Hæstiréttur íslands
Mál nr. 296/2005
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 4. júlí 2005. |
|
Nr. 296/2005. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili, sem kveðst vera X, líberískur ríkisborgari, skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. júní 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum næsta dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. júní 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. júlí 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að henni verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.
Varnaraðili var áður með dómum Hæstaréttar 21. og 28. júní 2005 dæmd til að sæta gæsluvarðhaldi, en í fyrra sinnið kvaðst hún heita [...].
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. júní 2005.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að kona sem kveðst vera X, fædd [...], með ríkisfang í Líberíu, verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. júlí nk. kl. 16.00 á grundvelli b-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 en til vara að henni verði á grundvelli 110. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 bönnuð för frá Íslandi á sama tíma.
Atvikum málsins er lýst í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 22. júní sl. sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar 28. júní sl. í máli nr. 279/2005. Auk þess sem þar greinir kemur fram í greinargerð rannsóknara að í gær hafi lögreglu borist til viðbótar frumrit fimm falsaðra tékka að andvirði 5.200 bandaríkjadala sem kærða hafi ásamt öðrum nafngreindum aðila viðurkennt að hafa innleyst í Íslandsbanka. Af hálfu rannsóknara er áréttað að ekki sé vitað með vissu hver kærða sé. Vegabréf kærðu sé falsað. Í skýrslu 27. júní sl. hafi hún sagst heita X og vera líberískur ríkisborgari, en enginn gögn staðfesti þessa fullyrðingu.
Rannsóknari telur að fyrir liggi sterkur og rökstuddur grunur um að kærða hafi ásamt umræddum aðila staðið að því að svíkja út verulegar fjárhæðir í bönkum í Reykjavík með innlausn tékka, sem þau hafi falsað frá rótum og jafnframt að svíkja út bíla á bílaleigum bifreiðar í því skyni að taka þær með sér brott af landinu. Hann telur ætluð brot kærðu varða við 1. mgr. 155. og 248. gr. almennra hegningarlaga sbr. 19/1940 svo og h-lið 2. mgr. 57. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Refsing fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. laganna geti varðað allt að 8 ára fangelsi og brot gegn 248. gr. allt að sex ára fangelsi. Hann telur ætluð brot kærðu beinist að hagsmunum að andvirði að minnsta kosti um 11.000.000 kr.
Af hálfu rannsóknara er upplýst að rannsókn málsins sé vel á veg komin þó henni sé enn ekki að fullu lokið. Fyrirhugað sé að höfða mál á hendur kærðu í byrjun næstu viku. Samkvæmt framansögðu megi ætla að kærða muni reyna að komast hjá málsókn með því að hverfa úr landi gangi hún laus. Verði að telja eins og mál þetta liggi fyrir sé farbann ekki til þess fallið að tryggja það að kærða komist ekki af landi brott án vegabréfs til annars lands innan Schengen-svæðisins.
Af hálfu kærðu er kröfu um gæsluvarðhald mótmælt. Hún vísar til þess að málið sé að fullu upplýst og engin ástæða til að halda henni í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna. Hún lýsir því yfir að hún hafi alls ekki í hyggju að yfirgefa landið og vísar til þess að slíkt væri erfiðleikum bundið þar sem hún sé án vegabréfs. Kærða telur að þá ályktun megi draga af dómum Hæstaréttar 28. júní sl. og 21. júní sl. að skilyrðum b-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé ekki fullnægt.
Samkvæmt gögnum málsins er kærða undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem geta varðað hana fangelsisrefsingu samkvæmt 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kærða er erlendur ríkisborgari með engin sérstök tengsl við Ísland. Þá liggur fyrir að kærða hefur villt á sér heimildir með því að nota falsað vegabréf og liggur ekki enn fyrir með vissu hver kærða er. Þykir farbann því ekki fullnægjandi til að tryggja nærveru kærðu meðan mál hennar er til meðferðar hér á landi. Er því fullnægt skilyrðum b-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála til að fallast á kröfu rannsóknara um gæsluvarðhald, eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Skúli Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, með ríkisfang í Líberíu, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. júlí nk. kl. 16.00.
.