Hæstiréttur íslands
Mál nr. 467/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 3. desember 1999. |
|
Nr. 467/1999. |
Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Þórhalli Ölver Gunnlaugssyni (Hilmar Ingimundarsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að Þ skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. nóvember 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. desember sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 1999, þar sem varnaraðila var með vísun til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. janúar 2000 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991. Varnaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurðurinn verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 1999.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess með vísan 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, að ákærða, Þórhalli Ölver Gunnlaugssyni, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en þar til dómur gengur í máli hans, sbr. 106. gr. laga um meðferð opinberra mála.
Með ákæru dags. 1. nóvember sl. höfðaði ríkissaksóknari opinbert mál á hendur Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni fyrir manndráp og þjófnað. Honum er gefið að sök að hafa aðfaranótt 14. júlí 1999 veist að Agnari Wilhelm Agnarssyni, f. 10. desember 1951 á heimili hans að Leifsgötu 28 í Reykjavík og banað honum með því að stinga hann hnífi eða hnífum mörgum sinnum í brjósthol, bæði framan og aftan frá. Er þetta brot talið varða við 211. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði sætir gæsluvarðhaldi til kl. 16:00 miðvikudaginn 1. desember nk. skv. dómi Hæstaréttar uppkveðnum 23. júlí sl.
Að virtum gögnum málsins þykja skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga vera fyrir hendi í máli þessu til að tekin verði til greina krafa ríkissaksóknara um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir ákærða. Verður því ákærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til 14. janúar nk. kl. 16:00 en þó eigi lengur en þar til dómur gengur í máli hans, sbr. 106. gr. laga um meðferð opinberra mála.
Greta Baldursdóttir settur héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 14. janúar nk., kl.16:00, en þó eigi lengur en þar til dómur gengur í máli hans.