Hæstiréttur íslands
Mál nr. 748/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. nóvember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. nóvember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. desember 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. nóvember 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærðu, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. desember 2016, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að kærða hafi verið handtekin í nótt klukkan 00:50 vegna gruns um þjófnaðar á tösku og bíllyklum frá [...] við [...] í [...]. Lögreglumenn hafi þá haft afskipti af kærðu vegna annars máls og hafi hún verið hjá lögreglumönnum þegar tilkynningin barst. Lýsing á geranda og fatnaði hafi passað við kærðu. Lögreglumenn hafi síðan þekkt konuna á myndbandsupptöku frá gistiheimilinu sem kærðu. Kærða hafi viðurkennt fyrir lögreglumönnum að hafa tekið töskuna og hafi getað vísað þeim á hana en taskan hafi fundist rétt hjá gistiheimilinu. Um sé að ræða mál nr. 007-2016-[...] hjá lögreglu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi einnig til rannsóknar og meðferðar neðangreind mál er varði kærðu X, en í þessum málum sé kærða ýmist undir rökstuddum grun og í öðrum tilvikum undir sterkum grun um brot gegn almennum hegningarlögum.
Mál nr. 007-2016- [...]– 1. nóvember sl., hafi verið tilkynnt um innbrot í íbúð við [...] en húsráðandi hafi komi að konu þar inni en konan hafi þá farið út með nokkra hluti. Seinna um nóttina hafi borist tilkynning frá leigubílstjóra um að hann hafi sótt konu í [...] og farið með hana að [...] þar sem hún hafi verið búin að vera í um 30 mínútur. Leigubílstjórinn hafi afhent lögreglu muni sem farþeginn hafði verið með en það hafi verið munir sem höfðu verið teknir í innbrotinu fyrr um kvöldið. Kærða hafi síðan fundist inni í versluninni og hafi verið handtekinn. Klæðnaður hennar hafi verið í samræmi við lýsingu tilkynnanda innbrotsins. Kærða hafi neitað sök í skýrslutöku.
Mál nr. 007-2016-[...] – 5. ágúst sl., ferðatösku hafi verið stolið af ferðamanni á [...]. Lögreglumenn hafi þekkt kærðu af myndum frá hótelinu en þá hafi hún verið með ferðatöskuna með sér. Kærða hafi viðurkennt sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
Mál nr. 007-2016-[...] – 30. júlí sl., kærða grunuð um þjófnað á bakpoka frá [...], [...] í [...]. Kærða hafi sagst ekki muna eftir þessu. Lögreglumenn hafi þekkt kærðu á myndum og séð myndskeið sem sýndi kærðu athafna sig.
Mál nr. 007-2016-[...] – 26. júlí sl., leigubílsstjóri hafi lagt fram kæru á hendur kærðu fyrir líkamsárás. Kærða hafi neitað sök.
Mál nr. 007-2016-[...]– 26. júlí 2016, stolið sprautum, sprautunálum og buxum úr verslun [...] í [...] [...] alls að verðmæti kr. 2.910. Á vettvangi hafi kærða sagst hafa stolið sprautunum og nálum til þess að sprauta sig með lyfinu contalgin. Skömmu síðar hafi komið í ljós að kærða hafi haft undir höndum þýfi úr neðangreindu máli.
Mál nr. 007-2016- [...]– 26. júlí 2016, tilkynnt hafi verið um innbrot í íbúð í eigu [...] við [...] í [...]. Gestir í íbúðinni kváðust hafa heyrt umgang um nóttina og uppgötvað síðan að stolið hafði verið frá þeim talsverðum verðmætum s.s. Ipad, myndavél, veski með reiðufé í og veiðistöngum.
Síðar um morguninn skömmu eftir afskipti lögreglu af kærðu í ofangreindu máli nr. 007-2016- [...] hafi borist tilkynning um að kona hefði sótt bláan kassa í fyrirtæki bak við í [...] og væri í leigubifreið. Lögregla hafði síðan afskipti af kærðu við Mjódd og í kassa sem hún hafi haft meðferðis hafi fundist þýfið úr fyrrgreindu innbroti sem tjónþolar báru kennsl á en kærða hafi einnig verið með smáræði af kannabisefni á sér. Í skýrslutöku hjá lögreglu hafi kærða játað að hafa farið inn í húsnæðið og tekið þaðan muni.
Mál nr. 007-2016-[...] – 15. júlí, farið inn í íbúð við [...] og nokkrir munir teknir. Lýsinga á geranda hafi passað við kærðu en nokkrir af þeim munum sem teknir hafi verið hafi fundist í fórum kærðu. Húsráðandi hafi sagst ekki gera neinar kröfur í málinu. Kærða hafi borið við minnisleysi.
Mál nr. 007-2016-[...] – 15. júlí 2016, farið inn í tvær bifreiðar við [...] í [...] og stolið þaðan ýmsum munum að óþekktu verðmæti. Á kærðu hafi einnig fundist rétt rúmlega 6 g af kannabisefnum. Kærða hafi játað sök.
Mál nr. 007-2016-[...] – þann 9. júlí tekið eldsneyti fyrir kr. 8.106 með stolnum dælulykli. Lykillinn hafi svo verið notaður aftur þann 10. júlí á bensínstöð [...] við [...] í [...] og þá hafi verið tekið eldsneyti fyrir kr. 13.727.- og svo í þriðja skiptið þann 10. júlí á bensínstöð [...] við [...]og þá hafi verið tekið eldsneyti fyrir kr. 3.041. Kærða hafi þekkt sjálfa sig á myndum en ekki kveðist muna eftir þessu.
Mál nr. 007-2016-[...] – 7. júlí 2016, stolið skópari að verðmæti kr. 14.995 úr verslun við [...] í [...]. Kærða hafi neitað sök en hafi þekkt sig af myndum sem starfsmaður verslunarinnar hafi tekið.
Kærða eigi þó nokkurn sakarferil. Frá árinu 2010 hafi hún hlotið sex dóma eða gengist undir lögreglustjórasátt fyrir auðgunarbrot. Kærða hafi síðast hlotið 8 mánaða dóm þann [...] 2016 í máli nr. S-[...]/2016 vegna auðgunar- og umferðarlagabrota auk valdstjórnarbrots. Fyrrgreindum dómi hafi verið áfrýjað til Hæstaréttar og sé því ekki fullnustuhæfur. Ennfremur hafi kærða lokið afplánun fyrri dóma þann 25. júní sl. Ofangreind brot séu því ítrekun við fyrri dóma kærðu auk þess sem hún hafi hafið brotastarfssemi sína nánast strax eftir að hún hafi lokið afplánun í lok júní s.l.
Í ljósi ofangreindra mála, fjölda brota og sakarferils kærðu þyki að mati lögreglu ljóst að hún hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hennar. Fram hafi komið í skýrslum lögreglu að kærða hafi verið í langvarandi og harðri neyslu ávana- og fíkniefna. Miðað við lýsingar kærðu á stöðu sinni telji lögreglan því einnig að hún fjármagni neyslu sína með brotum. Með vísan til framangreinds telji lögreglan því yfirgnæfandi líkur á því að kærða muni halda brotastarfsemi áfram fari hún frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að hún sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar sæti dómsmeðferð.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða
Samkvæmt því sem að ofan er rakið eru nú til rannsóknar hjá sóknaraðila 11 brot kærðu. Um er að ræða grun um þjófnað, gripdeild og fleiri auðgunarbrot auk fíkniefnabrota. Brotin eru flest framin í júlí og ágúst á þessu ári og tvö í þessari viku en kærða lauk afplánun refsingar í lok júní. Að mati dómsins veita gögn málsins fullnægjandi upplýsingar um að kærða liggi undir rökstuddum grun um að hafa framið flest þau brota sem rakin eru að framan.
Þá verður, með hliðsjón af sakarferli kærðu, en nú síðast hlaut hún 8 mánaða dóm í héraði þann [...] sl. vegna þjófnaðar, umferðarlagabrota o.fl. og fjölda þeirra brota sem nú eru til rannsóknar, að telja líklegt að hún muni halda áfram brotum á meðan málum hennar er ekki lokið hjá lögreglu. Kærða á við alvarlegan fíkniefnavanda að stríða og af gögnum málsins má ráða að þau brot sem hún er grunuð um að hafa framið, eru nátengd neyslu hennar. Er því fallist á það með sóknaraðila að skilyrði 1. mgr. sbr. og c-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu fyrir hendi til að verða við kröfum hans um að kærða sæti gæsluvarðahaldi. Úrskurður þessi kemur ekki í veg fyrir að unnt verði að verða við ósk kærðu um að fá aðstoð við fíkniefnavanda sinn, telji fangelsismálayfirvöld tilefni og tök á að verða við því. Ekki er tilefni til að stytta tímabil gæsluvarðhaldsins frá því sem krafist er.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærða, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 1. desember 2016, kl. 16:00.