Hæstiréttur íslands

Mál nr. 100/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                              

Miðvikudaginn 13. febrúar 2013.

Nr. 100/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson.     

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. febrúar 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hennar, þó eigi lengur en til föstudagsins 8. mars 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili var ákærð 5. febrúar 2013 fyrir sex þjófnaðarbrot, nytjastuld og umferðarlagabrot. Í ákæru er fyrsta brotið sagt hafa verið framið í ágúst 2012 en önnur brot í nóvember og desember sama ár. Þá eru til rannsóknar hjá lögreglu nokkur mál til viðbótar þar sem varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnaðarbrot, líkamsárás, brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot á tímabilinu frá september 2012 til janúar 2013. Að auki er til þess að líta að varnaraðili var 7. desember 2011 dæmd til átta mánaða fangelsisrefsingar, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnaðarbrot. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2013.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt. [...], til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hennar, þó eigi lengur en til föstudagsins 8. mars nk. kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur hinn 13. janúar sl. nr. R-[...]/2013 sem staðfestur hafi verið í Hæstarétti hafi kærðu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til dagsins í dag kl. 16.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi unnið að rannsóknum mála þar sem kærða sé grunuð um hegningar- og umferðarlagabrot. Sé nú rannsókn hluta þeirra lokið og hafi ákæra verið gefin út af lögreglustjóra á hendur kærðu hinn 5. febrúar sl. vegna auðgunar- og umferðarlagabrota.

Önnur mál sem lögregla hafi til rannsóknar og meðferðar séu eftirfarandi:

Mál nr. 007-2013-[...]

Kærða sé grunuð um fíkniefnaakstur aðfaranótt sunnudagsins 13. janúar í tengslum við innbrot A í verslun Sjónvarpsmiðstöðvarinnar í Síðumúla 2 í Reykjavík, en kærða hafi verið stöðvuð í akstri við Stigahlíð í Reykjavík. Matsgerð í málinu hafi ekki enn borist lögreglu.

Mál nr. 007-2013-[...]

Kærða sé grunuð um brot gegn valdstjórninni, ásamt meðkærða A, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 12. janúar sl., að [...]  í húsnæði [...], hótað lögreglumönnum líkamsmeiðingum og lífláti ásamt því að hafa reynt að hrækja á þá á leiðinni á lögreglustöð. Rannsókn málsins sé lokið og verði sent ríkissaksóknara til þóknanlegrar meðferðar á næstu dögum.

Mál nr. 007-2013-[...]

Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudagskvöldið 10. janúar sl., í félagi við meðkærða A, stolið felgu og hjólbarða undan bifreið sem stóð við [...] í Kópavogi. Felgan og dekkið hafi fundist undir bifreið kærðu, [...] -[...], um nóttina.

Mál nr. 007-2013-[...]

Fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 9. janúar sl., í félagi við meðkærða A, stolið þremur felgum og hjólbörðum undan bifreið sem staðið hafi við [...] í Kópavogi. Vitni kvaðst hafa séð er ungt par hafi verið að stela hjólbörðunum undan bifreiðinni [...] og borið þau að annarri bifreið, bifreiðinni [...].  Hann hafi sagt þau hafa horfið á brott á þeirri bifreið er þau hafi orðið þess áskynja að upp hafi um þau komist. Bifreiðin [...] sé í umráðum kærðu. Hjólbarðarnir hafi fundist á og í bifreið X skömmu síðar.

Mál nr. 007-2012-[...]

Kærða sé grunuð um þjófnað, með því að hafa aðfaranótt 9. desember 2012, í verslun 10-11 við Barónsstíg í Reykjavík, stolið vörum að verðmæti 7.300 krónur. Kærða hafi verið staðin af verki og hafi játað sök.

Mál nr. 007-2012-[...]

Kærða sé grunuð um þjófnað, með því að hafa 8. desember 2012, í Urðarapóteki við Vínlandsleið 16 í Reykjavík, í félagi við nafngreinda stúlku, stolið snyrtivörum. Vitni hafi verið að þjófnaðinum og jafnframt sjáist hann á upptöku úr eftirlitsmyndavél. Kærða neiti sök.

Mál nr. 007-2012-[...]

Kærða sé grunuð um þjófnað og líkamsárás, með því að hafa 26 nóvember 2012, í verslun Hagkaups við Spöngina í Reykjavík, stolið vörum úr versluninni að verðmæti 250.247 krónur, en áður en kærða hafi komist á brott með vörurnar hafi lögreglukona á frívakt stöðvað för hennar og hafi kærða í kjölfarið ráðist á hana og kýlt, rifið í hár hennar og hrækt framan í hana. Kærða hafi neitað sök að því er varði þjófnaðinn en játað að hafa kýlt og hrækt framan í konuna.

Mál nr. 007-2012-[...]

Kærða sé grunuð um þjófnað, með því að hafa hinn 1. september 2012, í versluninni Leyndarmál við Hrísteig, í félagi við A, stolið vörum að verðmæti um 65.000 krónur. Myndbandsupptaka liggi fyrir af þjófnaðinum og hafi einstaklingarnir verið endurþekktir sem kærða og A.

Kærða hafi hlotið fjóra dóma. Hinn 2. september 2010 hafi hún í Héraðsdómi Suðurlands dæmd til greiðslu sektar vegna tilraunar til þjófnaðar. Hinn 7. september 2010 hafi hún í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmd í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, vegna þjófnaðarbrota, umferðarlagabrota, fíkniefnalagabrota og brota á lögum um fullnustu refsinga. Hinn 20. maí 2011, hafi kærða verið dæmd í Héraðsdómi Suðurlands til greiðslu sektar vegna brots á lögum um fullnustu refsinga og lögum um ávana- og fíkniefni.  Hinn 7. desember 2011, hafi hún svo verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í 8 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, vegna þjófnaðarbrota.

Við rannsókn mála kærðu hjá lögreglu hafi komið í ljós að hún sé í mikilli neyslu fíkniefna, án atvinnu og hafi ekki fasta búsetu.

Með vísan til framangreinds og brotaferils kærðu á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærða hafi gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við, að hún muni næst hljóta óskilorðsbundinn dóm, og að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærða muni halda áfram brotastarfsemi fari hún frjáls ferða sinna.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Eins og að framan er rakið hefur kærða setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 frá 13. janúar 2013.

Samkvæmt gögnum málsins er kærða undir rökstuddum grun um að hafa gerst sek um fjölmörg hegningarlagabrot og umferðarlagabrot.  Gögn málsins bera með sér að kærða á að baki nokkuð langan sakaferil og hefur fjórum sinnum hlotið fangelsisdóma fyrir hegningarlagabrot, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot frá því í september 2010. Í greinargerð lögreglustjóra er rakin brotastarfsemi kærðu frá því í september sl. og fram til dagsins í dag. Þau brot eru talin varðavið 106. gr., 217. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem og umferðarlagabrot samkvæmt lögum nr. 50/1987. Við brotum þessum liggur fangelsisrefsing sannist sök. Hefur ákæra vegna þessara brota verið gefin út.  Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærða hafi gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við og að ætla megi að kærða muni halda áfram brotastarfsemi, fari hún frjáls ferða sinna. Því er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði  c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88, 2008 séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykja efni til að marka varðhaldinu skemmri tíma en krafist er.

Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp þennan úrskurð.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð: 

Kærða X, kt. [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hennar, þó eigi lengur en til föstudagsins 8. mars nk. kl. 16.00.