Hæstiréttur íslands

Mál nr. 7/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 8

 

Föstudaginn 8. janúar 2010.

Nr. 7/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Hjálmar Blöndal hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að honum verði ekki gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                  

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010, kl. 16:00.  Þess er krafist að X verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot er varði ætlaðan innflutning á fíkniefnum hingað til lands.

Þann 11. nóvember sl. hafi lögreglunni borist upplýsingar frá lögreglunni í Kaunas í Litháen þess efnis að tveir Litháískir karlmenn hafi ætlað að flytja inn til landsins rúmlega 10 kg af amfetamíni í bifreið og að þeir myndu ferðast hingað til lands með ferjunni Norrænu. Áætlað hafi verið að þeir kæmu með ferjunni til Seyðisfjarðar þann 12. nóvember sl. Síðar hafi komið í ljós að Litháarnir hafi misst af ferjunni er hún fór frá Færeyjum og urðu þeir strandaglópar þar. Lögreglan í Færeyjum hafi handtekið mennina þann 13. nóvember s.l. og leitað í bifreið þeirra. Við leitina hafi fundist rúmlega 4.200 stk af MDMA töflum og rúmlega 3 kg af amfetamíni og/eða metamfetamíni. Við leitina hafi fundist miði með nafninu Y og íslenskt símanúmer. Við rannsókn málsins hafi komið í ljós að aðili að nafni Y sé skráður fyrir símanúmerinu. Litháarnir tveir sæti nú gæsluvarðhaldi í Færeyjum, en þeir hafi lítið viljað tjá sig um málið við yfirheyrslur hjá lögreglu.

Þann 18. nóvember sl. hafi kona að nafni Z haft samband við skrifstofu ferjunnar Norrænu og spurðist fyrir um Litháana sem sitji í varðhaldi í Færeyjum. Z hafi viljað vita hvenær von væri á þeim til landsins. Hún hafi hringt úr ákveðnu símanúmeri en óskað eftir því að haft yrði samband við sig í annað ákveðið símanúmer. Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að umrædd kona heiti Z og sé kærði X notandi símanúmersins sem hún hafi beðið um að hringt yrði í.

Málið sé talið mjög umfangsmikið en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú unnið að rannsókn málsins hér á landi í samvinnu við lögregluyfirvöld í Færeyjum, í Litháen og með aðkomu Europol. Þá hafi lögregluyfirvöld í Færeyjum einnig verið í samvinnu við yfirvöld í Danmörku en Litháarnir tveir sem sæta gæsluvarðhaldi í Færeyjum áttu viðkomu í Danmörku á leið sinni með fíkniefnin.

Lögreglan hafi á grundvelli úrskurðar héraðsdóms hlustað á símtöl í farsíma ofangreindra aðila.  Við hlustun á síma X hafi komið í ljós að hann ræði um bílstjórana sem sæta nú gæsluvarðhaldi í Færeyjum en X hafi rætt um að þeir sæti nú gæsluvarðhaldi og að sá sem hafi útvegað bílstjórana verði nú að bjarga málunum.

Rannsókn lögreglu beinist nú að því að finna ætlaða skipuleggjendur innflutningsins og hugsanlega móttakendur fíkniefnanna hér á landi, en ætlunin hafi verið að fíkniefnin yrðu flutt hingað til lands. X, Z og Y hafi  öll verið handtekin í gær, þann 5. janúar.

Það sé ætlun lögreglu að X eigi þátt í ofangreindri tilraun til innflutnings á fíkniefnum hingað til lands og að hann hafi staðið að skipulagningu innflutningsins ásamt öðrum erlendum aðilum. Kærði hafi verið yfirheyrður í dag en um afstöðu hans til sakarefnisins og nánar um framburð hans sé vísað til upptöku af framburði kærða sem fylgir með gögnum málsins.  Rannsókn málsins sé á frumstigi en málið sé talið mjög umfangsmikið, framundan séu frekari yfirheyrslur af kærða og fleiri einstaklingum sem kunni að tengjast málinu. Um sé að ræða mjög mikið magn fíkniefna sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu og dreifingu hér á landi.  Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.  Þá sé frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla framundan sem skýrt geti frekar aðdraganda brots kærða.  Rannsaka þurfi nánar fjármál kærða og upplýsa nánar um samskipti hans við mögulega samverkamenn sem kunni að tengjast málinu.  Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann.  Þá geti kærði komið undan gögnum sem sönnunargildi hafi og enn hafi ekki verið lagt hald á.  Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. laganna ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi ef sök sannast.

Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til b liðar 1. mgr. 99. gr.  sömu laga hvað varðar kröfu um einangrun.

Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér er fallist á að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið verknað sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er á frumstigi og er fallist á að kærði geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Þegar litið er til framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga  88/2008, um meðferð sakamála, og er því fallist á kröfu um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði og með vísan til umfangs málsins þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.  Þá er með sömu rökum fallist á að kærði verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 3. febrúar 2010, kl. 16:00.

Kærði skal vera látinn í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.