Hæstiréttur íslands

Mál nr. 56/2004


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 3

 

Þriðjudaginn 3. febrúar 2004.

Nr. 56/2004.

Sýslumaðurinn á Selfossi

(Ásta Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Sigurður Sigurjónsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og  Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. janúar 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum 2. febrúar sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 30. janúar 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 4. febrúar 2004. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 30. janúar 2004.

                Lögreglustjórinn á Selfossi hefur krafist þess að X, nú í haldi lögreglunnar á Selfossi verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. febrúar 2004, kl. 16:00.

                [...]

                Kærði er grunaður um aðild að íkveikju og fjársvikum og getur brotið varðað við 164. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geta fangelsisrefsingu. Kærði hefur neitað sakargiftum. Rannsóknargögn, sem fyrir liggja, vekja hins vegar grunsemdir um aðild hans að málinu þannig að telja verður að rökstuddur grunur sé fram kominn um að hann tengist meintum brotum.  Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi og hætta á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintum brotum og hann hefur tengsl við, þykja skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Selfossi um að kærði sæti gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 4. febrúar n.k. kl. 16.00.

Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 4. febrúar 2004, kl. 16:00.