Hæstiréttur íslands

Mál nr. 456/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Tilhögun gæsluvarðhalds


Fimmtudaginn 22. júlí 2010.

Nr. 456/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hrl.)

Kærumál. Tilhögun gæsluvarðhalds.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stæði, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. júlí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. júlí 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur, allt til föstudagsins 30. júlí 2010 kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

          Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 20. júlí 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, f. [...]

 í Rússlandi, verði gert að sæta áfram einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi hennar stendur, eða allt til föstudagsins 30. júlí 2010 kl. 16. 

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot. Við tolleftirlit 17. júní sl. hafi tollverðir og lögregla fundið um 20 lítra af amfetamínvökva í eldsneytistanki  bifreiðar við komuna til landsins. Samkvæmt áliti lyfjafræðistofnunar sé unnt að útbúa um 250 kíló af neysluhæfu amfetamíni úr hinum haldlagða vökva.

Kærða, sem hafi verið farþegi bifreiðarinnar, neiti allri aðild að málinu.  Hún hafi skýrt frá því að hún hafi komið hingað til lands í boði meðkærðu, sem sé eigandi bifreiðarinnar og ökumaður hennar. Þær hafi verið vinkonur og nágrannar til margra ára og hafi tilgangur ferðarinnar verið að heimsækja Bláa lónið.

Kærða hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna málsins frá 18. júní sl., nú síðast með dómi Hæstaréttar 13. júlí nr. 441/2010 hafi úrskurður héraðsdóms verið staðfestur hvað varðar gæsluvarðhaldið en einangrunarvist í gæsluvarðhaldinu stytt til 20. júlí.

Fram kemur í að rannsókn málsins miði vel og hafi málið m.a. verið unnið með aðstoð þýskra lögregluyfirvalda. Teknar hafa verið skýrslur af aðilum búsettum í Þýskalandi, jafnframt sem framkvæmdar hafi verið húsleitir þar í landi.

Við rannsókn málsins hafi komið fram að maður að nafni Z, f. [...], hafi gefið meðkærðu Y umrædda bifreið um miðjan maí sl.  Þá hafi hann einnig greitt fyrir ferð hennar og kærðu X hingað til lands.  Um hafi verið að ræða vinargreiða. Þá hafi einnig komið fram að meðkærða hafi ekið ofangreindri bifreið sinni, ásamt vinkonu sinni, frá Þýskalandi til Litháen 5. júní sl.  Þar hafi Z tekið á móti þeim. Á hann að hafa tekið við umræddri bifreið og ferðapappírum kærðu Y og X hingað til lands og skilað sólarhring seinna, og þá með þeim fyrirmælum að ekki mætti aka bifreiðinni meira en 300 kílómetra, án þess að taka eldsneyti. Grunar lögreglu að umræddum fíkniefnum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni í Litháen og að Z hafi átt aðild að því. Með dómi Hæstaréttar Íslands 19. október 2006, í máli nr. 420/2006, hlaut umræddur Z fjögurra ára fangelsisrefsingu fyrir að hafa flutt hingað til lands um 2 lítra af amfetamínvökva og brennusteinssýru.

Í greinargerð lögreglustjóra segir jafnframt að lögreglan, með aðstoð Europol, hafi unnið hörðum höndum að því að hafa uppi á Z í því skyni að handtaka hann og yfirheyra í þágu málsins. Þá vinni lögregla að því að kanna hugsanleg tengsl Z við aðila hér á landi. Fyrir liggi einnig að lögreglan þurfi að taka frekari skýrslur af aðilum búsettum í Þýskalandi.

Lögreglustjóri bendir á að kærða sé undir rökstuddum grun um að eiga aðild að innflutningi á gífurlegu magni hættulegra fíkniefna, þannig að varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá sé rannsókn málsins á viðkvæmu stigi og því brýnt að krafan verði tekin til greina, þannig að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda rannsóknina, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála séu uppfyllt í máli þessu og ekkert nýtt komið fram í málinu sem breytt geti því mati.

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 280/2010 hafi kærðu X verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, í einangrun skv. b. lið 1. mgr. 99. gr. og á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. til 30. júlí nk.  Með dómi Hæstaréttar 13. júlí sl., nr. 441/2010, hafi úrskurður héraðsdóms verið staðfestur, en einangrun í gæsluvarðhaldinu stytt til 20. júlí.  Í dóminum segi m.a eftirfarandi:

 „Í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 eru lagðar takmarkanir á heimild til að úrskurða sakborning til þess að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi og lagt bann við að einangrun standi samfleytt lengur en í fjórar vikur nema að uppfylltum tilgreindum skilyrðum.  Þó að þeim skilyrðum sé í sjálfum sér fullnægt í málinu þykir sóknaraðili ekki hafa fært fram fullnægjandi rök fyrir nauðsyn þess að varnaraðili sæti einangrun allan gæsluvarðhaldstímann.“

Í greinargerð lögreglustjóra kemur einnig fram að lögreglustjóri hafi sent réttarbeiðnir til þýskra og litháískra lögregluyfirvalda 16. júlí sl., þar sem óskað hafi verið eftir skýrslutökum af nánar tilgreindum aðilum. Telur lögreglustjóri að kærða kunni að setja sig í samband við umrædda aðila, sæti hún ekki einangrun í gæsluvarðhaldsvist sinni. Með tilliti til rannsóknarhagsmuna málsins sé því afar brýnt að henni verði gert að sæta áfram einangrun í gæsluvarðhaldi. Fram kemur einnig að föstudaginn 16. júlí sl. hafi meðkærðu Y verið gert að sæta gæsluvarðhaldi í einangrun skv. b.-lið 1. mgr. 99. gr. og á grundvelli a.-liðar 1. mgr. 95. gr. til 6. ágúst nk., sbr. úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. 287/2010. Hafi það verið á grundvelli þeirra rannsóknarhagsmuna er varði nýútgefnar réttarbeiðnir.

Vonir standi til þess að þýsk og litháísk lögregluyfirvöld verði búin að afgreiða umræddar réttarbeiðnir fyrir 30. júlí nk., eða þegar gæsluvarðhald kærðu renni út. Lögregla telji því nauðsynlegt að kærða sæti einangrun allan gæsluvarðhaldstímann eða til 30. júlí nk.  En sá tími ætti að duga hinum erlendu yfirvöldum til að ljúka umbeðnum beiðnum. Sömuleiðis eigi lögregla að geta tryggt rannsóknarhagsmuni málsins innan þess tíma.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a.liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 441/2010, sem kveðinn var upp 13. júlí sl., var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, um að kærða skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 30. júlí nk. Einangrun kærðu í gæsluvarðhaldi hennar var í þeim dómi markaður tími til þessa dags. Í rökstuðningi dómsins kemur fram að sóknaraðili hafi ekki fært fram fullnægjandi rök fyrir nauðsyn þess að varnaraðili sætti einangrun allan gæsluvarðhaldstímann.

Í máli þessu hafa nú verið lagðar fram réttarbeiðnir lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til þýskra og litháískra lögregluyfirvalda, dagsettar 16. júlí sl., þar sem óskað er eftir því að tilteknir einstaklingar verði yfirheyrðir sem vitni vegna rannsóknar málsins. Fallist er á það með lögreglu að kærða geti torveldað rannsókn málsins, svo sem með því að hafa áhrif á samseka eða vitni, verði hún leyst úr einangrun áður en erlendum lögregluyfirvöldum gefst færi á að sinna framangreindum réttarbeiðnum. Meint brot kærðu eru sérlega alvarleg og geta varðað allt að 12 ára fangelsi. Í ljósi alvarleika brotsins, svo og með vísan til fyrirliggjandi rannsóknargagna, fellst dómurinn á að nauðsynlegt sé að kærða sæti áfram einangrun, allt til föstudagsins 30. júlí 2010 kl. 16.00.

 Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærða, X, f. [...], skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi hennar stendur, allt til föstudagsins 30. júlí 2010, kl. 16:00.