Hæstiréttur íslands

Mál nr. 337/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Mánudaginn 22

 

Mánudaginn 22. júní 2009.

Nr. 337/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson lögreglustjóri)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.  

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júní 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júní 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til mánudagsins 29. júní 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. júní 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að dómurinn úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til mánudagsins 13. júlí 2009 kl. 16:00.

Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 1. júní 2009, nr. R-234/2009, var kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag kl. 16, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi unnið að rannsóknum 7 mála þar sem kærði hafi komið við sögu að undanförnu og séu rannsóknir þeirra mála langt á veg komnar og búist við því að ákvörðun um saksókn verði tekinn innan skamms tíma. Flest þessara mála séu vegna auðgunarbrota sem hafi verið mjög tíð að undanförnu líkt og megi sjá í kröfugerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 1. júní sl. vegna gæsluvarðhalds kærða. Eitt þessara mála sé vegna ráns og verði það mál því sent til ríkissaksóknara til ákvörðunar um saksókn.

Auk þessara 7 mála sem séu til rannsóknar hjá lögreglu hafi þegar verið gefin út ákæra á hendur kærða X þann 12. maí sl. og sé ákæran til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Sé hann ákærður fyrir þjófnað í félagi við annan aðila að kvöldi mánudagsins 13. október 2008 með því að hafa brotist inn í verslunina Tölvutækni við Hamra­borg í Kópavogi og stolið þaðan tveimur fartölvum og einnig fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,44 g af amfetamíni.

Kærði hafi verið settur í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna þann 27. maí sl. í máli lögreglu nr. 007-2009-31425, sem varði ránsmál á Barðaströnd á Seltjarnarnesi, allt til miðvikudagsins 3. júní sl. Þar sem rannsóknarhagsmunir hafi ekki lengur taldir vera fyrir hendi þann 29. maí sl. hafi kærði verið látinn laus. Innan við tveimur sólarhringum síðar hafi kærði verið handtekinn aftur vegna gruns um innbrot á tvö heimili í Hafnarfirði þar sem kærði lenti m.a. í ryskingum við einn af heimilismönnum á öðrum staðnum.

Kærði eigi að baki sakaferil og hafi á stuttum tíma komið ítrekað við sögu hjá lögreglu og með vísan til ofangreinds hafi kærði haldið áfram afbrotum um leið og hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna. Þessi brotasaga kærða þyki sýna fram á einbeittan brotavilja hans.

Það sem fram hafi komið í málum kærða þyki benda til þess að hann sé í neyslu fíkniefna og fjármagni neyslu sína með afbrotum. Kærði hafi borið svo um í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi verið atvinnulaus frá því í október sl. og hafi hann verið í neyslu af og til undanfarið. Þá kveðst hann fjármagna neyslu sína með bótum frá Félagsmálastofnun og með innbrotum. 

Með vísan til framangreinds og brotaferils kærða á undanförnum vikum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan málum hans sé ekki lokið. 

Ætluð brot sem til rannsóknar séu teljist geta varðað við 217., 226., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en brot gegn 252. gr. geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga

Kærði er undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geta varðað við 217., 226., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á með lögreglu að líkur séu á því að kærði muni halda brota­starfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæslu­varðhaldi á meðan málum hans sé ekki lokið.

 Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu tekin til greina þó þannig að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 29. júní nk. kl. 16.00.

Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til mánudagsins 29. júní 2009 kl. 16:00.