Hæstiréttur íslands
Mál nr. 81/2005
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 1. mars 2005. |
|
Nr. 81/2005. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (enginn) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. febrúar 2005, sem barst réttinum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. febrúar 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. apríl 2005 kl. 16.00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Skilja verður kæru varnaraðila svo að hann krefjist þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Fallist er á að fyrir hendi sé sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot, sem að lögum geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, frá 18. september 2004 til 22. október sama ár en frá þeim degi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laganna. Þessi síðarnefnda heimild er eðli máls samkvæmt háð því að hvorki verði óhæfilegur dráttur á rannsókn máls né ákvörðun um ákæru og mál sé síðan rekið með viðhlítandi hraða. Samkvæmt greinargerð sóknaraðila fyrir Hæstarétti er stefnt að því að ljúka rannsókn málsins á næstu dögum og senda málið ríkissaksóknara til ákærumeðferðar. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 25. febrúar 2005.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík rannsaki ætluð brot gegn almennum hegningarlögum er varði stórfelldan innflutning sterkra fíkniefna til landsins sem lagt hafi verið hald á. Málið hafi sætt rannsókn um nokkurra mánaða skeið, það sé umfangsmikið og þáttur einstakra sakborninga sé talinn mismunandi umfangsmikill og í einhverjum tilvikum talinn afmarkaður við einstakar sendingar.
[...]
Lögreglan hafi lagt hald á umrædd fíkniefni þann 21. júlí sl. en þau hafi reynst vera 7.694,98 g af amfetamíni. Framburður kærða sé í samræmi við annað sem fram sé komið í málinu og ekki séu efni til að ætla að kærði hafi gert meira úr sínum þætti en efni standi til. Kærði hafi verið handtekinn þann 17. september sl. og þann 18. s.m. hafi honum verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. úrskurð nr. [...]. Þann 8. október sl. hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt á sama grundvelli, sbr. úrskurð nr. [...]. Frá 22. október sl. hafi kærði sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna, sbr. úrskurði héraðsdóms í málum nr.: [...]. Þann 8. desember sl. hafi Hæstiréttur staðfest úrskurð héraðsdóms nr. [... ], sbr. mál réttarins nr. 483/2004.
[...]
Að mati lögreglu þyki kærði vera undir sterkum rökstuddum grun um að hafa framið brot sem geti varðað fangelsi allt að 12 árum, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga. Brot kærða þyki mjög alvarlegt en það lúti að innflutningi á miklu magni af amfetamíni. Þáttur kærða í brotunum sé mikill eins og að framan greini, [...]Verði þannig að telja áframhaldandi gæsluvarðhald nauðsynlegt.
Kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um að hafa framið brot sem kunni að varða allt að 12 ára fangelsi skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærði er grunaður um brot sem kann að varða allt að 12 ára fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a l. nr. 19/1940. Kærði var handtekinn þann 17. september sl. og hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan. Á gæsluvarðhaldstímabilinu hefur hann játað að hafa komið á sambandi á milli manna í því skyni að stuðla að innflutningi fíkniefna til landsins og jafnframt annast milligöngu um kaup á fíkniefnum. Telja verður að rökstuddur grunur sé kominn fram um að kærði hafi framið það brot sem um ræðir. Um verulegt magn hættulegra fíkniefna er að ræða en lögregla lagði hald á tæp átta kíló af amfetamíni við rannsókn málsins. Telja verður að aðild kærða að málinu sé slík að skilyrði séu fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. l. nr. 19/1991, sbr. og dóm Hæstaréttar í málinu nr. 483/2004. Er því fallist á framkomna kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi til föstudagsins 8. apríl 2005, kl. 16.00.