Hæstiréttur íslands

Mál nr. 64/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Fimmtudaginn 7

 

Fimmtudaginn 7. febrúar 2002.

Nr. 64/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. febrúar 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2002,

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar nk. klukkan 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans í Reykjavík kemur fram að [...].

Kærði neitar sakargiftum og kannast ekki við aðild að innflutningi fíkniefna.    Rannsóknargögn sem fyrir liggja vekja hins vegar grunsemdir um aðild hans að málinu þannig að telja verður að rökstuddur grunur sé fram kominn um að hann tengist meintu broti.  Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi og hætta á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintu broti og hann hefur tengsl við þykja skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og hún er fram sett.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði X sæti gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 21. febrúar nk. kl. 16:00.