Hæstiréttur íslands

Mál nr. 261/2010


Lykilorð

  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Kærumál


                                                         

Þriðjudaginn 27. apríl 2010.

Nr. 261/2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 30. apríl 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurður verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 30. apríl 2010 nk. kl. 16. 

Kærða hefur mótmælt gæsluvarðhaldskröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að Y og Z hafi verið stöðvuð í tollhliði við reglubundið eftirlit aðfararnótt 11. apríl 2010 er þau komu til landsins með flugi frá Alicante á Spáni. Við eftirlit tollgæslu hafi fundist í ferðatöskum, sem þau komu með til landsins, um 1765 g af kókaíni. Við skýrslutökur hafi komið fram að símanúmerið [...] tengist þeim aðila sem fékk þau til að fara utan til Spánar til að flytja inn fíkniefni. Þá hafi komið fram, að aðilar hafi notað númerið [...] í samskiptum við framangreint númer sem mun vera í notkun hjá sambýlismanni kærðu, meðkærða Þ. Það hafi einnig komið fram við skýrslutökur að sambýlismaður kærðu hafi gefið þeim fyrirmæli varðandi innflutninginn á töskunum og að kærða hafi aðstoðað þau við að bóka hótelið sem þau gistu á auk þess sem hún hafi verið í samskiptum við aðila á meðan þau dvöldu á Spáni. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að kærða kunni að vera viðriðinn hinn ætlaða innflutning.

Rannsókn málsins sé í fullum gangi og telji lögregla að mál þetta tengist frekari innflutningi á fíkniefnum frá Spáni og fleiri rannsóknum sem nú er unnið að hérlendis og í samvinnu við erlend lögregluyfirvöld. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vinni að rannsókn málsins í samvinnu við Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu en þann 10. og 11. apríl sl. hafi verið lagt hald á tæp 3,5 kg af kókaíni sem reynt var að flytja til landsins í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá Spáni. Þá telji lögregla ljóst að fleiri aðilar tengist hinum ætlaða innflutningi og hafi fleiri aðila grunaða sem enn eigi eftir að handtaka en átta manns hafi setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þá telji lögregla afar líklegt að sú leið sem notuð var við innflutning fíkniefnanna hingað til lands hafi verið notuð ítrekað áður og hafi staðið til að nota hana oftar. Meðal þess sem rannsaka þurfi sé aðdragandi ferða aðila utan og hingað til landsins og tengsl þeirra við kærðu og sambýlismann hennar og hugsanlega aðra vitorðsmenn á Íslandi og/eða erlendis auk annarra atriða.

Þá hafi fundist við húsleit á heimili kærðu og sambýlismanns hennar töluvert magn fíkniefna auk gagna, sem tengi þau við annan aðila sem rökstuddur grunur leikur á að hafi smyglað fíkniefnum hingað til lands í nóvember sl. Það magn fíkniefna, sem lögregla hafi þegar haldlagt, þyki benda til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og háttsemi kærðu kunni að varða við ákvæði 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæði laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Lögregla telji að ætla megi að kærða kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus.

Sé þess krafist að kærðu verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Þá sé þess jafnframt krafist að kærðu verði gert að sæta takmörkunum sbr. a- til f-liða 1. mgr. sömu greinar. Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 173. gr.a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 30. apríl 2010 kl. 16.00.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærða undir rökstuddum grun um að aðild að innflutningi á miklu magni hættulegra fíkniefna. Af gögnum málsins virðist rannsókn málsins vera umfangsmikil. Er fallist á að brýnt sé að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka og vitni en það gæti kærða gert, héldi hún óskertu frelsi sínu. Ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 30. apríl 2010, kl. 16.00.