Hæstiréttur íslands

Mál nr. 190/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 9

 

Mánudaginn 9. maí 2005.

Nr. 190/2005.

Ákæruvaldið

(Bogi Nilsson ríkissaksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. maí 2005. Kærumálsgögn bárust réttinum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. maí 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 15. júní 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.

Ákæra var gefin út í dag á hendur varnaraðila og fjórum öðrum mönnum. Að þessu athuguðu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. maí 2005.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að X [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 15. júní n.k. kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að honum hafi þann 30. mars sl. borist til meðferðar mál frá lögreglunni í Reykjavík er varði stórfellt fíkniefnabrot kærða o.fl.  Af gögnum málsins megi ráða að kærði sé undir sterkum grun um aðild að innflutningi á 7.649,98 g af amfetamíni til landsins.  Umrædd fíkniefni hafi verið keypt í Hollandi í byrjun júlí 2004 og send til Íslands frá Þýskalandi með skipi sem hafi komið til landsins 19. s.m.  Hafi fíkniefnin fundist við leit tollvarða í sendingunni. Þáttur kærða í málinu sé talin verulegur þar sem hann sé grunaður um að hafa staðið að skipulagningu, fjármögnun og kaupum á fíkniefnunum.  Kærði neiti sök. [...]

[...]   Hafi Hæstiréttur ítrekað tekið undir það álit ákæruvalds að fyrir liggi sterkur grunur um að kærði hafi framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi. sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. lög nr. 64/1974, sbr. lög nr. 32/2001.

Kærði hafi setið í gæsluvarðhaldi frá 27. október 2004, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en frá 9. desember 2004 með úrskurði á grundvelli almanna­hags­muna, sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar 13. desember 2004.

Muni ríkissaksóknari gefa út ákæru í máli þessu þann 6. maí n.k.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, og dóma Hæstaréttar í málum kærða nr. 432/2004, 470/2004, 489/2004, 32/2005, 92/2005 og 143/2005, sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Kærði var handtekinn þann 27. október 2004 og hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan.  Á gæsluvarðhaldstímabilinu hefur kærði neitað allri aðild að málinu og talið fram­komnar upplýsingar frá öðrum sakborningum rangar og ósannaðar, [...]. Með dómum Hæstaréttar Íslands, síðast í málinu nr. 143/2005, var talið að brot þau er kærði væri undir grun um að hafa framið væru þess eðlis að telja yrði að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Væri því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir kærða.  Á þessu hefur ekki orðið breyting.  Ríkissaksóknari hefur nú málið til meðferðar og mun ákæra gefin út þann 6. maí n.k.  Skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 er fullnægt samkvæmt framansögðu og verður krafa ríkissaksóknara um gæsluvarðhald tekin til greina eins og hún er fram sett.

Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 15. júní nk. kl. 16.00.