Hæstiréttur íslands

Mál nr. 275/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 23

 

Þriðjudaginn 23. maí 2006.

Nr. 275/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Brynjar Níelsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála  var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. maí 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 2. júní 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að honum verði einungis gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á að skilyrði séu til að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, hollenskur ríkisborgari, fd. [...] 1969, [heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 2. júní 2006, kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint fíkniefnabrot.  Lagt hafi verið hald á 15.227,90 g af amfetamíni og 10.283,05 g af hassi sem falin hafi verið í bifreiðinni A sem flutt hafi verið til landsins frá Rotterdam í Hollandi.  Fíkniefnin hafi fundist við leit tollgæslu þann 3. f.m.  Bifreiðin hafi verið flutt inn á nafni meints vitorðsmanns, B.  Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni frá því fíkniefnin hafi fundist og hafi hljóðupptökubúnaði og gerviefnum verið komið fyrir í bifreiðinni og símar grunaðra hlustaðir.  Bifreiðin hafi verið tollafgreidd og sótt nokkrum dögum síðar og flutt á bifreiðastæði við heimili nefnds B.  C, D og kærði hafi sótt bifreiðina á umrætt bifreiðastæði að kvöldi 13. f.m.  Hafi þeir flutt bifreiðina í verkstæðishúsnæði við E en þeir hafi verið handteknir skömmu síðar.  Aðkoma á vettvangi og hljóð­ritað samtal við bifreiðina í húsnæðinu bendi eindregið til þess að kærði og samferða­menn hans hafi verið að móttaka efnin með því að fjarlægja þau úr bifreiðinni.

Við skýrslutökur hafi kærði greint frá tiltekinni aðild sinni að málinu.  Kærði hafi greint frá því að hann hafi tekið að sér að taka á móti manni í Belgíu og aðstoða hann við flutning bifreiðar til Íslands.  Hann hafi haft vitneskju um að í bifreiðinni væru falin fíkniefni og hann hafi síðan tekið að sér, gegn greiðslu, að fara til Íslands og hafa umsjón með því þegar fíkniefnin yrðu tekin úr bifreiðinni og vigta fíkniefnin.  Kveðst kærði ekki hafa verið viðstaddur þegar fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hann hafi ekki haft fullkomnar upplýsingar um magn efnanna.  Kærði hafi verið með minnismiða meðferðis, sem lögregla hafi lagt hald á, þar komi fram áritaðar tölur um magn og upphæðir í evrum.  Kærði hafi sagt að hann hafi átt að afhenda manni miðann hér á landi en hann hafi ekki viljað upplýsa hver sá maður sé.  Að mati lögreglu þyki minnismiðinn geta passað við magn og söluverð seljanda fíkniefnanna til innflytjanda efnanna hér á landi.  Kærði hafi einnig viðurkennt að hafa átt tiltekin símasamskipti við nefndan B þegar hann hafi verið að leysa bifreiðina úr tolli hér á landi.  Kærði hafi að öðru leyti neitað að greina frá aðild annarra grunaðra að málinu eða einstökum verknaðarþáttum þeirra.  Sé nánar vísað til framburðarskýrslna kærða frá 19. og 25. f.m. og 3. og 15. þ.m.

Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti en framburður hans þyki vera í nokkru samræmi við rannsóknar­­gögn málsins.  Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 14. f.m. á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. R-210/2006 og R-252/2006.  Rannsókninni miðar áfram en nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um einstaka verknaðarþætti hinna grunuðu, tengsl þeirra innbyrðis og tengsl við aðra vitorðsmenn sem tengist málinu en ekki sé vitað um á þessu stigi hverjir séu en kunni að tengjast fjármögnun og kaupum á fíkniefnunum, ætlaðri móttöku og dreifingu þeirra hér á landi auk þess sem upplýsa þurfi nánar um seljendur og/eða sendendur efnanna erlendis.  Unnið sé að gagnaöflun og gagnaúrvinnslu fjármála- og fjarskipta­upplýsinga í þessu skyni.  Mikilvægar fjármálaupplýsingar hafi þegar fengist en tafir hafi orðið á afgreiðslu gagna frá tilteknum fjármálastofnunum og sé þessari vinnu ekki lokið, sbr. nánar tvær upplýsingaskýrslur Þ, rannsóknar­lögreglumanns, dags. 17. þ.m.  Framundan séu frekari yfirheyrslur af vitnum og sakborningum, þ.m.t. kærða.  Nauðsynlegt sé að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á.  Þyki þannig brýnt að vernda áfram rannsóknar­hagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.  Þá liggi fyrir að kærði sé erlendur ríkisborgari með takmörkuð tengsl við Ísland og dvöl kærða hafi verið ætluð tímabundin.  Þyki þannig brýnt á þessu stigi málsins að varna því að kærði gangi laus og tryggja nærveru kærða hér á landi.

Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.  Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a- og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt því sem að framan segir svo og rannsóknargögnum sem liggja fyrir dóminum liggur rökstuddur grunur á því að kærði, sem er erlendur ríkisborgari, eigi aðild að stórfelldu fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19,1940 með áorðnum breytingum.  Enda þótt kærði hafi greint frá tiltekinni aðild sinni að málinu er rannsókn þess í heild sinni og jafnframt hvað hugsanlegan frekari þátt kærða varðar ekki lokið.  Telur dómarinn að skilyrði a- og b- liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 um meðferð opinberra mála séu uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett.

Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, hollenskur ríkisborgari, f. [...] 1969, [heimilisfang], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 2. júní 2006, kl. 16.00.