Hæstiréttur íslands

Mál nr. 606/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 23

 

Föstudaginn 23. október 2009.

Nr. 606/2009.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Sigurður Sigurjónsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. október 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum næsta dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. október 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. október 2009 klukkan 16, og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.  

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Í greinargerðum sóknaraðila til stuðnings kröfu hans er meðal annars nefnt að varnaraðili sé grunaður um brot sem varða kunni við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þar er þó ekki gefin skýring á því í hverju þetta ætlaða brot hans sé fólgið. Hins vegar er nægilega fram komið að rökstuddur grunur beinist að varnaraðila um brot gegn 227. gr. a. og 248. gr. almennra hegningarlaga. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. október 2009.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. október 2009, kl. 16.00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að skömmu fyrir miðnætti 10. október sl. hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu um borð í flugvél Iceland Express sem hafi verið að koma frá Varsjá, Póllandi, vegna farþega sem hefði verið mjög æstur og ógnandi um borð í vélinni. Hafi umræddur farþegi reynst vera litháísk kona, sem sagðist heita A og hefði hún framvísað „breytifölsuðu“ nafnskírteini því til staðfestingar. Hafi hún verið yfirbuguð af flugliðum og eftir lendingu verið flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Athygli lögreglu hafi vakið að þrír Litháar hafi verið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að taka á móti konunni, en þeir hafi jafnframt spurst fyrir um hana á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja svo og á lögreglustöðinni á Hringbraut, Keflavík. Eftir að konan hafi verið flutt á lögreglustöðina á Hverfisgötu, í Reykjavík, hinn 11. október sl., hafi mennirnir verið þar fyrir utan og verið að grennslast fyrir um hana, en hún hafi virst vera mjög óttaslegin við mennina. Hún hafi því fengið að gista í fangahúsi lögreglu að eigin ósk þar til unnt væri að fá far fyrir hana úr landi, en hún hafi eigi haft fjármuni meðferðis.

Hinn 12. október hafi verið rætt við konuna með milligöngu fagaðila, en lögregla hafi þá haft rökstuddan grun til að ætla að hún kynni að vera ætlað fórnarlamb mansals. Þá hringdi kærði jafnframt þann dag á skrifstofu lögreglustjórans á Suðurnesjum til þess að spyrja um afdrif konunnar. Konan hafi virst vera mjög illa áttuð og ekki vitað hvar í heiminum Ísland væri. Hún hafi borið um það að hafa komið hingað til lands til að stunda vinnu sem henni hafi verið úthlutuð. Að kvöldi 12. október sl. hafi konan yfirgefið þann stað sem lögreglan hafði úthlutað henni og ekkert spurst til hennar fyrr en fimmtudagskvöldið 15. október sl., en þann dag hafi hún verið skráð inn á hótel sem annar maður hafi greitt fyrir hana. Hinn 20. október sl. hafi kærði verið handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum og tveimur konum, grunaður um aðild að ætluðu mansali. Kærði hafi viðurkennt að hafa hringt til lögreglu í því skyni að spyrjast fyrir um afdrif konunnar fyrir aðra menn, Litháa.

Rannsókn máls þessa sé í fullum gangi. Málið hafi orðið sífellt umfangsmeira og teygt anga sína víða og telur lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi. Enn sé verið að rannsaka aðdraganda að ferð  konunnar hingað til lands, bakgrunn og forsögu hennar og tengsl hennar við hugsanlega aðila sem stundi mansal á Íslandi og/eða erlendis auk annarra atriða. Þá telur lögregla rökstuddan grun til að ætla að hið ætlaða mansal sé hluti af mun stærri og umfangsmeiri glæpastarfsemi sem sé skipulögð. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telur lögreglustjóri að kunni einkum að varða við ákvæði 227. gr. a, 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en ætlað brot gegn því ákvæði geti varðað fangelsisrefsingu allt að 8 árum. Lögregla telur að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka og eða vitni, eða gæti komið undan sönnunargögnum gangi hann laus. Lögregla hafi þegar fengið fimm aðila úrskurðaða í gæsluvarðhald og alls handtekið á annan tug grunaðra aðila. Þá muni lögreglan fara í dag fram á gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum mönnum auk kærða ásamt því að óska eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir hinum fimm. Verulegs ósamræmis gæti í framburði kærða og hinna fimm handteknu Litháa svo og þeirra Íslendinga sem lögregla hafi handtekið í gær, 20. október, bæði hvað varði innbyrðis tengsl svo og tengsl við hin fimm handteknu Litháa.

Þess sé krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Þá sé þess jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta takmörkunum sbr. a- til f-liði 1. mgr. sömu greinar.

Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 227. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. október 2009, kl. 16.00.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er í fullum gangi og á viðkvæmu stigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. október 2009, kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.