Hæstiréttur íslands

Mál nr. 726/2017

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
X (Guðbjarni Eggertsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. nóvember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. nóvember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. desember 2017 klukkan 13. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.                                       

 

 

                 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. nóvember 2017.

Héraðssaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði, með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ákærða X, fd. [...], pólskum ríkisborgara, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. desember nk. kl. 16.

Í greinargerð sækjanda kemur fram að héraðssaksóknara hafi borist mál lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærða vegna meints brots á 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Upphaf málsins megi rekja til þess að lögreglu hafi borist upplýsingar frá erlendum tollyfirvöldum um að grunur léki á að í […] bifreiðinni […] væru falin fíkniefni, en bifreiðin hafi verið um borð í ferjunni […] á leið hingað til lands. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið Y. Ferjan hafi komið hingað til lands frá Danmörku að morgni fimmtudagsins 24. ágúst sl. Við skoðun og frumrannsókn lögreglu á bifreiðinni hafi komið í ljós amfetamínvökvi sem hafi virst hafa lekið úr undirvagni bifreiðarinnar. Með heimild héraðsdóms Reykjaness hafi lögregla fengið heimild til að hlusta síma Y og koma fyrir eftirfararbúnaði undir bifreiðinni. Þá hafi lögregla fylgt bifreiðinni eftir þar sem henni hafi verið ekið áleiðis til Reykjavíkur.

Er Y hafi komið til Reykjavíkur hafi hann lagt bifreiðinni við [...] við Suðurlandsbraut í Reykjavík þar sem hann hafi beðið þar til [...] bifreið, sem í voru X, Z, Þ , hafi verið ekið að honum og úr henni hafi Þ komið og sest inn í [...] bifreiðina. Bifreiðunum hafi síðan báðum verið ekið að gistiheimili við [...] í Reykjavík þar sem fjórmenningarnir hafi farið inn. Á leiðinni að gistiheimilinu hafi mátt heyra Y og Z ræða saman m.a. um það hvort leitað hafi verið í [...] bifreiðinni á tollsvæðinu á [...]. Skömmu síðar hafi mennirnir sést fara út og skoða [...]bifreiðina. Að morgni 25. ágúst sl. hafi Z og Þ síðan ekið bifreiðinni um miðborgina og að lokum inn í bílskúr við [...] í Reykjavík þar sem Z og Þ hafi verið handteknir skömmu síðar. Um svipað leyti hafi X komið akandi á [...] bifreiðinni og hafi hann lagt henni utan við [...] til móts við bílskúrinn en þegar hann hafi orðið var við lögreglu hafi hann tekið til fótanna og hlaupið suður [...] þar sem hann hafi verið handtekinn stuttu síðar. Í framhaldi hafi Y verið handtekinn á gistiheimilinu við [...].

Við rannsókn á [...] bifreiðinni hafi komið í ljós að við haldlagningu í framhöggvara bifreiðarinnar hafi verið 1328 millilítrar af amfetamíni en við mælingar lögreglu hafi komið í ljós að höggvarinn rúmar 5240 millilítra. Þá hafi rannsókn lögreglu leitt í ljós að Z og Þ hafi komið hingað til lands, með flugi frá Póllandi þar sem þeir séu búsettir, að kvöldi 24. ágúst sl., þ.e. sama dag og Y hafi komið til landsins með ferjunni. Við yfirferð á hlustunum hafi einnig komið fram að Y hafi átt í símasamskiptum við nokkra aðila meðan hann hafi ekið frá [...] til Reykjavíkur en þeirra á meðal hafi verið Þ. X sé búsettur hér á landi og sé það grunur lögreglu að hann hafi átt að taka á móti mönnunum og vera þeim innan handar með aðstöðu en við rannsókn lögreglu hafi komið í ljós að X sé sá sem pantað hafi herbergi fyrir Y, Z og Þ á gistiheimilinu, hann hafi samkvæmt eigin framburði afnot af bílskúrnum í [...] og þá hafi fundist talstöðvar bæði í [...] bifreiðinni og[...] bifreið X sem talið sé að notaðar hafi verið í samskiptum fjórmenninganna eftir að þeir hafi hist við Hótel [...] að kvöldi 24. ágúst sl.

Fram kemur í greinargerðinni að ákærði hafi neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Hann hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 25. ágúst sl. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þann 22. september hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 606/2017.

Rannsókn málsins sé nú lokið og gefin hafi verið út ákæra á hendur X, dags. 16. nóvember 2017.

Í ljósi ofangreinds sé það mat héraðssaksóknara að ákærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo standi á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans sé til meðferðar.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún sé sett fram.

Niðurstaða dómara:

Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 25. ágúst sl., fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a-lið 1. mgr. 95. gr.laga nr. 88/2008, en frá 22. september sl.  á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, samanber  dóm Hæstaréttar í málinu nr. 606/2017.  Ákæra er gefin út á hendur ákærða í dag 16. nóvember 2017. Fallist er á með héraðssaksóknara að ákærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum hingað til lands sem  ætluð voru til sölu og dreifingar hér á landi. Verður brotið heimfært undir 173. gr. a almennra hegningarlaga og getur háttsemi ákærða varðað allt að 12 ára fangelsi. Telja verður brotið þess eðlis að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er skilyrðum fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi ákærða því fullnægt og verður krafa héraðssaksóknara tekin til greina svo sem í úrskurðarorði greinir.

                Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákærði, X, fd. […], pólskur ríkisborgari, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 14. desember nk. kl. 13.00.