsvæði.  Slík takmörkuð not geti hvorki talist grundvöllur fullra né takmarkaðra eignarráða á svæðinu.

Með vísan til framangreindra röksemda telur stefndi að ekki hafi verið sýnt fram á að niðurstaða óbyggðanefndar í málinu nr. 4/2005, hvað varðar hið umþrætta landsvæði, sé röng.  Bendir stefndi á að ljóst sé að einstakir hlutar svæðisins séu misjafnlega fallnir til beitar.  Beitarsvæði taki þó breytingum, auk þess sem þau séu ekki endilega samfelld.  Landsvæðið verði því talið falla undir skilgreiningu 1. gr. laga nr. 58, 1998: „... landsvæði … sem að staðaldri hefur verið notað til sumarbeitar fyrir búfénað“.  Engin gögn liggi hins vegar fyrir um að landið hafi haft mismunandi eignarréttarlega stöðu og byggir stefndi á því að landsvæðið, svo sem það hafi verið afmarkað í kröfugerð stefnanda, sbr. og það sem segir í niðurstöðu óbyggðanefndar, teljist þjóðlenda í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr., laga nr. 58, 1998.

Að öðru leyti mótmælir stefndi öllum sjónarmiðum og málsástæðum stefnanda, svo sem þeim er lýst í stefnu, en byggir um leið á þeim röksemdum sem lagðar voru til grundvallar í úrskurði óbyggðanefndar frá 29. maí 2007, og krefst þess að hann verði staðfestur.  Verði þannig miðað við að þjóðlendulínan verði dregin með þeim hætti sem í úrskurðinum er lýst.

Um lagarök er af hálfu stefnda vísað til almennra reglna eignarréttar og til þjóðlendulaga nr. 58, 1998.  Þá vísar hann til 72. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33, 1944.  Hann byggir á meginreglum eignarréttar um nám, töku og óslitin not, á meginreglum um eignarráð fasteignareiganda og almennum reglum samninga- og kröfuréttar, svo og á hefðarlögum nr. 14, 1905.  Þá vísar hann til laga nr. 6, 1986 um afréttarmálefni og fjallskil og til eignarréttarreglna Grágásar og Jónsbókar og loks til laga nr. 91, 1991 um meðferð einkamála, þar á meðal málskostnaðarákvæði 129. og 130. gr.

III.

Með lögum Alþingis nr. 58, 1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, sem tóku gildi 1. júlí 1998, var sérstakri stjórnsýslunefnd, óbyggðanefnd, falið að kanna og skera úr um hvaða landsvæði innan íslenska ríkisins teljist til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda, skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur og úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna, sbr. 7. gr. laganna.

Í 1. gr. laganna er þjóðlenda skilgreind sem landsvæði utan eignarlanda þó að einstaklingur eða lögaðilar kunni að eiga þar takmörkuð eignarréttindi.  Í lagagreininni er eignarland skilgreint sem: „Landsvæði sem er háð einkaeignarétti þannig að eigandi landsins fer með öll venjuleg eignaráð þess innan þeirra marka sem lög segja til um á hverjum tíma.“  Þá er afréttur skilgreindur sem: „... landsvæði utan byggðar sem að staðaldri hefur verið notað til sumarbeitar fyrir búfé.“

Fram að gildistöku laga nr. 58, 1998 voru ýmis landsvæði á Íslandi sem enginn eigandi var að.  Með lögunum er íslenska ríkið lýst eigandi þessara svæða, auk þeirra landsréttinda og hlunninda þar sem aðrir eiga ekki, og þau nefnd þjóðlendur.

Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi til nefndra laga, sem nefnd hafa verið þjóðlendulög, segir m.a. að þjóðlendur séu landsvæði sem nefnd hafa verið nöfnum eins og hálendi, óbyggðir, afréttir og almenningur, allt að því tilskildu að utan eignarlanda sé.  Er tilgangur laganna að leysa úr þeirri óvissu sem lengi hefur verið uppi um eignarhald á ýmsum hálendissvæðum landsins.  Eigi er áskilið að landsvæði þessi séu á miðhálendinu og ber eigi að skýra ákvæðið svo þröngt að það geti ekki tekið til landsvæða annars staðar.  Til þess er að líta að þótt land í þjóðlendum sé eign ríkisins samkvæmt framansögðu getur verið að einstaklingar, sveitarfélög eða aðrir lögaðilar eigi þar takmörkuð réttindi, en lögin raska ekki slíkum réttindum.  Þannig skulu þeir sem hafa nýtt land innan þjóðlendna sem afrétt fyrir búfénað, eða haft þar önnur hefðbundin not sem afréttareign fylgja, halda þeim rétti í samræmi við ákvæði laga þar um.  Þjóðlendulögin veita þannig ekki heimild til að svipta menn eign sinni, hvorki eignarlöndum né öðrum réttindum.

Í þjóðlendulögum er ekki að finna sérstakar reglur um það hvernig óbyggðanefnd skuli leysa úr málum, þ.e. hvaða land skuli teljast eignarland og hvað þjóðlenda.  Niðurstaða ræðst því af almennum sönnunarreglum og þeim réttarreglum sem færðar eru fram í hverju einstöku tilviki.  Það eru því grundvallarreglur íslensks eignarréttar sem gilda.

Eins og áður var rakið tilkynnti óbyggðanefnd með bréfi dagsettu 1. mars 2004 þá ákvörðun sína að í samræmi við III. kafla laga nr. 58, 1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta ætlaði hún að taka til umfjöllunar landsvæði á Norðaustur- og Austurlandi, þ. á m. það svæði sem hér um ræðir, í Svalbarðshreppi í Þistilfirði.  Að lokinni málsmeðferð samkvæmt nefndum kafla laganna kvað óbyggðanefnd upp úrskurð sinn hinn 29. maí 2007, sbr. mál nefndarinnar nr. 4/2005.  Varð það m.a. niðurstaðan að umrætt landsvæði, Hvappur, væri þjóðlenda í skilningi 1. gr., sbr. a-lið 7. gr., en að það sama svæði væri afréttareign stefnanda, sbr. ákvæði 2. mgr. 5. gr. og c-lið 7. gr. laga nr. 58, 1998.

Það er álit dómsins að lýst málsmeðferð óbyggðanefndar, sbr. kafli I, liður 1-6 hér að framan, hafi verið í samræmi við fyrirmæli þjóðlendulaga og verður ekki fallist á með stefnanda að form- eða efnisgallar séu á úrskurðinum, þar á meðal að því er varðar meðalhófsreglu stjórnsýslulaga, þannig að varði ógildi hans.  Þykir að þessu leyti mega vísa til hæstaréttarmálsins nr. 48/2004, en þar er það m.a. rökstutt að málsmeðferðin sé eigi andstæð 1. mgr. 70. gr. og 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62, 1994.  Í þessu viðfangi þykir og fært að líta til ákvörðunar Mannréttindadómstóls Evrópu frá 23. september 2008 í máli nr. 46461/06: Örn Bergsson o.fl. gegn Íslandi, en málið varðaði dóm Hæstaréttar í máli nr. 496/2005 um landsvæðin Fjall og Breiðamörk í Öræfum.

Ágreiningsatriði máls þessa varðar samkvæmt framansögðu eignarréttarlega stöðu landsvæðis, sem nefnt er Hvappur, í svonefndri Álandstungu í Þistilfirði.  Um nánari mörk svæðisins vísa málsaðilar til þinglýsts landamerkjabréfs, sem gert var árið 1890.  Krefst stefnandi viðurkenningar á beinum eignarrétti landsins, en verði ekki á það fallist krefst hann viðurkenningar á fullkomnum afnotarétti til hvers kyns gagna og gæða líkt og lýst er í aðal- og varakröfu í stefnu.  Af hálfu stefnda er krafist sýknu, og er um rökstuðning m.a. vísað til úrskurðar óbyggðanefndar.

Um mörk hins umdeilda landsvæðis er samkvæmt framansögðu ekki ágreiningur, en dómari fór á vettvang, ásamt lögmönnum aðila, undir rekstri málsins.

Í úrskurði óbyggðanefndar og í þeim gögnum sem aðilar hafa lagt fram og rakin hafa verið hér að framan er lýst staðháttum og gróðurfari í nefndri Álandstungu.  Segir m.a. að heiðin sé lík öðrum afréttarlöndum Langnesinga og Þistilfirðinga, en yfirleitt sé um að ræða langar og mjóar ræmur inn af heimalöndum sem markist af helstu ám og/eða fjöllum og ásum sem fylgja landmótunarstefnu svæðisins norður/suður.  Landsvæðið nái frá sjó um 40-50 km til suðurs, og allt að Heljardalsfjöllum.  Er Álandstungunni að þessu leyti lýst hér að framan, en fyrir liggur að nafngiftin nær yfir landið milli Hölknár og Sandár frá sjó og inn úr.  Að því er land Hvapps áhrærir er um hallalítið gróið votlendi að ræða, sem liggur að mestu í 200-300 m hæð yfir sjávarmáli.  Rennur Hölkná með svæðinu austanverðu og hækkar það jafnt og þétt til vesturs þar til kemur að austurhlíð Balafells (434 m) þar sem landið tekur að hækka skarpt.

Eigi er um það deilt að gróður hafi náð lengra inn til fjalla á landnámsöld en nú er.  Í fyrrnefndri ritsmíð náttúrufræðings frá 2006 segir um nefnd heiðarlönd að ástand jarðvegs sé almennt gott, en skýringarinnar á því sé ekki síst að leita í vatnsheldum berggrunni og útbreiðslu votlendis, litlum halla lands víðast hvar, víðlendi miðað við fjárfjölda og síðast en ekki síst mikilli snjóþekju á afréttum og í heimalöndum sem hlífi jarðvegi og gróðri mikinn hluta ársins.  Um ástand gróðurs að öðru leyti segir í þessari heimild, að útnesjasvipur einkenni hann, sem komi m.a. fram í því að tegundir sem nær einvörðungu vaxi til fjalla sunnar á landinu, m.a. í snjódældum, sé þarna að finna niðri á láglendi (rjúpnastör, fjallasmári).  Fléttugróður sé og víða mikill í mólendi, m.a. fjallagrös, sem sunnar vaxi aðallega til heiða.  Þá segir að athygli veki hversu lágt yfir sjó mörkin liggi fyrir samfelldan gróður, þ.e. ekki minna en 200-250 m neðar en miðsvæðis á Austurlandi, en þegar náð sé um 400 m hæð yfir sjó sé land víða orðið melar og berar urðir.  Þessu valdi vafalaust, segir í ritsmíðinni, lágur meðalhiti.  Undantekning frá þessu sé Heljardalur og grennd (við Hafralón og sunnan Eyjavatns) þar sem séu falleg gróðurlendi í um og yfir 500 m hæð.

Af hálfu stefnanda er á því byggt að Álandstungan hafi verið numin í öndverðu.  Því til stuðnings vísar hann til landnámslýsingar en auk þess til ákvæða í jarðarbréfi frá árinu 1378 um kaup Álands, þar sem þess er getið að henni tilheyri jarðeign milli Hölknár og Sandár, landeign og fjörugögn.  Er á því byggt að lýsing þessi taki til Álandstungunnar allrar, þar á meðal Hvapps.

Samkvæmt Landnámu námu þrír nafngreindir menn Langanes og Þistilfjörð.  Þeir Ketill þistill og Gunnólfur kroppa námu Langanesið, og sá síðarnefndi land utan Helkunduheiðar.  Þá nam Kolli land þar vestan við, í Kolluvík og Sveinungsvík.  Dómurinn fellst á röksemdir stefnda um að frásögn Landnámu sé óljós um landnámið og mörk þess.  Verður meðal annars ekki ráðið umfram það sem áður sagði hversu langt inn til landsins landnámið hafi náð.  Verða að þessu virtu ekki dregnar með vissu ályktanir um eignarréttarlega stöðu heiðarlanda Þistilfirðinga út frá landnámi, en ekki er þar minnst á Álandstungu eða Hvapp.

Af þeirri heimild sem vísað er til af hálfu stefnanda, jarðarbréfinu frá 1378, en einnig öðrum gögnum, verður ráðið að höfuðbýlið Áland hafi tiltölulega fljótlega eftir kristnitöku komist undir yfirráð kirkjunnar.  Var jörðin m.a. um skeið í eigu Hólastóls.

Tilvitnuð orð í jarðarbréfinu: „... á saugd jord alla iardar eign millum halknar. ok sandar. land gaugn ok fioru gaugn.“ vísa að áliti dómsins til eignarréttar jarðarinnar á landi milli nefndra áa, en eru ekki afdráttarlaus um að hin óskipta Álandsjörð hafi forðum átt allt land á Álandstungu frá fjöru til Heljardalsfjalla.  Getur hið einhliða og takmarkaða orðalag ekki ráðið úrslitum þar um.

Í ljósi þessa, en einnig staðhátta, einangrunar og áður rakinna heimilda, þ. á m. lýsinga í jarðabókum og sóknarlýsingarinnar frá 1875, þar sem m.a. er lýst mörkum landareignar við Grófarós við Sandá og loks með hliðsjón af merkjalínu milli Syðra-Álands og Hafursstaða, þykja líkur fremur standa til að í hinu forna jarðarbréfi sé verið að vísa til óbeinna eignarréttinda.

Stefnandi byggir kröfur sína um beinan eignarrétt á Hvappslandi ekki síst á áðurröktu landamerkjabréfi, sem gert var árið 1890, skömmu eftir að búrekstur lagðist þar af.

Um gildi landamerkjabréfa, og því hvert sé inntak eignarréttar á svæði sem í þeim er lýst, hefur Hæstiréttur Íslands lýst þeirri afstöðu, t.d. í máli réttarins nr. 48/2004, að almennt skipti máli hvort um sé að ræða jörð eða annað landsvæði.  Segir í dómsmáli þessu m.a. að þekkt sé að landamerkjabréf hafi ekki eingöngu verið gerð fyrir jarðir, heldur einnig afrétti, sem ekki tengist sérstaklega tiltekinni jörð.  Ennfremur er í þessum dómi sagt að landamerkjabréf fyrir jörð feli almennt í sér ríkari sönnun fyrir því að um eignarland sé að ræða þótt jafnframt verði að meta gildi hvers bréfs sérstaklega.  Er sagt að það auki almennt gildi landamerkjabréfs sé það áritað um samþykki eigenda aðliggjandi jarða, en að þess verði að gæta að með því að gera landamerkjabréf geti menn ekki einhliða aukið við land sitt eða annan rétt umfram það.  Verði til þess að líta hvort til séu eldri heimildir sem fallið geti að lýsingu í landamerkjabréfi, enda stangist sú lýsing heldur ekki á við staðhætti, gróðurfar og upplýsingar um nýtingu lands.  Rétturinn hefur í síðari dómum áréttað þessa afstöðu, t.d. í fyrrnefndum dómi í máli nr. 496/2005.

Ber við niðurstöðu máls þessa m.a. að hafa allt framangreint í huga.

Það er meginregla í íslenskum rétti að sá sem telur til eignarréttar yfir landi verður að færa fram heimildir fyrir eignartilkalli sínu eða þeirra sem hann leiðir rétt sinn frá.

Fyrir liggur að á 19. öldinni var stofnað til nokkurs búrekstrar á heiðarbýlum á Norðausturlandi.  Eitt þessara býla var Hvappur, en samkvæmt heimildum var það stofnað árið 1840 í fornum seltóftum í Álandstungu í Svalbarðshreppi.  Þessu til staðfestu liggja fyrir áður rakin andmæli Sauðanesprófasts á manntalsþingi, þar sem hann véfengir m.a. eiginlegt eignarhald ábúandans á Bakka á umræddu landsvæði.  Andmælin eru í samræmi við mótbárur prófastsins vegna stofnunar býlis á landsvæði norðar á Álandstungunni rúmum tuttugu árum fyrr, á Hafursstöðum.  Heimildir um Hvappsbýlið er síðar að finna, m.a. í jarðabók frá árinu 1847, í jarðamati frá árinu 1849 og í sóknarlýsingu frá 1875, eins og áður hefur verið rakið.  Að frátöldum þessum heimildum liggur ekkert fyrir um stofnun jarðar að Hvappi eða í hvaða skjóli það var gert.  Verður að þessu virtu og gegn andmælum stefnda hvorki séð, að landið hafi verið byggt af einhverjum sem taldi til eignarréttar að svæðinu, né að gerður hafi verið nokkur reki að því að stofna til nýbýlis á grundvelli nýbýlatilskipunar frá 1776.

Að ofangreindu virtu, en ekki síst þegar litið er til legu þrætulandsins og þeirra atriða sem vísað er til í fyrrnefndum hæstaréttarmálum nr. 48/2004 og 496/2005, er það niðurstaða dómsins að stefnandi hafi ekki leitt sönnur að því að hann eigi beinan eignarrétt að umræddu landsvæði eins og kröfur hans samkvæmt aðal- og varakröfu vísa til.  Því til styrktar er til þess að líta að landsvæðið hefur helst verið nýtt til beitar og er ógirt.  Þá hefur stefnandi ekki greitt af því fasteignagjöld samkvæmt skýrslugjöf hans fyrir óbyggðanefnd.

Að áliti dómsins benda framlögð gögn ekki til annars en að landsvæði þetta hafi verið hluti afréttar og verður að öllu þessu sögðu fallist á röksemdir stefnda um að stefnandi hafi ekki sýnt fram á að Hvappur sé eignarland, hvorki fyrir nám, löggerninga né með öðrum hætti.

Fyrir utan hinn tiltölulega skammvinna búrekstur á Hvappi um og eftir miðbik 19. aldar liggja, eins og áður sagði, engar heimildir fyrir um not landsvæðisins til annars en sumarbeitar.  Hefur stefnandi að áliti dómsins ekki fært fram sönnur á að skilyrðum eignarhefðar á greindu landi hafi verið fullnægt með þeim venjubundnu afréttarnotum sem hann hefur haft af því, ásamt fleiri bændum, sem nýtt hafa það til beitar.  Hefur stefnandi heldur ekki rökstutt frekar þau réttindi, sem varakrafa hans tekur til, eða hann að öðru leyti fært fram heimildir fyrir slíku.

Að þessu virtu ásamt andmælum og röksemdum stefnda, en einnig með hliðsjón af áðurnefndri ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu frá 23. september 2008 í máli nr. 46461/06, verður ekki séð að stefnandi hafi mátt vænta þess að hann ætti nokkur frekari réttindi á þessu landsvæði en hefðbundin afréttarnot.  Verður niðurstaða óbyggðanefndar um að umkrafið landsvæði, Hvappur, sé þjóðlenda því staðfest, en í ljósi kröfugerðar aðila fyrir dómi verður fallist á að sama landsvæði sé í afréttareign stefnanda, en aðrir aðilar hafa ekki lýst kröfum til landsins.

Verður stefndi samkvæmt öllu þessu sýknaður af kröfum stefnanda í máli þessu.  Eftir atvikum þykir rétt að hvor aðili beri sinn kostnað af málarekstrinum.

Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. málflutningsþóknun lögmanns hans, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns.  Með hliðsjón af því að fleiri sambærileg mál, er varða lönd í Þistilfirði, eru á könnu lögmannsins, en einnig með hliðsjón af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 136/2009, er þóknunin ákveðin 864.528 krónur og er þá virðisaukaskattur meðtalinn.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson, héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Stefndi, íslenska ríkið, er sýkn af kröfum stefnanda í máli þessu.

Málskostnaður fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. málflutningsþóknun lögmanns hans, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns, 864.528 krónur.