Hæstiréttur íslands

Nr. 2019-184

Bananar ehf. (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður)
gegn
íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Lykilorð

  • Áfrýjunarleyfi
  • Tollur
  • Stjórnarskrá
  • Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.

Með beiðni 27. maí 2019 leita Bananar ehf. eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 10. sama mánaðar í málinu nr. E-1509/2018: Bananar ehf. gegn íslenska ríkinu, á grundvelli 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Íslenska ríkið leggst ekki gegn beiðninni.

Leyfisbeiðandi höfðaði mál þetta til endurgreiðslu á fé sem hann hafði innt af hendi til gagnaðila á tilteknu tímabili vegna innflutnings á landbúnaðarvörum sem báru toll samkvæmt tollskrá og öðrum viðaukum við tollalög nr. 88/2005. Reisti hann kröfu sína á ákvæðum laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda og taldi að álagning þessara tolla hafi verið andstæð tilgreindum ákvæðum stjórnarskrárinnar. Héraðsdómur sýknaði gagnaðila af kröfu leyfisbeiðanda.

Í leyfisbeiðni eru engin rök færð fyrir því að þörf sé á að fá endanlega niðurstöðu Hæstaréttar í málinu með skjótum hætti, sbr. 1. mgr. 175. gr. laga nr. 91/1991. Þegar af þessari ástæðu er beiðninni hafnað.