Hæstiréttur íslands

Mál nr. 651/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 17

 

Þriðjudaginn 17. nóvember 2009.

Nr. 651/2009.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Bragi Björnsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Þá var einnig staðfestur úrskurður héraðsdóms um að hafna breyttri tilhögun gæsluvarðhalds. Hins vegar var talið óheimilt að láta X sæta áframhaldandi einangrun, sbr. 2. mgr. 98. gr. laganna.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærðir eru tveir úrskurðir Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var annars vegar gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur og hins vegar var hafnað kröfu hans um breytta tilhögun gæsluvarðhalds. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega ,,að hinir kærðu úrskurðir verði felldir úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og til þrautavara að kærða verði gert að sæta farbanni.“ Í greinargerð varnaraðila til Hæstaréttar koma fram sérstök mótmæli við því að honum verði gert að sæta frekari einangrun í gæsluvarðhaldi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hinna kærðu úrskurða.

Af forsendum hins kærða úrskurðar um gæsluvarðhald varnaraðila má ráða að hann sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Fallist er á forsendur og niðurstöðu úrskurðarins um að skilyrði séu til þess að hann sæti því áfram. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. október 2009 og verið í einangrun þann tíma. Í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er lagt bann við því að sá sem er í gæsluvarðhaldi sæti einangrun lengur en í fjórar vikur samfleytt, nema sá sem um ræðir sé grunaður um brot sem varðað getur að lögum tíu ára fangelsi. Varnaraðili er grunaður um brot gegn 227. gr. a og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn þessum ákvæðum geta varðað fangelsi allt að átta og sex árum. Með hliðsjón af 2. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga er því óheimilt að láta varnaraðila sæta frekari einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur og er kröfu sóknaraðila um þetta því hafnað. Að öðru leyti verða hinir kærðu úrskurðir staðfestir.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, klukkan 16.

Hinn kærði úrskurður um tilhögun gæsluvarðhalds er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til b. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16:00. Þess er jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Kærði krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að farbanni verði beitt. Til þrautavara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá er kröfu um einangrun mótmælt.

Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 227. gr. a  og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að hann hafi í samvinnu við önnur lögregluembætti, allt frá 10. október sl., haft til rannsóknar ætlað mansal ásamt fleiri brotum sem lögreglan telji að séu hluti af ætlaðri skipulagðri glæpastarfsemi. Sé  kærði grunaður í því máli og hafi hann setið í gæsluvarðhaldi frá 14. október sl. Varðandi frekari málsatvik vísist til fyrri krafna um gæsluvarðhald fyrir dómnum svo og til gagna málsins.

Kærði hafi borið hjá lögreglu að hið ætlaða fórnarlamb mansals, sem kom til landsins þann 10. október sl., hafi komið á hans vegum hingað til lands eftir að þau hafi átt í tölvusamskiptum og að hann hafi beðið þrjá félaga sína að sækja hana í flugstöðina. Þessum fullyrðingum kærða hafni konan algerlega og þvertaki fyrir það að hafa verið í samskiptum við kærða né nokkurn annan hinna meðkærðu fyrir ferð hennar hingað til lands. Fyrir liggi í málinu að símatengingar voru milli símanúmers kærða og konunnar á meðan hún hvarf úr umsjá lögreglu en þrátt fyrir það neiti kærði að hafa verið í samskipti við hana á þeim tíma og að vita hvar hún væri. Þá  liggi jafnframt fyrir í málinu að kærði var í samskiptum við litháískt símanúmer sem meðkærði Y var jafnframt í samskiptum við en það sé það númer sem gögn málsins bera með sér að sé símanúmer aðila í Litháen sem rökstuddur grunur leiki á að tengist málinu. Kærði hafi nú viðurkennt að hafa sótt ætlaðan þolanda mansals til Keflavíkur aðfararnótt 13. október sl. og farið með hana til Reykjavíkur en neitað að greina frá nánari staðsetningum eða atvikum að öðru leyti.

Við húsleit á heimili kærða hafi fundist armbandsúr úr innbroti þar sem mikil verðmæti voru tekin ófrjálsri hendi og jafnframt miklar skemmdir unnar en jafnframt hafi fundist munir úr sama innbroti hjá meðkærðu Y og Z.

Verulegs ósamræmis og ótrúverðugleika gæti í framburði kærða og annarra aðila sem tengist málinu.

Rannsókn máls þessa sé mjög tímafrek og flókin og sé nú á lokastigi. Málið sé mjög umfangsmikið og teygi anga sína víða og telji lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi sem kærði tengist ásamt meðkærðu. Rannsókn málsins hafi verið unnin í nánum samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og sérstaklega við Litháen en fyrir liggi fjöldi gagna þaðan sem unnið sé að því að þýða og varði aðdraganda og forsögu að ferð konunnar hingað til lands. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telji lögreglustjóri að kunni einkum að varða við ákvæði 227. gr. a og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en ætlað brot gegn fyrrgreinda ákvæðinu geti varðað fangelsisrefsingu, allt að 8 árum.

Að mati lögreglu hafi sá grunur styrkst til muna að um verulega skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem kærði tengist. Sé hann talinn einn af forsprökkum ásamt þremur öðrum meðákærðum er nú sitji í gæsluvarðhaldi. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að þessi ætlaða skipulagða glæpastarfsemi tengist litháísku mafíunni og sé kærði einn af þeim aðilum er veiti þeim forystu hér á landi. Vísist nánar um það til hættumarks greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem liggi fyrir í gögnum málsins.

Lögreglustjóri telji að öðru fólki stafi veruleg hætta af kærða en við rannsókn málsins hafi komið í ljós að fólk sé mjög hrætt við hann og sé jafnframt hrætt við að gefa framburð í málinu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá sé kærði af erlendu bergi brotinn og verulegar líkur á að hann reyni að yfirgefa Ísland verði hann ekki látinn sitja í gæsluvarðhaldi. Þá vísi lögreglustjóri jafnframt til þess að meint brot varði helgustu réttindi fólks. Með vísan til alls þessa telji lögreglan nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi. Til stuðnings kröfu sinni um að kærði sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu vísi lögreglustjóri til þess að hætta kunni að leika á að kærði nái til vitna í málinu í gegnum aðila er tengist hinni meintu glæpastarfsemi. Ætla megi að kærði fái aðra aðila til að hefna eða hafa áhrif á framburð vitna áður en málið sé til lykta leitt fyrir dómstólum.

Krafa lögreglu er byggð á b.lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um að hætta sé á, sæti kærði ekki áframhaldandi gæsluvarðhaldi, að hann muni reyna að komast úr landi og ennfremur er krafan byggð á d. lið sömu greinar um að telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Rannsókn málsins hefur beinst að erlendum ríkisborgurum sem lögreglan telur að stundi skipulagða glæpastarfsemi hér á landi m.a. með mansali, vændisstarfsemi og innheimtu svokallaðra verndartolla af samlöndum sínum sem hér eru búsettir. Í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra vegna öryggis þriggja vitna og er niðurstaða matsins að öryggi vitnanna sé ógnað gangi kærði laus. Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á með lögreglustjóra að skilyrði b. og [d.] liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt og verður því krafan tekin til greina eins og hún er fram sett í beiðni og nánar greinir í úrskurðarorði. Fallist verði  jafnframt á kröfu lögreglu um að kærði sæti einangrun.

Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.

X var úrskurðaður í dag til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 2. desember 2009 kl. 16:00. Honum var jafnframt gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Hann krefst þess nú að gæsluvarðhaldinu verði hagað þannig að ekki verði um takmarkanir að ræða samkvæmt c., d. og f. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 eins og fulltrúi lögreglustjóra hefur krafist.

                Af hálfu lögreglustjórans á Suðurnesjum er kröfu kærða mótmælt og þess krafist að tilhögun gæsluvarðhalds fari fram samkvæmt tilvitnuðum ákvæðum.

                Það liggur fyrir í máli þessi að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 vegna gruns um brot gegn 227. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er hagsmunum þeim sem liggja til grundvallar lýst í fyrrgreindum úrskurði um gæsluvarðhald. Með vísan til þess sem þar greinir, og að virtum öllum atvikum málsins, þykir skilyrðum fullnægt til að kærði sæti takmörkunum samkvæmt c., d. og f. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

                Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

ÚRSKURÐARORÐ

            Kærði, X, sæti takmörkunum í gæsluvarðhaldi skv. c., d. og f. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.