Hæstiréttur íslands
Mál nr. 340/2007
Lykilorð
- Vinnusamningur
- Uppsögn
- Orlof
- Trúnaðarskylda
|
|
Fimmtudaginn 5. júní 2008. |
|
Nr. 340/2007. |
A. Karlsson ehf. (Heimir Örn Herbertsson hrl.) gegn Sigurði H. Jóhannssyni (Guðmundur B. Ólafsson hrl.) |
Vinnusamningur. Uppsögn. Orlof. Trúnaðarskylda.
S, sem hóf störf hjá AK ehf. á árinu 2002 og gegndi starfi sölumanns eða sölustjóra, sagði upp starfi sínu hjá félaginu 8. maí 2006. Þann 15. júní sama ár gerði AK ehf. starfslokasamning við S þar sem kveðið var á um að félagið óskaði ekki eftir frekari vinnuframlagi S það sem eftir lifði af þriggja mánaða uppsagnarfresti að öðru leyti en til ráðgjafar um einstök verkefni. Með bréfi AK ehf. 24. júlí 2006 tilkynnti félagið að það myndi ekki inna af hendi frekari greiðslu til S þar sem einsýnt væri að hann hefði ráðið sig til starfa hjá samkeppnisaðila félagsins F ehf. Hélt AK ehf. því fram að S hefði unnið við að koma á tengslum milli þess fyrirtækis og viðskiptavina AK ehf. og því brotið við sig trúnað. Deilt var um hvort AK ehf. bæri að greiða S laun í uppsagnarfresti auk orlofs. Í dómi Hæstaréttar kom fram að S hefði fyrst þegið laun frá F ehf. eftir að ráðningarsambandi hans við AK ehf. lauk. Sú trúnaðarskylda sem hvíldi á S á uppsagnarfresti fól ekki í sér bann við að S leitaði sér að starfi, jafnvel hjá samkeppnisaðila, enda var ekki samið sérstaklega um að S réði sig ekki til fyrirtækis í samkeppni við AK ehf. Þá var ekki talið sýnt fram á að S hefði búið yfir sérstakri vitneskju um reksturinn sem teldist til atvinnuleyndarmála í skilningi 2. mgr. 13. gr. laga nr. 57/2005. Þótti jafnframt ósönnuð sú fullyrðing AK ehf. að S hefði eytt tölvugögnum úr tölvu þeirri er S hafði afnot af í starfi sínu. Voru kröfur S samkvæmt þessu því teknar til greina.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 26. júní 2007. Hann krefst aðallega sýknu af kröfu stefnda, en til vara að hún verði lækkuð. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
I.
Málavextir eru í stuttu máli þeir að áfrýjandi er einkahlutafélag sem rekur starfsemi á sviði heildverslunar meðal annars með lækningavörur og eldhúsvörur. Stefndi mun hafa ráðið sig til starfa hjá áfrýjanda á árinu 2002 og starfaði hjá honum til 19. júní 2006. Sinnti hann störfum sölumanns eða sölustjóra á heilbrigðissviði. Skipulagsbreytingar urðu hjá áfrýjanda á vormánuðum 2006 en í apríl það ár var forstjóra áfrýjanda sagt upp störfum og nýr ráðinn. Í kjölfarið sögðu margir starfsmanna áfrýjanda upp störfum, þar á meðal stefndi 8. maí 2006. Fastus ehf. var stofnað í maí 2006 og mun meðal annars hafa stefnt að viðskiptum með sambærilegar vörur og áfrýjandi. Framkvæmdastjóri þess fyrirtækis hafði um það bil tíu árum áður verið framkvæmdastjóri hjá áfrýjanda. Áfrýjandi gerði starfslokasamning við stefnda 15. júní 2006 og er hann tekinn orðrétt upp í hinum áfrýjaða dómi. Þar var meðal annars kveðið á um að áfrýjandi óskaði ekki eftir vinnuframlagi stefnda það sem eftir lifði af þriggja mánaða uppsagnarfresti að öðru leyti en til ráðgjafar um einstök verkefni. Skyldi stefndi fá greidd laun og orlof í uppsagnarfresti auk tilgreindra aukagreiðslna. Áfrýjandi gerði einnig sambærilega starfslokasamninga við fleiri starfsmenn er sögðu upp störfum um svipað leyti. Áfrýjandi greiddi stefnda laun samkvæmt samningnum vegna júní 2006, en tilkynnti honum með bréfi 26. þess mánaðar að yrði staðreynt að stefndi hefði brotið gegn trúnaðarskyldum sínum við áfrýjanda kæmi ekki til frekari greiðslu til stefnda. Hinn 5. júlí 2006 birtist svo frétt í Viðskiptablaðinu þar sem haft er eftir framkvæmdastjóra Fastus ehf. að félagið yrði í samkeppni við áfrýjanda. Tveir fyrrum starfsmenn áfrýjanda hefðu þegar hafið störf hjá hinu nýja félagi og hefði það ráðið til starfa 15 af þeim 20 starfsmönnum sem hætt hefðu hjá áfrýjanda þá um vorið. Með bréfi 24. júlí 2006 tilkynnti áfrýjandi að hann myndi ekki inna af hendi frekari greiðslu til stefnda vegna þess að einsýnt væri að hann hefði ráðið sig til starfa hjá Fastus ehf. og unnið við að koma á tengslum milli þess fyrirtækis og viðskiptavina áfrýjanda. Stefndi kveðst hins vegar ekki hafa tekið ákvörðun um að hefja störf hjá Fastus ehf. fyrr en í ágúst 2006 og ekki hafið þar störf fyrr en að liðnum uppsagnarfresti, eða 1. september 2006. Bréf milli málsaðila og framburður aðila og vitna eru rakin í héraðsdómi.
Stefndi reisir dómkröfu sína á því að hann hafi sinnt starfsskyldum sínum gagnvart áfrýjanda sem beri að greiða honum laun í uppsagnarfresti samkvæmt starfslokasamningi. Málsástæður og lagarök stefnda eru nánar rakin í héraðsdómi og er dómkrafa hans sundurliðuð þar.
Áfrýjandi reisir dómkröfu sína einkum á því að sannað sé að stefndi hafi brotið trúnaðarskyldur gagnvart sér. Verði ekki talið að áfrýjandi hafi fært sönnur á þessa staðhæfingu sé rétt, eins og atvikum máls sé háttað, að slaka á sönnunarbyrðinni eða leggja hana á stefnda. Áfrýjandi vísar einnig til 2. mgr. 13. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins þar sem stefndi hafi haft vitneskju um atvinnuleyndarmál áfrýjanda. Hann heldur því jafnframt fram að stefndi hafi eytt tölvugögnum áfrýjanda. Byggir áfrýjandi á reglum samningaréttar um brostnar forsendur og ákvæðum 30. gr. og 33. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Áfrýjandi hefur uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar vegna tjóns sem hann kveðst hafa orðið fyrir við að missa viðskipti við birgja og viðskiptavild. Áfrýjandi vísar einnig til 25. gr. hjúalaga nr. 22/1928. Þá mótmælir hann sérstaklega kröfu stefnda um greiðslu orlofs og upphafstíma dráttarvaxta.
II.
Eins og að framan er rakið gerði áfrýjandi starfslokasamninga við marga starfsmenn sína á svipuðum tíma, þrátt fyrir að hann teldi sig þá hafa vitneskju um ætluð trúnaðarbrot starfsmanna, en aðspurð um þetta sagði framkvæmdastjóri áfrýjanda fyrir dómi (66): „Já, já. Það var auðvitað ástæðan fyrir því að við ákváðum þarna 19. júní að taka bara og losa okkur við það fólk ef við getum sagt það þannig vegna þess að það var alveg augljóst og af samtölum mínum við birgja m.a., fékk mörg samtöl frá birgjum þar sem þau voru að vinna á móti okkur ...“ Þá er meðal gagna málsins staðgreiðsluyfirlit frá Ríkisskattstjóra er sýnir að stefndi þáði fyrst laun frá Fastus ehf. eftir að ráðningarsambandi hans við áfrýjanda lauk.
Meðan á uppsagnarfresti stóð bar stefndi sömu trúnaðarskyldur við áfrýjanda og með sama hætti og væri hann í starfi. Þær skyldur fólu þó ekki í sér bann við að stefndi leitaði sér eftir starfi, jafnvel hjá samkeppnisaðila áfrýjanda, enda var ekki sérstaklega um það samið að hann réði sig ekki til fyrirtækis í samkeppni við áfrýjanda að liðnum uppsagnarfresti.
Við mat á því hvort um brot á 2. mgr. 13. gr. laga nr. 57/2005 sé að ræða verður meðal annars að líta til þess hversu almenns eðlis viðkomandi upplýsingar eru, á hve margra vitorði þær eru og hversu auðvelt er fyrir utanaðkomandi mann að afla sér þeirra. Fram er komið að ýmsar upplýsingar um vörur áfrýjanda hafi verið aðgengilegar á heimasíðu hans. Ekki hefur verið sýnt fram á að stefndi hafi búið yfir vitneskju um reksturinn sem teljist til atvinnuleyndarmála. Til sönnunar fullyrðingum sínum um að stefndi hafi eytt gögnum úr tölvu er hann hafði afnot af í starfi sínu hefur áfrýjandi einungis vísað til undirritaðrar yfirlýsingar og skýrslu starfsmanns tölvufyrirtækisins Parlogis ehf. fyrir dómi, en það mun vera í eigu sama fyrirtækis og áfrýjandi. Fallist er á með héraðsdómi að ósannað sé að stefndi hafi eytt slíkum gögnum. Samkvæmt öllu framanrituðu er hvorki í ljós leitt að stefndi hafi skýrt frá upplýsingum sem hann var bundinn trúnaði um gagnvart áfrýjanda né brugðist öðrum trúnaðarskyldum sínum við áfrýjanda þannig að honum hafi verið heimilt að stöðva launagreiðslur til stefnda.
Framkomin andmæli áfrýjanda við greiðslu lögbundins orlofs sem kveðið er á um í umræddum starfslokasamningi eru engum haldbærum rökum studd. Því verður hvorki á þau fallist né andmæli áfrýjanda við upphafstíma dráttarvaxta sem miðast við umsamda gjalddaga samkvæmt samningnum.
Samkvæmt öllu framansögðu verður hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Áfrýjanda verður gert að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Héraðsdómur skal vera óraskaður.
Áfrýjandi, A. Karlsson ehf., greiði stefnda, Sigurði H. Jóhannssyni, 100.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júní 2007.
Mál þetta, sem dómtekið var 8. maí 2007, er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Sigurði H. Jóhannssyni, kt. 131162-3919, Daltúni 18, Kópavogi, á hendur A. Karlssyni ehf., kt. 670976-0179, Brautarholti 28, Reykjavík, með stefnu sem birt var 24. október 2006.
Dómkröfur stefnanda eru að stefndi greiði honum 1.167.094 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001, af 484.378 krónum frá 1. ágúst 2006 til 1. september 2006 og frá þeim degi af 1.167.094 krónum til greiðsludags. Krafist er að dæmt verði að dráttarvextir skuli leggjast við höfuðstól á tólf mánaða fresti, í fyrsta sinn 24. júlí 2007 en síðan árlega þann dag. Þá er krafist málskostnaðar samkvæmt mati dómsins.
Dómkröfur stefnda eru að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda og að stefnandi verði dæmdur til að greiða félaginu málskostnað að skaðlausu.
Stefnandi greinir frá málavöxtum á þann veg að hann hafi starfað í lækningatækjadeild hjá stefnda síðan á árinu 2002. Mánaðarlaun hafi verið samkvæmt launaseðlum 450.000 kr. auk bifreiðarhlunninda að fjárhæð 30.378 kr.. Þá hafi aðilar samið um að stefndi greiddi einnig símakostnað stefnanda á uppsagnarfresti eða 4.000 kr. á mánuði.
Sagt er frá því að stefnandi hafi sagt upp störfum hjá stefnda 8. maí 2006 vegna fyrirhugaðra breytinga í rekstri og uppsagnar framkvæmdarstjóra félagsins. Starfslokasamningur hafi verið gerður við stefnanda 15. júní 2006 þar sem ekki hefði verið óskað eftir frekara vinnuframlagi stefnanda á uppsagnarfresti. Samkvæmt starfslokasamningi hafi stefndi skuldbundið sig til að greiða laun á uppsagnarfresti eða til loka ágúst 2006, auk orlofs.
Greint er frá því að hinn 26. júní 2006 hafi stefnandi fengið bréf frá lögmanni stefnda þar sem stefnanda hafi verið tjáð að honum væri óheimilt að ráða sig til starfa hjá samkeppnisaðila stefnda eftir lok uppsagnarfrests og hótað lögbanni á störf hans ef af því yrði. Bréfi þessu hefði lögmaður stefnanda svarað með bréfi til lögmanns stefnanda, dagsettu 14. júlí 2006, en þar segir m.a.:
Umbj. minn sagði upp störfum hjá umbj. yðar A. Karlssyni ehf. og hugðist starfa út sinn uppsagnarfrest, en var ekki gefinn kostur á því þar sem vinnusambandinu var rift einhliða af hálfu umbj. yðar.
Umbj. minn hefur ekki tekið ákvörðun um hvað hann ætlar að taka sér fyrir hendur og því kemur bréf yðar á óvart. Engu að síður er ástæða til að gera athugsemdir við túlkun yðar á réttarstöðu starfsmanna er þeir skipta um starf.
Í bréfinu er vísað til 27. gr. samkeppnislaga (sem er líklega tilvísun til eldri laga) og 13. gr. laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum. Túlkun yðar á umræddri lagagrein er mótmælt enda er lagður of víður skilningur í ákvæðið.
Lagaákvæðinu er fyrst og fremst ætlað að tryggja óheimila nýtingu atvinnuleyndarmála. Almenn vitneskja um starfsemi fyrirtækja, s.s. umboð ofl. fellur ekki þar undir. Upplýsingar um hvaða birgja umbj. yðar á í viðskiptum við telst ekki til atvinnuleyndarmála enda kemur það fram á heimasíðu umbj. yðar hvaða vörumerki hann hefur til sölu, auk þess er hverjum sem er auðvelt að nálgast heimasíðu viðkomandi framleiðanda.
Umbj. minn hefur stjórnarskrárvarinn rétt til að velja sér það starf sem samrýmist hans menntun og reynslu hvort sem það starf telst vera í samkeppni við umbj. yðar eða ekki. Umbj. minn á sjálfstætt val um hvort hann fari til starfa hjá fyrirtæki sem er í samkeppni við umbj. yðar og hvorki er til að dreifa samningum né lagaákvæðum sem geta bannað honum það.
Umbj. minn áskilur sér allan rétt til að krefjast bóta reyni umbj. yðar með einhverjum hætti að takmarka atvinnufrelsi umbj. míns.
Greint er frá því að stefnandi hafi fengið greidd laun vegna júní 2006 samkvæmt starfslokasamningi. Hinn 24. júlí 2006 sendi lögmaður stefnda lögmanni stefnanda hins vegar bréf, en þar segir m.a.:
Eins og áður hefur komið fram telur umbjóðandi minn að umbjóðandi yðar hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart félaginu. Vísast til bréfs dags. 26. júní 2006 þar að lútandi. Felast brotin meðal annars í þátttöku umjóðanda yðar í samkeppni við umbjóðanda minn á uppsagnafresti. Umbjóðandi minn telur einsýnt að umjóðandi yðar hafi ráðið sig til starfa hjá Fastus ehf., sbr. yfirlýsingu stjórnarformanns félagsins á opinberum vettvangi. Þá hafa vitni greint umbjóðanda mínum frá þessum aðgerðum. Ljóst er að háttsemi umjóðanda yðar og nokkurra annarra fyrrverandi starfsmanna umbjóðanda míns, sem áður hefur verið rakin, er til þess fallin að valda félaginu verulegu tjóni. Umbjóðandi minn getur ekki fellt sig við að umjóðandi yðar þiggið laun frá félaginu meðan hann starfar við það að ná með ótilhlýðilegum hætti birgjum og viðskiptavinum umbjóðanda míns.
Með hliðsjón af framangreindu hefur umbjóðandi minn tekið þá ákvörðun að greiða umjóðanda yður ekki frekari laun í uppsagnarfresti. Kemur því hvorki til greiðslu launa næstu mánaðamót né eftir það tímamark. Áunnið orlof verður innt af hendi. Samhliða því að tilkynna framangreint er enn á ný skorað á umjóðanda yðar að láta af aðgerðum sem eru til þess fallnar að skaða hagsmuni umbjóðanda míns. Af hálfu umbjóðanda míns er ítrekaður áskilnaður um frekari aðgerðir.
Með bréfi 31. júlí 2006 svaraði lögmaður stefnanda bréfi lögmanns stefnda frá 24. sama mánaðar, en þar segir:
Mótmælt er harðlega endurteknum ávirðingum um að umbj. minn hafi brotið gegn skyldum sínum í uppsagnarfresti og vekur athygli að þrátt fyrir alvarleika ávirðinganna eru engin rök færð fyrir þeim staðhæfingum. Umgj. minn hefur ekki ráðið sig til starfa hjá Fastus ehf. eins og þér haldið fram, en það skal ítrekað að umbj. mínum er frjálst að ráð sig til starfa hvar sem er eftir að samningssambandi aðila lýkur í lok ágúst.
samkvæmt samningi aðila ber umbj. yðar að greiða umbjóðanda mínum laun fyrir júlí og ágúst auk orlofs og er samningssambandi aðila þá lokið. Hér með er skorað á umbj. yðar að greiða umbj. mínum umsamin laun nú í dag en að öðrum kosti mun umbj. áskilja sér allan rétt til bóta vagna einhlið vanefnda umbj. yðar.
Í stefnu segir að áunnið orlof vegna fyrra orlofsárs hafi verið greitt í lok ágúst en ekki hafi verið greidd orlofslaun vegna maí 2006 til og með og ágúst 2006. Þá segir að stefnandi hafi hafið störf hjá nýjum vinnuveitanda, Fastus ehf., í byrjun september 2006.
Af hálfu stefnda er aðdraganda þessa máls lýst á þann veg að félagið, sem er einkahlutafélag, reki starfsemi á sviði heildverslunar með lækningavörur, eldhúsvörur o.fl. Stefnandi hafi hafið störf hjá félaginu á árinu 2002 og starfað hjá því til 19. júní 2006. Hann hafi sinnt störfum sölustjóra á heilbrigðissviði stefnda.
Þá segir að verulegar breytingar hafi orðið á starfsmannahaldi félagsins í maí 2006. Meirihluti lykilstarfsmanna félagsins hafi sagt upp störfum nánast á sama tíma. Þar á meðal stefnandi, en hann hefði sagt upp með bréfi, dags. 8 maí 2006. Starfslokasamningur hafi verið gerður, sbr. dskj. nr. 4. Þar komi fram að ekki væri óskað eftir starfsframlagi stefnanda frá 19. júní 2006 að öðru leyti en til ráðgjafar um einstök verkefni. Samið hefði verið um að félagið greiddi stefnanda laun í uppsagnarfresti í þrjá mánuði eftir starfslok hans, þ.e. fyrir júní til ágúst 2006. Fengi hann greidd laun annars staðar en frá félaginu skyldu þau dragast frá launagreiðslum í uppsagnarfresti. Þá komi fram að stefnandi skyldi afhenda félaginu við starfslok öll gögn, sem því tilheyrðu og hann hefði undir höndum, t.d. gögn sem nauðsynleg væru til reksturs og uppgjörs þess og til lögbundinnar skýrslugerðar.
Greint er frá því að bæði fyrir og eftir starfslok stefnanda og fleiri lykilstarfsmanna hafi farið að bera á því að birgjar, sem höfðu átt viðskipti við félagið, hættu sem viðskiptavinir hjá því. Á annan tug birgja hefðu hætt viðskiptum við félagið á þessum tíma og flestir þeirra hafið viðskipti við Fastus ehf. Fastus ehf. hafi hins vegar verið stofnað um það leyti sem stefnandi og aðrir lykilstarfsmenn hættu störfum hjá stefnda, A. Karlssyni ehf. Samþykktir Fastus ehf. væru dags. 11. maí 2006, sbr. dskj. nr. 13.
Vísað er til þess að forsvarsmenn stefnda hafi vitað að fyrrum starfsmenn félagsins, þar á meðal stefnandi, hefðu leitað eftir að ná til Fastus ehf. birgjum, sem höfðu verið í áralöngum viðskiptum við stefnda. Stefnandi hefði þannig brotið skyldur sínar gagnvart stefnda og valdið honum tjóni. Ekki væri unnt að réttlæta launagreiðslur til stefnanda á meðan hann leitaðist við að baka stefnda tjóni.
Stefnandi byggir á því að aðilar hafi gert samning um starfslok hans hjá stefnda. Þar komi fram að vinnuframlagi stefnanda á uppsagnarfresti væri hafnað en stefnda bæri að greiða honum laun til loka uppsagnarfrests hinn 31. ágúst 2006. Stefndi hefði ekki staðið við starfslokasamninginn. Í þessu sambandi er vísað til bréfs lögmanns stefnda til stefnanda, dags. 24. júlí 2006, sem áður var greint frá.
Stefnandi hafnar því að ávirðingar þær, sem fram koma í bréfinu frá 24. júlí 2006, eigi við rök að styðjast. Stefnandi hafi ekki starfað fyrir annan aðila á uppsagnarfresti.
Stefnandi vísar til þess að hann eigi rétt á því að ráða sig til starfa hjá nýjum vinnuveitanda og hefja þar störf eftir að uppsagnarfresti lýkur hjá fyrri vinnuveitanda, hvort sem um samkeppnisaðila væri að ræða eða ekki. Engin ákvæði í ráðningarsamningi hans við stefnda kveði á um samkeppnisbann eftir starfslok.
Kröfu sína sundurliðar stefnandi þannig:
Mánaðarlaun vegna júlí 2006 450.000 kr.
Mánaðarlaun vegna ágúst 2006 450.000 kr.
Bifreiðahlunnindi v/júlí 2006 30.378 kr.
Bifreiðahlunnindi v/ágúst 2006 30.378 kr.
Orlof frá maí til og með ágúst 2006 198.338 kr.
Símakostnaður vegna júlí og ágúst 2006 8.000 kr.
Höfuðstóll 1.167.094 kr.
Stefndi byggir á því að stefnandi hafi brotið trúnaðarskyldur gagnvart félaginu. Stefnda hefði því verið heimilt að stöðva launagreiðslur til stefnanda. Stefndi vísar til ákvæða 2. mgr. 13. gr. laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins nr. 57/2005 í þessu sambandi.
Þá reisir stefndi kröfur sínar á því að stefnandi hafi brotið á félaginu með meðferð sinni á tölvupósti í eigu félagsins.
Stefndi byggir á því að stefnandi hafi með hátterni sínu valdið stefnda verulegu fjárhagstjóni. Gagnkrafa væri gerð á hendur stefnanda til skuldajafnaðar sem nemi heildarfjárhæð dómkröfu stefnanda samkvæmt 28. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.
Byggt er á því að stefnandi hafi ráðið sig til Fastus ehf. meðan á uppsagnarfresti hans stóð. Vísað er til yfirlýsingar stjórnarmanns Fastus ehf. í viðtali við Viðskiptablaðið 5. júlí 2006. Þá er byggt á því að ákvæði 30. gr. og 33. gr. laga nr. 7/1936 leiði til þess að sýkna beri stefnda af öllum kröfum stefnanda.
Stefnandi gaf skýrslu fyrir rétti. Hann sagði m.a. að hann hefði hafið störf hjá stefnda í janúar 2002. Starfssvið hans hafi verið sölumennska í lækningatækjadeild.
Stefnandi sagði að í lok apríl 2006 hafi verið tilkynnt að stefndi og Besta myndu sameinast. Í kjölfarið hefði Haraldi, framkvæmdastjóra stefnda, verið sagt upp. Hafi það haft gríðarleg áhrif á fyrirtækið. Í framhaldi af því hafi margir af starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp, en hann hefði sagt upp aðeins seinna. Hann hefði einfaldlega ekki haft áhuga á að vinna þarna lengur. Ekki hefði verið um samantekin ráð að ræða.
Stefnandi sagði að uppsagnarfrestur hans hjá stefnda hefði verið þrír mánuðir og hafi hann ætlað að vinna út uppsagnarfrestinn, en um það hefði verið rætt að hann ynni til 1. september.
Eftir uppsögnina sagðist stefnandi hafa haldið störfum áfram. Hinn 19. júní hafi Linda, núverandi forstjóri stefnda, boðað hann á fund og boðið honum starfslokasamning sem hann hefði þegið. Hafi honum verið fylgt að tölvunni, sem hann vann við, og látinn taka sína persónulegu muni og síðan hafi honum verið fylgt út. Forstjórinn hefði samið við hann um það að hann yrði tiltækur í sérverkefni ef á þyrfti að halda.
Vísað var til þess að af hálfu stefnda hefði hann verið ásakaður um að hafa hreinsað út tölvupóst varðandi mikilvæg samskipti við birgja. Stefnandi kvaðst ekki hafa gert það. Honum hefði ekki dottið í hug að gera það. Hann hefði verið í vinnunni og hefði átt að vinna hjá stefnda til 1. september. Fjarstæð væri að hann hefði eytt tölvupósti sem hann þurfti að nota daglega.
Spurt var, hvort honum væri kunnugt um hvernig tölvumálum hefði verið háttað hjá stefnda. Stefnandi kvaðst þekkja til þeirra í grófum dráttum. Tölvan hans hefði verið stillt á þann veg að hún hefði fært sjálfkrafa tölvupóstinn í „átarkí“ þar sem gögnunum var pakkað saman og geymd um tíma. Þá hafi „back-up“ verið tekið af öllu kerfinu á ákveðnum fresti. Gögnin hefðu verið flutt sjálfkrafa frá einni möppu yfir í aðra. Maður hefði haft sitt inbox og þar undir verið ákveðnar möppur s.s. flokkar birgja o.fl. Á ákveðnum tímapunkti, sem stillt væri á, þá hafi tölvan „átóarkíað“ inboxið, tæmt þessi hólf og flutt það eitthvað annað, hann viti reyndar ekki hvert. Efnið væri aðgengilegt á þeim stað.
Stefnandi sagði að grunnmenntun sín væri líffræði og væri hann með fagmanns-menntun í lífeðlisfræði.
Spurt var, hvort ekki hefði verið djarft af honum að segja upp störfum. Stefnandi kvaðst ekki hafa haft neinar áhyggjur af því að hann fengi ekki aðra vinnu. Mikil eftirspurn væri eftir fólki sem hefði menntun á borð við hans og vildi starfa við sölumennsku.
Spurt var, hvort hann hefði kannað vinnumarkaðinn í þessu sambandi. Stefnandi kvaðst aðeins hafa heyrt í keppinautum sínum á markaðinum og hafi sama hljóðið verið í þeim. Hann hafi ekki þurft að hafa neinar áhyggjur.
Spurt var, hvort honum hefði verið boðin vinna. Stefnandi sagði að svo hefði ekki beinlínis verið.
Spurt var, hvar hann starfaði í dag. Stefnandi kvaðst í dag starfa hjá Fastus ehf.
Spurt var, hvenær komið hafi til að hann færi þangað. Stefnandi kvaðst hafa sagt upp 8. maí. Sennilega í lok maí hafi honum verið boðinn vinna hjá Fastus ehf. Hafi hann tekið sér langan tíma til að hugsa málið og ekki ráðið sig hjá Fastus ehf. fyrr en í ágúst til að starfa hjá Fastus ehf. hinn 1. september eftir lok starfslokasamningsins.
Spurt var, hvort hann hefði tekið ákvörðun um, hvar hann færi að vinna, á þeim tíma, sem hann starfaði hjá stefnda á starfslokafrestinum, áður en honum var fylgt út. Stefnandi kvað svo ekki hafa verið.
Vísað var til að af hálfu stefnda væri haldið fram að hann hefði haft samband við birgja og hafi náð viðskiptasamböndum af stefnda sem hefðu farið til Fastus ehf. Spurt var hvort hann kannaðist við það. Stefnandi kvaðst ekki kannast við það.
Spurt var, hvort hann hefði í uppsagnarfrestinum, haft samband við „þessa erlendu aðila“ með það í huga að ná viðskiptasamböndum. Stefnandi neitaði því.
Spurt var, hvort einhver fyrirtæki hefðu verið komin í viðskipti við Fastus ehf. þegar hann hóf störf hjá félaginu. Stefnandi sagði að svo hefði verið auk þess sem einhver hefðu verið á leiðinni.
Spurt var, hvort af hálfu stefnda hefði verið óskað eftir aðstoð hans eða upplýsingar frá honum, eftir að hann hætti störfum þar. Stefnandi kvað svo ekki hafa verið.
Stefnandi sagði að stærstu viðskiptavinir stefnda væru Landspítalinn og aðrar heilbrigðisstofnanir. Spurt var, hvers vegna þessar stofnanir hefðu haft samband við hann eftir að hann hætti störfum hjá stefnd. Stefnandi sagði að það hefði verið vegna þess að þessar stofnanir hefðu haft samband við stefnda og stefndi ekki getað orðið þeim að liði á þeim tíma og hefði þá verið haft upp á heimasíma hans og hringt til hans. Hafi hann þá vísað á Guðmund Jónsson tæknimann, sem þá var enn að vinna hjá stefnda.
Spurt var, hvort hann hefði í starfi sínu búið yfir atvinnuleyndarmálum. Stefnandi kvað svo ekki hafi verið. Hann hefði búið yfir tækniupplýsingum um þau tæki sem hann var að selja og meðhöndla. Allir vissu að þessi tæki væru notuð hjá Landspítalanum og af heilbrigðisstofnunum.
Spurt var, um hvers konar tæki væri að ræða. Stefnandi kvaðst aðallega hafa haft á sinni könnu blóðgreiningartæki fyrir blóðbankann og annars konar blóðgreiningartæki fyrir Landspítalann. Þetta væru mjög stór og flókin tæki.
Vísað var til viðtals við framkvæmdastjóra Fastus ehf. í Viðskiptablaðinu hinn 5. júlí 2006, þar sem hann segir að hann hafi ráðið fimmtán menn til starfa hjá Fastus ehf. í haust og spurt var hvort hann hefði verið einn af þeim. Stefnandi neitaði því.
Vísað var til þess að í greinargerð stefnda væri haldið fram að stefnandi hefði í samskiptum sínum við Ortho-Clinical Diagnostics boðað til fundar með einum af forsvarsmönnum þess þegar hann var á uppsagnarfresti. Spurt var hvort þetta væri rétt. Stefnandi sagði að svo hefði verið. Yfirmaður þessa fyrirtækis hefði hringt til sín og beðið sig um að boða fund eins og hann var vanur að gera. Sér hafi þótt það undarlegt að hann skyldi ekki hafa haft beint samband við stefnda, en haldið, að þetta félli undir einstök verkefni, sem Linda hefði nefnt að leita mætti til hans um eftir starfsloka-samninginn. Hafi hann tekið að sér að boða til þessa fundar. Hann hefði hringt á Landspítalann og boðað komu hans og látið starfsmenn stefnda vita um þetta. Þar með hefði hann ekki haft frekari afskipti af þessu.
Spurt var, hvers konar fundur þetta hafi verið og hvort þetta hafi verið fundur með læknum. Stefnandi sagði að á fundinum hefði verið Ísleifur Ólafsson yfirlæknir yfir rannsóknarstofunum, en hann hafi með umrædd tæki að gera.
Spurt var, hvort Ortho-Clinical Diagnostics hefði verið komið í viðskipti við Fastus ehf. þegar hann hóf störf þar. Stefnandi sagði að svo hefði ekki verið en það hefði verið á leiðinni. Kvaðst hann halda að þau hefðu hafist um miðjan október.
Spurt var, hver hefði komið á viðskiptasambandi Fastus ehf. og Ortho-Clinical Diagnostics. Stefnandi kvaðst ætla að það hafi verið Jón Garðar, framkvæmdarstjóri Fastus ehf. Enginn annar hefði getað gert það.
Spurt var, hvort hann hefði haft einhverjar tekjur á uppsagnarfresti á meðan starflokasamningurinn var í gildi út júlí og ágúst. Stefnandi kvaðst engar tekjur hafa haft. Hann hefði fengið uppgert orlof í júní.
Vísað var til þess að sagt væri í greinargerð stefnda að hann hefði haft veigamiklar upplýsingar um birgja, m.a. fjárhæðir samninga, og spurt var, hvort hann hefði búið yfir þessum upplýsingum. Stefnandi sagði að rekstrarvörur í þessi tæki skipti hundruðum og ekki væri mögulegt að hann gæti munað þetta allt. Hann hefði ekki haft þetta á pappír né á annan hátt. Um verð hefði verið að ræða sem voru samningsbundin við ríkiskaup.
Spurt var, hvort hann hefði aðra skýringu á því að Ortho-Clinical Diagnostics fór í viðskipti við Fastus ehf. en þá, að hann hefði hafið störf hjá félaginu. Stefnandi sagði að um gríðarlega flókin tæki væri að ræða. Tæknimaður, Guðmundur Jónsson, hafi unnið hjá stefnda. Mörg ár tæki að verða sér úti um kunnáttu til að geta sinnt þessum tækjum. Guðmundur hefði sagt upp störfum hjá stefnda og stofnað eigið fyrirtæki, sem núna starfaði með Fastus ehf. Hann telji að brottför Guðmundar frá stefnda hafi skipt gríðarlega miklu máli. Alltaf væri hægt að lesa sér til um og verða sérfræðingur sem sölumaður, en viðgerðartækni væri allt annað.
Spurt var, hvernig menn hefðu tekið forstjóraskiptunum í byrjun apríl 2006. Stefnandi sagði að þeim hefði almennt verið tekið mjög illa.
Spurt var, hvort menn hefðu verið reiðir og hvort verið hefði heift í mannskapnum? Stefnandi sagði að kannski hefði ekki verið um heift að ræða. Menn hefðu verið slegnir.
Spurt var, hvort lagt hefði verið til að stofna nýtt félag. Stefnandi kvaðst ekki hafa orðið var við það.
Spurt var um fundi sem höfði verið haldnir þarna innan húss, t.d. inni á skrifstofu hjá Bjarna Halldórssyni, þar sem þetta hefði verið rætt, hvort starfsmennirnir hefði ekki talað sín í milli, gegnum síma eða á starfsstöðinni, um að stofna nýtt félag, hvort hann hefði ekki sagt að færi hann þá færi Ortho líka. Stefnandi neitaði þessu.
Spurt var, hvort Ortho birgirinn hefði verið aðalbirgirinn sem hann hefði verið í samskiptum við. Stefnandi sagði að hann hefði verið stærstur.
Spurt var, hvaða þýðingu samskipti við birgja í starfi hefði eins og hjá stefnda og Fastus ehf. Stefnandi sagði að starf sölumannsins fælist í því að vera tengiliður milli birgja og viðskiptavina, búa yfir ákveðnum tækniupplýsingum og er sala væri í gangi eða einhver vandamál kæmu upp að geta leyst þau og gert tilboð.
Vísað var til þess að stefnandi hefði verið með Orthobirginn og verið aðalviðskiptavinur hans. Spurt var, hvort hann hefði, umfram aðra starfsmenn, haft sérstaka þekkingu á þessum vörum frá Ortho, hvort hann hefði haft mikla sérþekkingu á þessu. Hann hefði lýsti því áðan að þetta væru mjög flóknar vörur, hvort hann hefði þá ekki haft sérþekkingu á þessum vörum. Stefnandi kvaðst vilja segja það.
Spurt var, hversu margir starfsmenn hefðu verið hjá Fastus ehf. þegar stefnandi réð sig til starfa þar. Stefnandi kvaðst hafi vitað um tvo starfsmenn, fyrir utan Jón Garðar, þegar hann réði sig til félagsins í ágúst.
Spurt var, hvenær hann hefði hafið störf hjá Fastus ehf. Stefnandi sagði að það hefði verið 1. september.
Spurt var, hversu margir starfsmenn hefðu þá verið hjá Fastus ehf.? Stefnandi sagði að þá hefðu umræddir tveir starfsmenn verið hjá félaginu. Fimm eða sex hefðu byrjað með honum.
Spurt var, hvort Bjarni Halldórsson hefði byrjað á sama tíma og hann. Stefnandi sagið að svo hefði ekki verið. Spurt var, hvort hann myndi hvenær hann hóf störf. Stefnandi kvaðst halda að hann hefði ekki byrjað fyrr en um áramót.
Vísað var til þess að birgir sem hann hefði unnið mest fyrir, Ortho, væri núna í viðskiptum við Fastus ehf. Og spurt var, hvort hann hefði ekki átt þátt í því. Hann hefði sagt að þetta væru gríðarlega flókin tæki; þörf væri á mikilli sérþekkingu til að geta annast svona birgi. Og spurt var, hver hjá Fastus ehf. hefði haft sérþekkingu til að annast Ortho. Spurt var, hvort það hefði verið Jón Garðar. Stefnandi sagðist ekki vita það.
Lagt var fyrir stefnanda dskj. nr. 22, þar sem mynd er af starfsfólki Fastus ehf. Spurt var, hvenær þessi mynd hefði verið tekin? Stefnandi kvaðst ekki muna það. Ef til vill hafi það verið í september eða október.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir, forstjóri stefnda, gaf skýrslu fyrir rétti. Hún sagði m.a. að hún hefði verið ráðin forstjóri stefnda í lok apríl 2006. Hinn 26. apríl hafi starfsmannafundur verið haldinn. Fyrst hafi átta manna fundur verið haldinn. Þar hefði Bjarni Halldórsson talað fyrir hönd starfsmanna og talað til hennar fyrir hönd allra starfsmannanna. Hann hefði tjáð henni að eftir starfsmannafundinn yrði ákveðið hvort megnið af starfsmönnunum myndi ganga út vegna þess að þeir væru á móti ákvörðun stjórnar stefnda. Fengi hún að vita það á föstudaginn. Síðan hafi verið haldinn starfsmannafundur aftur, þar sem þetta var tilkynnt og Haraldur kvaddi. Í kjölfarið hafi hún farið að ræða þetta við alla starfsmennina því að hagur fyrirtækisins hefði ekki verið að starfsmenn þess gengju út. Mikil þekking hefði falist í starfsmönnunum og því brýnt að halda þeim. Hefði hún rætt við hvern og einn, eða reynt það, og náð flestum fyrir helgi. Þá hafi starfsmenn komið til hennar og beðið um „áfallahjálparfund“ þar sem þeim hafi fundist þetta það mikil „tragedía“ að þeir yrðu að fá hjálp til að komast yfir það. Hafi henni þótt það sjálfsagt og boðið þeim að skipuleggja að geðlæknir hitti þau. Þá hafi starfsmannafélagið ákveðið að gera það og gert það, en það hafi verið 1. maí.
Þegar hún mætti í vinnuna hinn 2. maí, en hún hefði þá aðeins frétt af fundinum, hafi tíu manns staðið fyrir utan dyrnar hjá henni til að segja upp störfum. Þetta hefði verið fyrsti dagur hennar í starfi. Nokkrir þeirra hefðu lýst því yfir að þeir ætluðu í samkeppni við stefnda, t.d. Þórður. Hann hefði sagt henni að þeir hefðu verið að ræða það lengi. Þessi tíu manna hópur hefði viljað kaupa A. Karlsson ehf. en ekki fengið það. Þess vegna hefðu þeir rætt það lengi sín í milli að stofna fyrirtæki. Hafi Þórður sagt henni að hann ætlaði að gera það og beðið hana um að fá að hætta strax. Það hefði hann fengið.
Linda Björg sagði að Guðrún Gunnarsdóttir hefði komið stuttu síðar til hennar með sömu skilaboð. Vegna fyrirtækisins hefði hún þurft á því að halda að Guðrún starfaði aðeins lengur og hafi Guðrún hætt um miðjan maí.
Starfsmennirnir, sem sögðu upp 1. maí, og nokkrir, sem komu síðar, hefðu flestir farið fram á að vinna uppsagnarfrestinn. Í sumum tilvikum hefði hún beðið þá um það og beðið þá um að skoða hug sinn í þessu sambandi. Hafi hún reynt að halda þeim en allt hafi komið fyrir ekki. Eftir á að hyggja hafi augljóslega verið undirbúningur að þessu. Fólk hefði ákveðið að hætta saman.
Linda Björg kvaðst hafa orðið þess áskynja að menn voru að starfa í samkeppni við stefnda þó þeir þægju laun hjá stefnda. Það hafi verið ástæðan fyrir því að hinn 19. júní hafi verið ákveðið að losa stefnda við þetta fólk. Þetta hefði verið augljóst. Af samtölum hennar, m.a. við birgja, hefði komið ljós að þessir starfsmenn voru að vinna á móti stefnda. Hefðu þessir starfsmenn lýst því yfir við birgja að engir yrðu eftir hjá stefnda, fyrirtækið væri ónýtt. Atorka væri að eyðileggja fyrirtækið og þeir hafi lýst því að engin framtíð væri í fyrirtækinu ef þeir myndu hætta þar. Ljóst hefði verið að birgjarnir höfðu mjög miklar áhyggur og að gert hefði verið í því að skapa kvíða hjá þeim. Þetta hefði komið stefnda mjög illa.
Þegar hún fékk sannanir fyrir því að þessir starfsmenn stefnda voru í samkeppni við stefnda - en birgjar hefðu beinlínis sagt henni það - kvaðst Lindu Björg hafa þótt óeðlilegt að greiða þessum starfsmönnum laun úr því að þeir væru búnir að ákveða að fara í samkeppni við stefnda.
Linda Björg sagði að nokkrir birgja, sem hefðu verið í viðskiptum við stefnda, hefðu hætt hjá félaginu. Þetta hefði gerst þegar umræddir starfsmenn voru enn í uppsagnarfresti hjá stefnda. Þessir birgjar hefðu fengið staðfestingu hjá Jóni Garðari, mjög snemma þetta sumar, að þessir starfsmenn myndu ganga til liðs við Fastus. Hér hafi sérstaklega verið um að ræða birgja á heilbrigðissviðinu. Um vörur væri að ræða, sem mikla þekkingu þurfi til að selja. Birgjar hefðu tekið ákvörðun um viðskipti við Fastus á þessum grundvelli, en Fastus hefði ekki haft þessa þekkingu á þeim tíma.
Linda Björg sagði að aðalatriðið fyrir viðskipti á sviði stefnda væru góð umboð. Samband næðist ekki við birgja nema á grundvelli reynslu fólks sem gæti selt vöruna. Stefndi hefði í dag náð nýjum umboðum vegna þess að stefndi hefði nú á að skipa reyndu starfsfólki sem hæft væri til að selja þessa vöru.
Linda Björg sagði að eytt hefði verið tölvupósti úr tölvukerfi stefnda. Hafi hún sjálf skoðað tölvupóstana. Þetta hefði verið stór ákvörðun. Hafi hún varið tíma í þetta vegna þess að félagið hefði orðið að reyna að loka fyrir götin, sem augljóslega voru komin, og búin að valda fyrirtækinu skaða. Við skoðun á e-maili hvers og eins, hafi hún tekið eftir því, að þar vantaði visst tímabil úr flestum af e-mailunum. Dagsetningar hefðu verið þar til fólkið sagði upp og til þess tíma að það hætti störfum. Meðal annars væri þetta þannig að maður geymi í foldinum aðalbirgja. Augljóslega hafi það verið venja í fyrirtækinu. Foldar frá þeim birgjum, sem hættu hjá stefnda hefðu verið tómir og engin saga um það, ekki einu sinni síðustu dagana, sem fólkið var við vinnu, enda þótt hún vissi að það hefði á þessum tíma verið í samskiptum við birgjana og e-mail-samskiptum. Linda Björg kvaðst hafa rætt við lögmann stefnda í þessu sambandi og fengið tölvudeildina hjá Parlogis til að skoða þetta nánar, en Parlogis hafði annast tölvumál stefnda.
Linda Björg staðfesti að hafa skoðað e-mail starfsmanna. Hún hafi ekki látið starfsmenn vita af því. Hún hefði gert þetta í samráði við lögfræðing, en um eign fyrirtækisins hafi verið að ræða.
Linda Björg sagði að netföng starfsmanna hefðu verið lokuð daginn sem þeir hættu hinn 19. júní 2006. Eitt þessara e-maila hefði verið notað aftur, e-mail Guðrúnar. Ráðin hefði verið önnur með því nafni, sem fengið hefði e-mail addressuna Guðrún, í september 2006. E-mail Guðrúnar hefði verið lokað 5. maí og opnað aftur í september.
Linda Björg sagði að Parlogis væri í eigu Atorku.
Linda Björg sagði að menn hefðu eytt tölvupósti, enda þótt þeir hefðu vitað að back-up væri tekið af honum. Eyða mætti honum úr eyddu. Allir starfsmenn hefðu vitað að það var tekið upp á spólur og yrði til í fimm vikur.
Linda Björg sagði að stefndi hefði orðið af viðskiptum vegna þess að tölvupósti var eytt vegna þess að samskipti hafi með þessu hætt við birgja, þar sem starfsmenn stefnda hefðu sagt þeim, að þeir væru að fara annað.
Aðspurð sagði Linda Björg að gerð hefði verið krafa á Aðalstein Karlsson vegna kröfu sem gerð var á hendur Bjarna Jóni Halldórssyni. Hún sagði að krafa á hendur Bjarna, vegna 7.000.000 króna greiðslu til Austurbrúar ehf., væri ekki að fullu greidd. Hún sagði að ekki hefði verið samþykkt leiðrétting á viðskiptamannareikningi Aðalsteins að fjárhæð 536.787 kr. Hún kvaðst ekki vita, hvort þessi færsla hefði verið samþykkt í bókhaldi fyrirtækisins fyrir árið 2005.
Linda Björg sagði að Parlogis væri á sölu og til stæði að selja fyrirtækið.
Haraldur Gunnarsson gaf skýrslu fyrir rétti. Hann sagði m.a. að hann hefði starfað meira og minna, með hléum, fyrir stefnda frá 1981 til 2006. Hann hefði verið framkvæmda-stjóri fyrirtækisins frá því í nóvember 2000 þar til í lok apríl 2006.
Lagt var fyrir Harald dskj. nr. 15, sem er bréf hans til lögmanns stefnanda, dagsett 7. mars 2007. Hann sagði að þetta væri svar hans við bréfi sem hann hefði fengið frá lögmanni stefnanda. Hann sagði að fyrirtækið hefði lent í bruna seint á síðasta áratug. Bruni hefði orðið í herbergi við hliðina á tölvuherberginu og hafi það vakið óhug meðal þeirra. Fyrirtækið hefði síðan verið selt í árslok 2000 og þá hefðu þeir lent í því að kaupverðið var byggt á bókhaldsgögnum, sem ekki hefðu reynst alveg rétt, eftir skipti á bókhaldskerfi, en gögn, er fóru á milli, hefðu skolast til. Kaupverðið á fyrirtækinu hefði verið „tekið upp“ og afkoman á árinu 2001 látin ráða því hvert var endanlegt kaupverð á A. Karlssyni ehf. Þetta mál kvað Haraldur hafa verið ótengt honum. Það hafi verið milli kaupanda og seljanda.
Í lok ársins 2001, sagði Haraldur, að fyrirtækið hefði orðið fyrir „tölvuslysi“. Keyptir höfðu verið nýir diskar, sem reynst hefðu vera skemmdir, þannig að þeir hefðu misst út tölvugögn í u.þ.b. tíu daga, þannig að öll afritunartaka fór í vaskinn. Í framhaldi af því hafi „þeir“ ákveðið að taka þessi mál föstum tökum. Niðurstaðan hefði orðið sú að gengið yrði til samstarfs við Parlogis, er þá hét Lyfjadreifing, um að þeir myndu sjá um öll tölvumál og einn af „okkar“ starfsmönnum, Árni Páll, sem nú væri hættur, hefði flust yfir. Hafi „þeir“ talið þetta farsæla lausn. Hafi verið farið yfir þessi mál á árunum 2002 og 2003 til að tryggja það að þetta væri í góðum höndum.
Haraldur kvaðst hafa skilið það svo að pottþétt back-up væri á allri tölvuvinnslu hjá fyrirtækinu eftir þetta. Hugmyndafræðin hefði verið sú að vera með tvöfalt kerfi, vera með spólur, sem teknar yrðu niðri í Brautarholti, og svo yrði krossafritun tekin hjá Parlogis. Gulltryggt yrði að gögn myndu ekki aftur tapast. Hafi gott samstarf verið við tölvudeildina hjá Parlogis.
Haraldur sagði að hann hefði skilið það svo að unnt væri að afturkalla eyddan tölvupóst eftir daginn. Afrit væru tekin af öllum gögnum fyrirtækisins hvort sem það væri fjárhaldsbókhald eða gögn, sem tilheyrðu microsoft umhverfinu.
Haraldur staðfesti að hafa undirritað með Bjarna Halldórssyni greinargerð til Eiríks Þorlákssonar, lögmanns stefnda, dagsetta 22. nóvember 2006. Í því samandi var vísað til „bakfærslu á kreditreikningi upp á 1.500.000 krónur“. Haraldur sagði að á árinu 2001 hafi Aðalsteinn keypt tækjabúnað fyrir 5.000.000 króna. Að vísu ekki í eigin nafni heldur í nafni fyrirtækis, sem hann muni ekki lengur hvað hét. Aðalsteinn hafi staðgreitt búnaðinn. Síðan hefði hann viljað skila vörunum á árinu 2002. Hafi hann sagt Aðalsteini að hann myndi taka tækjabúnaðinn til baka á sama verði og Aðalsteinn hefði greitt fyrir hann. Aðalsteinn hefði ekki viljað það vegna þess að verðið hafði þá lækkað, en gengið hafði styrkst frá árinu 2001 til ársins 2002. Niðurstaðan hefði orðið sú að „við“ myndum selja þetta fyrir hann. Hafi þetta verið að mjatlast út smátt og smátt. Muni hann það rétt þá hafi það verið í janúar eða febrúar á árinu 2006 sem tveir hlutir hafi verið eftir, líklega ofn og kaffivél. Muni hann það rétt þá hafi hann og Bjarni rætt um, að hugsanlega væri kominn kaupandi að ofninum, en varahlutir hefðu einnig verið teknir úr þessum tækjum. Sanngjarnt væri því að kreditfæra þetta. Hvenær þetta var rætt muni hann ekki. Þetta mál hafi oft komið upp á borðið vegna þess að Aðalsteinn vildi ljúka þessu. Kvaðst hann hafa rætt þetta einhvern tímann við Magnús Jónsson, sem þá var stjórnarformaður Atorku, sem er eigandi A. Karlssonar ehf. Magnús hefði haft símasamband við hann og spurt hann um þetta mál. Málið hafi verið hvenær þessu yrði lokið. Tveir hlutir hafi verið eftir af tólf eða fjórtán hlutum, sem Aðalsteinn skilaði.
Lögmaður stefnda sagði að þetta hafi verið þannig að Aðalsteinn var í viðskiptaskuld við stefna að fjárhæð u.þ.b. 3.000.000 kr. Þetta hafi endað með því að einn kreditreikningur var gefinn út að fjárhæð u.þ.b. 1.500.000 kr. sem núllað hafi út stöðu Aðalsteins. Spurði lögmaðurinn Harald hvort hann hefði komið að þessu. Haraldur sagði að þessi kreditreikningur hefði verið gefinn út eftir að hann fór frá fyrirtækinu. Hann kvaðst muna að ofninn var u.þ.b. 1.000.000 kr. virði og kaffivélin u.þ.b. 200.000 til 300.000 kr. virði. Væri þetta lagt saman og virðisaukaskatti bætt við þá gæti þetta verið mjög svipuð upphæð. Hvort hér væri um tilviljun að ræða kvaðst hann ekki vita.
Lögmaður stefnda vísaði til þess að í umræddri greinargerð Haralds og Bjarna til sín segi m.a.: „Var þetta ekki talið óeðlilegt sérstaklega í ljósi þess að Aðalsteinn hafði oft aðstoðað A. Karlsson ehf. við að styrkja viðskiptasambönd og koma með góðar hugmyndir.“ Spurði lögmaðurinn Harald hvor þetta hefði verið ástæðan fyrir því að kreditreikningurinn hefði verið gefinn út á Aðalstein. Haraldur sagði að á árinu 2002 þegar þetta kom upp þá hafi hann talið að „við“ værum að gæta hagsmuna félagsins með því að vilja ekki kreditfæra þetta. Hafi verið talið að með því að „við“ reyndum að selja þetta þá væri farið bil beggja. Síðan hefði þetta tekið miklu lengri tíma en við var búist. Kvaðst hann halda að „við“ hefðum verið komnir með kaupanda að ofninum.
Haraldur sagði að engar ákveðnar reglur hefðu gilt hjá félaginu um eyðingu tölvupósts.
Guðmundur Sævar Hreiðarsson, framkvæmdastjóri hjá stefnda, gaf skýrslu fyrir rétti. Hann sagði m.a. að breytingar sem gerðar voru í lok apríl 2006 hjá stefnda hefðu slegið alla og komið á óvart. Ef til vill ekki alls staðar, sökum þessa að lengi hefði eitthvað legið í loftinu og mikil fundahöld fyrir framan þá aðstöðu, sem hann var með - en hann hefði á þeim tíma verið sölustjóri fyrir röntgentæki hjá stefnda - og þar sem skrifstofa Haraldar var. Þar hafi verið tíð fundahöld í desember og svo aftur í janúar þannig að maður hafi skynjað að eitthvað var í gangi. Eins hefði honum fundist að ekki væri sami krafturinn í Haraldi, sem hann hefði starfað náið með, frá miðjum desember og þar til þetta leit dagsins ljós. Auðvitað hefði þetta slegið alla vegna þess að Haraldur var vel liðinn og góður starfsmaður.
Guðmundur Sævar kvaðst hafa fengið símtal kvöldið áður en þetta var tilkynnt formlega. Róbert Lee hefði hringt í hann og sagt honum að Haraldur hefði verið rekinn og þeir ákveðið að segja honum upp. Hafi Róbert Lee spurt hann hvort þeir ættu ekki að taka sig til og stofna nýtt fyrirtæki. Kvaðst hann ekki hafa gefið neitt út á það. Morguninn eftir, þegar hann mætti til vinnu, hafi Bjarni, sem var fjármálastjóri, kallað á hann og nokkra af þeim sem voru að vinna á því svæði sem hann var með. Þá hefðu flestir verið búnir að frétta þetta, búið að hringja í marga. Á starfsmannafundi eftir hádegið klukkan eitt hefði formlega átt að tilkynna þetta. Hefðu þeir farið inn til Bjarna og rætt þessi mál fram og til baka. Mönnum hefði verið misheitt í hamsi og sumir hefðu haft á orði að nú væri lag að stofna nýtt fyrirtæki og fara með einhver umboð í burtu eða umboð myndu elta menn. Einn hefði sagt að það skipti ekki máli hver ætti mann o.s.frv. Síðan hefði fundurinn verið haldinn klukkan eitt. Þá hafi komið í ljós að Haraldur hefði ekki verið rekinn en starfslokasamningur verið gerður við hann. Í samningnum hefði verið tekið fram að eigendur og Haraldur hefðu ekki verið sammála um hvert fyrirtækið skyldi stefna og því hefðu leiðir skilið.
Guðmundur Sævar sagði að síðan hefðu fleiri fundir verið haldnir í sömu vikunni. Flestir starfsmannanna hefðu þá farið niður í bæ og hist þar á veitingastað. Haraldur hefði mætt þar með konu sinni. Þá hafi honum fundist þetta farið að snúast upp í tilfinningaspennu, sem hefði ekkert með almenn viðskipti að gera, og hann hefði dregið sig út úr svokölluðum fundum, sem voru síðan haldnir eftir það.
Guðmundur Sævar sagði að í maí hafi þing eða sýning, sem reyndar hefði ekki verið á hans sviði, verið á Írlandi. A. Karlsson hefði komið að því með því að taka þátt í kostnaði við flugfar hjá hjúkrunarfræðingum sem fóru frá Landspítala og víðar. Hafi þau farið á þessa sýningu og þetta þing. Róbert Lee hefði hitt þar m.a. fulltrúa fyrirtækis, Rossalin in health, sem A. Karlsson hefur átt viðskipti við undan farin ár, en fyrirtækið framleiddi vörur sem notaðar væru við hjartaþræðingar. Róbert Lee hefði hitt fulltrúa þessa fyrirtækis ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur, sem þá hafði látið af störfum hjá A. Karlssyni. Þau hefðu talað við fulltrúa fyrirtækisins og sagt þeim að Guðrún væri fulltrúi hjá nýju fyrirtæki og að Róbert Lee væri að ráða sig hjá því. Hefðu þau óskað eftir að vinna með Rossalin in health í framtíðinni.
Guðmundur Pétur Pálsson, upplýsingatæknistjóri hjá Parlogis, gaf skýrslu fyrir rétti. Hann staðfesti að hafa undirritað yfirlýsingu sem liggur fyrir í málinu, dags. 19. febrúar 2007. Hann sagði m.a. að hann hefði annast tölvukerfi stefnda frá 2001. Hann sagði að komið hefði í ljós að tölvupósti hefði verið eytt úr tölvum umræddra sjö fyrrverandi starfsmanna stefnda, tómar möppur hefðu verið í póstinum er báru nöfn fyrirtækja eða birgja, sem hættu viðskiptum við stefnda. Ekki væri að sjá samskipti við birgja, sem fóru, en sjá mætti samskipti við aðra birgja langt aftur í tímann.
Guðmundur Pétur sagði að back-up kerfið hefði virkað þannig að tiltölulega fljótt hefði verið búið að skrifa yfir það, sem tekið var upp af tölvupósti, innan tveggja eða sex vikna. Hann hafi haft afrit, sem tekin voru í byrjun maí og síðan á viku fresti. Afrit, sem tekin voru 7. maí, voru með tómum möppum.
Ályktunarorð: Hinn 15. júní 2006 gerði stefndi starfslokasamning við stefnanda. Þar segir:
1.gr.
Starfsmaðurinn sagði upp störfum sínum þann 8 maí 2006. Ekki hefur veri óskað eftir starfsframlagi hans frá og með 19. júní. að öðru leyti en til ráðgjafar um einstök verkefni auk.
2. gr.
Félagið greiðir starfsmanninum laun í uppsagnarfresti í þrjá mánuði eftir starfslok hans, þ.e. fyrir júní, júlí og ágúst 2006. Fái starfsmaðurinn greidd laun annars staðar en frá félaginu í uppsagnarfresti þá dragast allar slíkar launagreiðslur frá launum starfsmannsins í uppsagnarfresti.
3. gr.
Starfsmaðurinn skilar bifreið og síma í eigu félagsins sem starfsmaðurinn hefur haft afnot af. Félagið greiðir starfsmanninum í uppsagnarfresti þá upphæð sem hann hefur haft sem bifreiðarhlunnindi sem koma í stað réttinda hans til afnota af bíl. Auk þess greiðir félagið kr. 4.000,- vegna símanotkunar. Þessar greiðslur koma til viðbótar launum í uppsagnarfresti samkvæmt 2. gr. og eru greiddar mánaðarlega á sömu tímamörkum og þar er tilgreint.
4. gr.
Áunnið orlof greiðist með eingreiðslu 1. júlí 2006.
5. gr.
Starfsmaðurinn skal afhenda við starfslok félaginu öll gögn, sem því tilheyra og hann hefur undir höndum, t.d. gögn sem nauðsynleg eru til reksturs og uppgjörs þess og til lögbundinnar skýrslugerðar. Sama gildir um allar eigur félagsins sem kunna að vera í vörslum starfsmannsins s.s. bíl, síma, fartölva og aðrar eigur.
Brjóti starfsmaðurinn gegn ákvæðum þessum falla niður allar launagreiðslur til hans frá félaginu í uppsagarfresti.
Af hálfu stefnda var tekin sú ákvörðun að greiða stefnanda ekki laun í uppsagnarfresti í júlí og ágúst. Stefndi bar fyrir sig að stefnandi hefði ráðið sig til starfa hjá Fastus ehf. og gæti stefndi ekki tekið því að stefnandi þægi laun frá stefnda á meðan stefnandi ynni að því að ná með ótilhlýðilegum hætti birgjum og viðskiptavinum stefnda.
Um efni starfslokasamnings aðila er ekki deilt. Af hálfu stefnda er hins vegar talið að stefnandi hafi fyrirgert rétti samkvæmt samningnum. Stefnandi hafi brotið trúnaðarskyldur við stefnda, sbr. ákvæði 2. mgr. 13. gr. laga nr. 57/2005. Hann hafi brotið gegn stefnanda með meðferð sinni á tölvupósti í eigu stefnanda og með hátterni sínu valdið stefnda verulegu fjárhagstjóni. Væri gagnkrafa gerð á hendur stefnanda til skuldajafnaðar sem nemi heildarfjárhæð dómkröfu stefnanda með heimild í 28. gr. laga nr. 91/1991.
Ekki verður ætlað að starfslokasamningi aðila verði hnekkt á grundvelli ákvæða laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins nr. 57/2005. Í 1. mgr. 1. gr. laganna segir að lögin taki til hvers konar atvinnustarfsemi, svo sem framleiðslu, verslunar og þjónustu, án tillits til þess hvort hún er rekin af einstaklingum, félögum, opinberum aðilum eða öðrum. Þá segir í 2. mgr. 1. gr. að lögin taki ekki til launa eða annarra starfskjara launþega samkvæmt kjarasamningi.
Stefndi hefur hvorki sýnt fram á að stefnandi hafi brotið trúnaðarskyldur sínar við stefnda á starfstíma hans hjá stefnda né á þeim tíma, er starfslokasamningur aðila markar sem uppsagnarfrest. Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að stefnandi hafi unnið í þágu Fastus ehf. fyrr en hann hóf störf hjá félaginu hinn 1. september 2006.
Hvort stefnandi hafi eytt tölvupósti í eigu stefnda og með því skaðað stefnda, liggur ekki ljóst fyrir, en stefnandi hefur staðfastlega neitað því. Sjálfstæða skoðun eða rannsókn óháðra sérfræðinga á því sviði skortir.
Samkvæmt framangreindu verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda umkrafða fjárhæð með vöxtum og málskostnaði, allt eins og í dómsorði greinir.
Páll Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
DÓMSORÐ:
Stefndi, A. Karlsson ehf., greiði stefnanda, Sigurði H. Jóhannssyni, 1.167.094 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, af 484.378 krónum frá 1. ágúst 2006 til 1. september 2006, en frá þeim degi af 1.167.094 krónum til greiðsludags.
Stefndi greiði stefnanda 249.000 krónur í málskostnað.