Hæstiréttur íslands
Mál nr. 667/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 14. október 2014 |
|
Nr. 667/2014 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Snorri Sturluson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. október 2014, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. október 2014, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. nóvember 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærðar úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. október 2014.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 7. nóvember nk., kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að embætti hans hafi til rannsóknar alvarlega líkamsárás X á A, fyrrum sambýliskonu hans, við heimili hennar að [...] í Reykjavík, að morgni laugardagsins 6. september sl. Er lögregla hafi komið á vettvang hafi hún hitt fyrir brotaþola og dóttur hennar, sem skýrt hafi lögreglu frá því að kærði hefði skömmu áður reynt að keyra brotaþola niður. Brotaþoli hafi verið meidd á fæti og hrufluð á hendi. Lögregla hafi þegar hafið leit að meintum árásarmanni og hafi bifreiðin [...] fundist mannlaus við Miðbakka skömmu síðar en X hafi verið handtekinn á [...]hóteli síðar sama dag. Þá hafi lögreglu borist tilkynning um að ökumaður bifreiðarinnar [...] hefði næstum ekið niður gangandi vegfaranda á gangbraut við Sæbraut í Reykjavík þennan sama morgun.
Þá er þess getið að A, brotaþoli málsins, hafi skýrt frá því í skýrslutöku hjá lögreglu að hún hafi orðið vör við kærða rífast við nágrannakonu hennar utan við hús hennar að morgni laugardagsins 6 september sl. Hún hafi horft á þau út um glugga og kærði séð hana og sagst ætla að drepa hana ef hún blandaði lögreglu í málið. Hann hafi síðan kastað skiptilykli í gegnum rúðu á svefnherbergi hennar. Í kjölfarið hafi hún farið út með skiptilykilinn til að ræða við kærða sem hafi verið mjög æstur og farið upp í bifreiðina [...] og ekið á hana, hún hafi dottið og komið sér undan honum en þá hafi hann bakkað og keyrt aftur á hana þar sem hún hafi staðið á gangstétt. Kærði hafi síðan gert þriðju tilraunina en brotaþoli þá komið sér undan bifreiðinni. Segði brotaþoli að kærði hefði sagt að hann ætlaði að drepa hana.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur einnig fram að lögregla hafi rætt við nokkra aðila sem orðið hafi vitni að framferði kæra. Vitni hafi lýst því að þau hafi séð kærða, sem þau hafi kannast við sem X, henda skiptilykli í gegnum rúðu á 2. hæð á [...]. Stuttu síðar hefði brotaþoli komið út með skiptilykilinn og gengið að manninum sem hafi farið upp í bifreið sína og í framhaldi ekið á konuna, bakkað og gert aðra tilraun til að aka á hana aftur strax í kjölfarið. Fram hafi komið hjá vitnum að kærði hafi í tvö til þrjú skipti keyrt á eða gert tilraun til að keyra á brotaþola. Þá hafi komið fram að vitni hefðu heyrt kærða segja við brotaþola að hann ætlaði að drepa hana.
Þá er þess getið að kærði hafi verið yfirheyrður vegna málsins og játi að hafa verið á vettvangi og að hafa kastað skiptilykli inn um rúðu brotaþola. Einnig kannist hann við að hafa í eitt skipti ekið á brotaþola en geti ekki skýrt hvers vegna hann hafi gert það.
Að sögn lögreglustjóra sé rannsókn málsins nú á lokastigi og verði það sent ríkissaksóknara á næstu dögum. Kærði hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 7. september sl., sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar í máli réttarins nr. 593/2014. Þann 12. september sl. hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar þann 17. september sl. í máli réttarins nr. 609/2014. Það sé mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt, enda sé kærði undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn 211. gr., sbr. 20. gr., eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geti allt að 16 ára fangelsi, eða ævilöngu, og sé þess eðlis að almannahagsmunir krefjist gæsluvarðhalds.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða
Með nýlegum dómi Hæstaréttar Íslands frá 17. september 2014 í máli nr. 609/2014 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum til þess að kærði sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Ekkert hefur verið fært fram er breytir þeirri niðurstöðu. Því er fallist á kröfu lögreglustjórans svo sem greinir í úrskurðarorði.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 7. nóvember nk., kl. 16:00.