Hæstiréttur íslands

Mál nr. 382/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 10

 

Þriðjudaginn 10. október 2000.

Nr. 382/2000.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Hjalti Pálmason fulltrúi)

gegn

X

(Hallvarður Einvarðsson hrl.)

                                                   

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og C. liðir 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og c. liða 103. gr. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. október 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. október 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 3. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að sæta farbanni.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. október 2000.

Ár 2000, föstudaginn 6. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Eggerti Óskarssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.

       Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [...], gæslufanga á Litla Hrauni, verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi frá lokum þess gæsluvarðhalds sem hann nú sætir uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til föstudagsins 17. nóvember nk., kl. 16:00.

                [...]

Ákærði hefur játað við skýrslutökur hjá lögreglu að hafa framið 7 innbrot hér á landi á tímabilinu frá 7. júlí til 15. ágúst á þessu ári.  Heildarverðmæti þýfisins er áætlað um 25.000.000. kr. og hefur aðeins hluti þess komið í leitinar.  Þá liggur fyrir að ákærði hefur sent hluta þýfis úr landi til Rúmeníu.  Brot þau sem ákærða er gefið að sök varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og hefur ákæra verið gefin út á hendur honum.

Ákærði hefur villt á sér heimildir hér á landi, sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður undir röngu nafni og gengið hér undir þremur nöfnum utan síns rétta nafns.  Þá má einnig fallst á með lögreglu að ætla megi að ákærði muni reyna að komast úr landi ef hann fær nú frelsi sitt.  Þá gefur brotaferill hans hér á landi á þeim skamma tíma sem hann hefur dvalist hér ástæðu til að ætla að hann kunni að halda áfram brotum ef hann gengur laus.  Ekki er fallist á að úrræði svo sem farbann samkvæmt 110. gr. laga nr. 19/1991 séu fullnægjandi.

Með vísan til framangreinds og rannsóknargagna málsins er fallist á að skilyrðum um gæsluvarðhald ákærða samkvæmt og b- og c - liðum 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt.  Sé litið til þess að ákæra hefur nú verið gefnin út á hendur honum er ekki fallist á að nauðsynlegt sé að ákærði sitji í gæsluvarðhaldi jafn lengi og krafist er.  Fallist er á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að ákærði sæti gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til föstudagsins 3. nóvember nk. kl. 16:00 eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Ákærði, X, sæti gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til föstudagsins 3. nóvember 2000, kl. 16:00.