Hæstiréttur íslands

Mál nr. 231/2003


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gjaldþrotaskipti
  • Útivist
  • Kæruheimild
  • Frávísun frá Hæstarétti


Fimmtudaginn 19

Fimmtudaginn 19. júní 2003.

Nr. 231/2003.

Íslenska vatnsfélagið ehf.

(Reinhold Kristjánsson hrl.)

gegn

Sameinaða lífeyrissjóðnum

(enginn)

Kærumál. Gjaldþrotaskipti. Útivist. Kæruheimild. Frávísun máls frá Hæstarétti.

Héraðsdómur kvað upp úrskurð um að bú Í ehf. skyldi tekið til gjaldþrotaskipta. Af hálfu Í ehf. var ekki sótt þing í héraði þegar málið var tekið fyrir. Brast því heimild til að kæra málið og var því vegna þessa vísað frá Hæstarétti.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. maí 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. júní sl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. apríl 2003, þar sem fallist var á kröfu varnaraðila um að bú sóknaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Um kæruheimild vísar sóknaraðili til 179. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Hann krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og varnaraðila gert að greiða sér kærumálskostnað.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Sóknaraðili sótti ekki þing í héraði þegar beiðni varnaraðila um gjaldþrotaskipti var tekin fyrir 2. apríl 2003. Gekk hinn kærði úrskurður í framhaldi af því. Í dómi Hæstaréttar, sem birtur er í dómasafni 1992 bls. 2028, sbr. og meðal annars dóma 4. desember 2001 í málinu nr. 432/2001, 8. apríl 2002 í málinu nr. 158/2002, 30. sama mánaðar í málinu nr. 189/2002, 4. desember sama árs í málinu nr. 535/2002 og 4. júní sl. í málinu nr. 215/2003, voru ákvæði laga nr. 21/1991 skýrð með hliðsjón af 4. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála á þann veg að heimild brysti til kæru máls sem þessa þegar þannig stæði á. Ber samkvæmt því að vísa málinu sjálfkrafa frá Hæstarétti.

Kærumálskostnaður dæmist ekki.

Dómsorð:

Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.

Kærumálskostnaður fellur niður.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. apríl 2003.

                Með bréfi sem barst Héraðsdómi Reykjavíkur 20. febrúar 2003 hefur Sameinaði lífeyrissjóðurinn, kt: 620492-2809, Borgartúni 30, Reykjavík, krafist þess að bú Íslenska vatnsfélagsins ehf., kt: 540700-2490, Garðastræti 37, Reykjavík, verði tekið til gjaldþrotaskipta.

                Skiptabeiðandi kveðst eiga kröfu á hendur skuldaranum. Í bréfi hans er skuldin sögð nema samtals 333.074,00 krónum. Skuldari hefur haft heimild til greiðslustöðvunar sem rann út 31. janúar 2003.

Af hálfu skuldara hefur ekki verið sótt þing þrátt fyrir lögmæta boðun og ber því með vísan til 2. mgr. 70. gr. laga nr. 21/1991 að líta svo á að hann viðurkenni að fullyrðingar skiptabeiðanda séu réttar. Er því fullnægt skilyrðum 1. tl. 2. mgr. 65. gr. sömu laga til að verða við kröfu skiptabeiðanda og er bú skuldarans tekið til gjaldþrotaskipta.

                Páll Þorsteinsson, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

                Bú Íslenska vatnsfélagsins ehf., kt. 540700-2490, Garðastræti 37, Reykjavík, er tekið til gjaldþrotaskipta.