Hæstiréttur íslands
Mál nr. 168/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Fimmtudaginn 9. apríl 2009. |
|
Nr. 168/2009. |
Ákæruvaldið(Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn X (Gylfi Thorlacius hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. apríl 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. apríl 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, en þó eigi lengur en til föstudagsins 19. júní 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hann verði úrskurðaður í farbann í stað gæsluvarðhalds. Til vara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Samkvæmt b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður sakborningur úrskurðaður í gæsluvarðhald ef kominn er fram rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við og meðal annars megi ætla að hann muni reyna að komast úr landi. Í 1. mgr. 100. gr. laganna er kveðið svo á að í stað gæsluvarðhalds megi dómari banna brottför sakbornings af landinu. Tekið er fram að skilyrði gæsluvarðhalds samkvæmt 1. mgr. 95. gr. þurfi þá að vera fyrir hendi. Í þessum ákvæðum felst að dómari skuli meta hvenær efni eru til að beita gæsluvarðhaldi og hvenær farbann, hið vægara úrræði, teljist nægilegt. Við það mat skiptir máli hversu mikil hætta er talin á að sakborningur muni reyna að koma sér undan málssókn eða fullnustu refsingar með því að fara úr landi. Fallist verður á að tilraun varnaraðila til brottfarar af landinu eftir að hann hafði verið úrskurðaður í farbann, sem lýst er í hinum kærða úrskurði, teljist auka þessa hættu að því er hann varðar. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. apríl 2009.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að dómfellda, X, kt. [...], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar, þó eigi lengur en til föstudagsins 19. júní nk. kl. 16.00.
Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að dómfelldi hafi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-213/2009, 2. apríl s, verið sakfelldur fyrir líkamsárás og rán og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Með yfirlýsingu sem verjandi dómfellda sendi ríkissaksóknara í dag kemur fram að dómfelldi áfrýjar dóminum.
Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 14.-17. október sl. en farbanni vegna þess frá 12. febrúar sl. Nú síðast hafi dómfelldi verið úrskurðaður í farbann til 4. maí nk. með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-115/2009 frá 2. þ.m. Þrátt fyrir að dómfellda hafi verið bönnuð för frá landinu reyndi hann að komast með flugi til Noregs í morgun og hafi hann verið stöðvaður við vopnaleitarhlið flugstöðvar Leifs Eiríkssonar en hann hafi þá verið komin í gegnum vegabréfaeftirlit og teljist því hafa rofið farbann. Dómfelldi sé litháískur ríkisborgari, til að tryggja nærveru hans þykir nauðsynlegt að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur liggur fyrir í máli hans.
Dómfelldi er litháískur ríkisborgari og er ekki vitað til þess að hann tengist fjölskylduböndum við landið. Dómfelli sem sætt hefur farbanni hefur þrátt fyrir það reynt að koma sér úr landi. Þykir því ekki lengur vera óhætt að treysta á það að hann hlíti farbannsúrskurðinum og reyni ekki aftur að komast úr landi. Fellst dómurinn því á þau sjónarmið ríkissaksóknara að nauðsynlegt sé að dómfelldi sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar. Er því fullnægt skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, til þess að verða við kröfu ríkissaksóknara að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Dómfelldi, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar, þó eigi lengur en til föstudagsins 19. júní nk. kl. 16.00.