Hæstiréttur íslands

Mál nr. 113/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 20

 

Mánudaginn 20. mars 2000.

Nr. 113/2000.

 

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

Inga Þór Arnarsyni

(Enginn)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að I skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Arnljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen.

          Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. mars 2000. Kærumálsgögn bárust réttinum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. mars 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 26. apríl nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Ætla verður að varnaraðili kæri til að fá úrskurð héraðsdómara felldan úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. mars 2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að Inga Þór Arnarsyni, kt. 150581-3979, verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000, kl. 16.00.

[...]

Í máli þessu liggur fyrir að kærði hefur viðurkennt að hafa í félagi við annan nafngreindan mann fjármagnað og staðið að innflutningi og sölu á miklu magni á e-töflum.  Telst því sterkur grunur um að kærði hafi framið brot sem varða geti hann allt að 10 ára fangelsi skv. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þá þykja hafa verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brot kærða séu þess eðlis að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almanna hagsmuna.

Rannsókn málsins er að ljúka og mun málið verða sent ríkissaksóknara fyrir mánaðarmótin eftir því sem fulltrúi lögreglustjóra upplýsir fyrir dóminum.  Telst tímalengd gæsluvarðhalds skv. kröfu lögreglustjóra því eðlileg í því sambandi. 

Með vísan til þess, sem hér hefur verið rakið, þykja uppfyllt skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, þannig að fallast ber á kröfu lögreglustjóra.  Kærði sæti því áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl n.k. kl. 16:00.

Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, Ingi Þór Arnarson, kt. 150581-3979, skal sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000, kl. 16.00.