Hæstiréttur íslands

Mál nr. 663/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Mánudaginn 12. desember 2011.

Nr. 663/2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Reynir Logi Ólafsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Greta Baldursdóttir og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. desember 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. desember 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi áfram allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhald verði „án skilyrða“. Að því frágengnu krefst varnaraðili þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. desember 2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að [X], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 kl. 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar skotárás á bifreið [Z], en skotið hafi verið tvívegis á bifreið hans föstudaginn 18. nóvember sl., þar sem hann hafi ekið bifreiðinni í Bryggjuhverfi Reykjavíkur. 

Brotaþoli, [Z], og vitni sem hafi verið farþegi í bifreiðinni, lýsi atvikum þannig að meðkærði [Y], sem nú sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, hafi boðað [Z] á sinn fund að kvöldi föstudagsins 18. nóvember sl. vegna tiltekinnar fíkniefnaskuldar.

Er [Z] og umrætt vitni hafi komið akandi á bifreið [Z] á bifreiðaplani við bílasöluna [...], við [...] í Reykjavík, hafi meðkærði [Y] ekið bifreið sinni í veg fyrir bifreið [Z]. Út úr bifreið [Y] hafi stigið þrír menn, þ.e.  [Y] sjálfur og tveir menn sem hafi hulið andlit sín og hafi annar mannanna verið með haglabyssu í hendi. Hafi [Z] þá reynt að aka bifreið sinni aftur á bak frá mönnunum, en annar mannanna þá skotið úr byssunni og hafi höglin lent á framenda bifreiðarinnar. Eftir þetta hafi [Y] og mennirnir tveir farið inn í bifreið [Y] og ekið mjög greitt á eftir [Z]. Er [Z] hafi komið að hringtorgi við bifreiðaumboð [...] við Sævarhöfða hafi [Y] ekið bifreið sinni upp að bifreið hans og hafi þá verið skotið öðru sinni á bifreiðina, með þeim afleiðingum að afturrúðan mölbrotnaði og hafi m.a. högl hafnað í farþegasæti bifreiðarinnar.

Sunnudaginn 20. nóvember sl. hafi meðkærði [Y] verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hafi [Y] viðurkennt að nokkru aðild sína að málinu. Hann hafi þó sagst ekki hafa vitað að skotvopn hafi verið með í för og ekki tekið eftir því er skotið hafi verið úr byssunni í fyrra skiptið. Þá hafi hann ekki viljað upplýsa lögreglu hverjir hafi verið með honum í umrætt sinn.

Mánudaginn 28. nóvember sl. hafi kærði [X] verið handtekinn grunaður um aðild að málinu og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands 2. desember sl. nr. 644/2011.  Föstudaginn 2. desember sl. hafi meðkærði [B] verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands 6. desember sl. nr. 651/2011. Í gær, miðvikudaginn 7. desember, hafi meðkærði [A] verið handtekinn, grunaður um aðild að málinu og hafi hann nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Í máli þessu liggi fyrir að meðkærði [Y] og kærði [X] hafi verið í miklum símsamskiptum stuttu fyrir skotárásina. Fyrir liggi samkvæmt símagögnum að kærðu [Y], [A] og [X] hafi allir þrír tengst sama sendi við Sævarhöfða í Reykjavík á verknaðarstundu. Þá liggi fyrir framburður um að meðkærði [Y] og kærði [X] hafi átt fund saman rétt fyrir árásina, þar sem [Y] hafi borið upp vandræði sín gagnvart [Z] og óskað eftir aðstoð [X] í málinu. Einnig liggi fyrir að þeir hafi verið saman í felum laugardaginn 19. nóvember á sveitabæ í Borgarfirði.  Fram sé kominn framburður aðila, sem hafi verið með [Y] og [X] föstudaginn 18. nóvember, sem skoðað hafi myndband af fyrri skotárásinni, þess efnis að til greina komi að sá sem skjóti úr byssunni sé kærði [X]. Þeir lögreglumenn sem horft hafi á umrætt myndband telji sig þekkja kærða [X] sem þann aðila sem skjóti úr byssunni.

Við húsleit lögreglu á heimili meðkærða [B] hafi lögregla fundið og lagt hald á m.a. afsagaða haglabyssu og haglaskot. Við rannsókn tæknideildar lögreglu á forhlöðum hinna haldlögðu skothylkja hafi komið í ljós að eitt þeirra sé að útliti og lögun eins og forhlöðin sem fundist hafa á vettvangi.  Lögreglan vinni nú að frekari rannsókn á hinni haldlögðu byssu, bæði m.t.t. fingrafara og þeirra forhlaða sem fundist hafa á vettvangi.

Fram sé komið í málinu að meðkærði [B] hafi verið í símasamskiptum við kærðu [Y] og [X] um það leyti sem árásin hafi átt sér stað. Fyrir liggi að sími kærða [X] hafi tengst sendi sem staðsettur sé við heimili [B] stuttu eftir árásina. Við húsleit lögreglu hafi lögreglan lagt hald á myndavél, þar sem finna megi mynd af [B] og [X], sem tekin hafi verið á heimili [B] stuttu eftir skotárásina. Þá liggi einnig fyrir mynd úr myndavélakerfi Hvalfjarðaganga, um kl. 9:00 að morgni laugardagsins 19. nóvember sl., sem sýni bifreið þá sem kærðu [Y] og [X] hafi verið í á leið sinni á umræddan sveitabæ í Borgarfirði. Fyrir liggi í málinu að kærðu, [B], [Y] og [X], hafi hist á bar í Mosfellsbæ kvöldið fyrir skotárásina. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi hér til rannsóknar afar alvarlegt afbrot, þ.e. lífshættulega skotárás, sem hafi augljóslega verið liður í uppgjöri tveggja manna vegna fíkniefna. Að mati lögreglu sé hér um að ræða afbrot sem framið hafi verið með skipulögðum og verkskiptum hætti af hópi manna sem allir kenni sig við tiltekin skipulögð glæpasamtök.

Kærði [X] hafi í skýrslutöku hjá lögreglu neitað allri aðild að málinu. Hann hafi hins vegar ekki getað gert grein fyrir ferðum sínum 18. nóvember með öðrum hætti en að hafa verið á „þvælingi.”  Hann segist daglega nota amfetamín og Mogadon og segist ekki muna hvar hann hafi verið staddur um kl. 20:00 þetta kvöld.  Hann segist ekkert hafa hitt meðkærða [Y] eftir árásina.

Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í máli þessu, enda sé kærði [X] nú undir sterkum rökstuddum grun um aðild að tilraun til manndráps, þannig að varði við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá sé rannsókn málsins hvergi nærri lokið og því afar brýnt að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, þannig að hann hafi ekki tækifæri til að  torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Kærði [X] sé nú á reynslulausn vegna fyrri dóma fyrir ofbeldisbrot. En hann eigi að baki þó nokkurn sakarferil, hann hafi hlotið m.a. 3 ára fangelsisdóm í mars 2007, fyrir margvísleg ofbeldisbrot, þ. á m. fyrir að hafa klippt fingur af manni, sjá dóm Hæstaréttar í málinu nr. [...]. Honum hafi verið veitt reynslulausn 21. desember 2010, í 2 ár á eftirstöðvum 264 daga refsingar.  Ljóst sé, verði hann sekur fundinn, að með þessu broti hafi hann rofið almennt skilorð reynslulausnar.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði er undir rökstuddum grun um aðild að tilraun til manndráps samkvæmt 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og getur meint brot varðað allt að 16 ára fangelsi. Þá er kærði á reynslulausn vegna fyrri dóms fyrir ofbeldisbrot. Er fallist á það með lögreglustjóra að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærði gangi ekki laus, sbr. a. lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Ber því að ákveða að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Í ljósi rannsóknarhagsmuna er jafnframt fallist á kröfu lögreglustjóra um að kærði verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur, sbr. b.lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. 

                Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

         Kærði, [X], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 kl. 16. Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.