Hæstiréttur íslands

Mál nr. 301/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 4

 

Fimmtudaginn 4. júní 2009.

 

Nr. 301/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

 

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 12. júní 2009 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum verði ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 19. apríl 2009.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 12. júní 2009, kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlað stórfellt fíkniefnabrot.  Þann 18. apríl 2009 hafi lögreglu borist upplýsingar um seglskútu er sigldi eins og í átt til lands.  Hafi sama dag verið fylgst með ferðum þriggja manna á tveimur bílum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir hafi verið með slöngubát með utanborðsvél með sér.  Síðar hafi komið í ljós að tveir af mönnunum og báturinn hafi verið horfnir en einn mannanna hafi verið á ferð um Djúpavog.   

Um kvöldið hafi sést til ferða slöngubátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi.  Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog kom akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi.  Hafi töskur verið teknar út úr bátnum og þeim komið fyrir í bifreiðinni.  Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott.  Við Höfn hafi bifreiðin verið stöðvuð og hafi ökumaður bifreiðarinnar verið X.  Í bifreiðinni hafi verið töskur sem inniheldu um 109 kg af efnum sem hafa gefið svörun hjá tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem fíkniefni; amfetamín, MDMA, hass og marihuana.

Slöngubátnum hafi verið siglt úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi.  Fylgst hafi verið með tveimur mönnum sem höfðu verið um borð í bátnum og hafi þeir síðar um kvöldið verið handteknir á bifreiðinni Y.  Ökumaður hafi verið A og farþegi B. 

X afi borið um hjá lögreglu að hann hafi tekið að sér fyrir meðkærða A að fara með honum í ferð út á land til að sækja þar töskur sem A kvað að innihéldu stera.  Hafi X átt að koma á öðrum bíl en A og hafi átt að taka töskurnar með í bæinn. 

Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð voru. Rannsaka þurfi þætti er snúa að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Gagnaöflun sé í fullum gangi og hafa nú þegar verið sendar út réttarbeiðnir þar sem óskað sé eftir aðstoð erlendra yfirvalda við ýmsa þætti er snúa að rannsókninni. Þá liggi einnig fyrir mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggja fyrir.

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot X.  Nauðsynlegt sé talið að hann sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að hann geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð.  Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að X sæti gæsluvarðhaldi og að hann verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr.  sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

 Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar, enda getur hann torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og hún er fram sett. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 12. júní 2009, kl. 16:00.   

Kærði skal látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.