Hæstiréttur íslands
Mál nr. 395/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
- Sératkvæði
|
|
Miðvikudaginn 15. júlí 2009. |
|
Nr. 395/2009. |
Ákæruvaldið(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. l. nr. 88/2008. Sératkvæði.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. júlí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. júlí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til mánudagsins 10. ágúst 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Eins og fram kemur í hinum kærða úrskurði hafa verið gefnar út þrjár ákærur á hendur varnaraðila vegna meintra brota hans. Ein ákæran 12. maí 2009 er vegna þjófnaðarbrots, sem sagt er framið 13. október 2008 og vegna fíkniefnalagabrots. Þá hefur varnaraðili verið ákærður 13. júlí 2009 fyrir rán, húsbrot og frelsissviptingu sem sögð eru framin 25. maí 2009. Loks hefur hann verið ákærður sama dag fyrir tvö innbrot í íbúðarhús sem hann er sagður hafa framið 31. maí 2009, tveimur dögum eftir að hann losnaði úr gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar þess brots, sem hann er talinn hafa framið 25. maí. Gögn málsins bera ekki með sér að varnaraðili hafi verið ákærður vegna annarra brota, sem nefnd eru. Varnaraðili hefur borið í lögregluskýrslu 1. júní 2009 að hann hafi verið án atvinnu frá því í október 2008. Hann kvaðst þá neyta fíkniefna þrátt fyrir að hafa lokið meðferð 6. apríl 2009. Hann kvaðst fjármagna neyslu fíkniefna með bótum sem hann fái frá Félagsmálastofnun og með innbrotum. Ekkert bendir til að staða varnaraðila sé breytt að þessu leyti.
Með þessum athugasemdum verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sératkvæði
Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttardómara
Varnaraðila hefur nú þrívegis í samfellu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fyrst úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur 1. júní 2009 að varnaraðili skyldi sæta gæsluvarðhaldi á þessum grundvelli til 15. júní 2009. Þann dag gerði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kröfu um framlengingu til 13. júlí 2009 og byggði kröfuna á sama lagaákvæði. Með úrskurði sama dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á kröfuna en markaði gæsluvarðhaldinu tíma til 29. júní 2009. Hæstiréttur staðfesti þennan úrskurð með dómi 22. júní 2009 í máli nr. 337/2009. Hinn 29. júní 2009 gerði lögreglustjórinn kröfu fyrir héraðsdómi um framlengingu á gæsluvarðhaldi varnaraðila til 20. júlí 2009. Með úrskurði sama dag féllst dómurinn á kröfuna en stytti tímann, þannig að fallist var á gæsluvarðhald til 13. júlí 2009. Varnaraðili kærði þennan úrskurð til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá með dómi 3. júlí 2009 í máli nr. 367/2009, þar sem ekki hefði verið staðið rétt að kærunni.
Framangreindir úrskurðir héraðsdóms voru byggðir á því að hjá lögreglu væru til rannsóknar sjö mál um ætluð afbrot varnaraðila. Var sagt að þau hefðu verið framin „að undanförnu“. Flest væru þetta auðgunarbrot, þar af eitt húsbrot, rán og frelsissvipting 25. maí 2009. Þá var einnig vísað til ákæru á hendur varnaraðila sem út hafi verið gefin 12. maí 2009 vegna innbrots og fíkniefnalagabrots 13. október 2008. Gögn málsins benda til þess að hér hafi verið meðtalin brot sem virðast hafa verið talin sem fimm brot sem varnaraðili var grunaður um að hafa framið í þjófnaði 14. október 2008. Ekki virðist hafa verið gefin út ákæra á hendur honum vegna þessara síðast nefndu brota.
Nú liggur fyrir að 13. júlí 2009 voru gefnar út tvær ákærur á hendur varnaraðila. Önnur var gefin út af ríkissaksóknara og varðar brotið 25. maí 2009 sem nefnt var. Hin var gefin út af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna tveggja innbrota í íbúðarhús 31. maí 2009 en þá hafði varnaraðila verið sleppt úr gæsluvarðhaldi sem hann hafði sætt með vísan til a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 vegna hins ætlaða brots 25. maí 2009 samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 27. maí 2009 staðfestum af Hæstarétti 29. maí 2009 í máli nr. 283/2009.
Með vísan til þess sem hér var rakið sem og þess að varnaraðili hefur nú sætt gæsluvarðhaldi í um einn og hálfan mánuð og ekkert liggur fyrir um að hann hafi neytt fíkniefna þann tíma, tel ég ekki unnt að fallast á að skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu lengur uppfyllt til að halda varnaraðila í gæsluvarðhaldi og beri því að fella hinn kærða úrskurð úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. júlí 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að dómurinn úrskurði að X kt. [...], til að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til mánudagsins 10. ágúst 2009 kl. 16:00.
Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur 29. júní sl. hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag til kl. 16 á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Áður hafði ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli fyrrgreindra lagaákvæði í úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-278/2009 og dómi Hæstaréttar frá 22. júní nr. 337/2009 og úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-234/2009.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi unnið að rannsóknum mála þar sem kærði hefur verið grunaður um auðgunarbrot. Flest þessara mála hafi átt sér stað með skömmu millibili líkt og megi sjá í kröfugerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 1. og 15. júní sl. vegna gæsluvarðhalds ákærða. Eitt þessara mála sé vegna ráns, húsbrots og frelsissviptingar sem ríkissaksóknari hafi nú ákært ákærða fyrir með ákæru dagssettri 13. júlí 2009.
Auk þessa máls sem ríkissaksóknari hafi nú höfðað gegn ákærða hafi þegar verið gefin út ákæra af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærða X hinn 12. maí sl. og sé ákæran til meðferðar fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Sé hann þar ákærður fyrir þjófnað í félagi við annan aðila að kvöldi mánudagsins 13. október 2008 með því að hafa brotist inn í verslunina Tölvutækni við Hamraborg í Kópavogi og stolið þaðan tveimur fartölvum og þá sé ákærði einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,44 g af amfetamíni.
Í dag, 13. júlí, hafi verið gefin út önnur ákæra af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærða vegna þjófnaðarbrota sem ákærði hafi verið staðinn að einungis tveimur sólarhringum eftir að ákærða hafði verið sleppt úr gæsluvarðhaldi vegna ránsmálsins sem ríkissaksóknari hafi nú ákært ákærða fyrir. Í síðari ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sé ákærða gefið að sök að hafa brotist í tvö íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði sunnudaginn 31. maí og stolið þaðan ýmsum munum.
Kærði hafi nú verið í gæsluvarðhaldi síðan 1. júní og hafi lögregla upphaflega farið fram á gæsluvarðhald til 29. júní, þar sem talið hafi verið raunhæft að ljúka rannsókn málanna innan þess tíma. Lögregla hafi hins vegar aðeins fengið tveggja vikna úrskurði í bæði skiptin og hafi þess vegna í tvígang þurft að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Nú sé rannsókn málanna lokið og hafi lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út tvær ákærur á hendur ákærða vegna þriggja þjófnaðarbrota, auk fíkniefnalagabrots og ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða vegna fólskulegs ráns, húsbrots og frelsissviptingar.
Með vísan til framangreinds og brotaferils ákærða á undanförnum vikum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að ákærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan málum hans sé ekki lokið.
Ætluð brot sem ríkissaksóknari og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú ákært ákærða fyrir varði við 2. mgr. 226., 231., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæða 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974, en brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga geti varðað allt að 16 ára fangelsi.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga
Kærði er undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geta varðað við 217., 226., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á með lögreglu að líkur séu á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan málum hans sé ekki lokið.
Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, þó þannig að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er og fram kemur í úrskurðarorði, en ekki þykir ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til mánudagsins 10. ágúst 2009 kl. 16:00.