Hæstiréttur íslands

Mál nr. 647/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                               

Föstudaginn 3. október 2014.

Nr. 647/2014.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stæði.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. október 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. október 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 6. október 2014 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur um gæsluvarðhald varnaraðila. Þá er staðfest sú niðurstaða úrskurðarins að varnaraðili sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008.

Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 2. október 2014.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 8. október nk. kl. 16.  Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kröfu sína byggir lögreglustjóri á a. lið 1. mgr. 95. gr.  og b. lið 1. mgr. 99. gr.  laga um meðferð sakamála nr. 88/2008

Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að fimmtudaginn 25. september sl. hafi lögreglan lagt hald á mikið magn af amfetamíni, um 438 grömm, við húsleit á heimili meðkærða, Y, að [...] í [...]. Farið hafi verið í húsleitina í kjölfar þess að meðkærði hafi verið handtekinn um kl. 21 í miðbæ [...] með tvær kúlur af amfetamíni sem vegið hafi samtals 30,84 grömm. Við húsleitina hafi einnig verið lagt hald á vog og svarta teiprúllu, sams konar teip og efnin sem meðkærði hafi verið með í miðbæ [...] hafi verið pökkuð inn í. Þá hafi verið lagt hald á 390.000 krónur sem hafi verið í umslagi í svefnherbergi og skrifblokk þar sem fram hafi komið upplýsingar sem virðist tengjast fíkniefnamisferli. Í ruslafötu í íbúðinni hafi verið mikið magn af saurmenguðum umbúðum, þ.e. einingum/kúlum sem hafi verið teipaðar með nokkrum litum. Einingarnar hafi verið nokkra sentímetra langar og var búið að skera þær til helminga. Í einingunum hafi verið efnisleifar og sami litur verið á efnisleifunum og á efninu í fæðubótadunknum.

Í skýrslutöku af meðkærða Y sem fram fór 26. september kvaðst hann hafa fengið greitt fyrir geyma efnin á heimili sínu.  Hann kvað aðila með símanúmerið [...] hafa hringt í sig og þeir hist, þar sem maðurinn afhendi honum peningagreiðslu. Kvaðst hann hafa sótt efnin seinnipart laugardags 20. september sl. til manns í [...], nánar tiltekið að [...].  Kvaðst hann ekki hafa átt að selja þau en hann hafi átt að afhenda þau. Varðandi fíkniefnin sem hann var með er lögregla handtók hann í miðbæ [...] kvaðst hann hafa ætlað að afhenda aðila þau sem hann vissi ekki hvað héti. Varðandi umbúðirnar sem fundust í ruslinu kvað hann þær ekki vera frá sér. Var Y úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til 3. október nk. m.t.t. rannsóknarhagsmuna.

Í bifreið Y hafi lögreglan fundið gulan minnsmiða þar sem búið hafi verið að rita tvö símanúmer og peningafjárhæð, auk textans “bottlangagata fyrir neðan”. Nú hafi komið í ljós að annað símanúmerið tilheyri aðila sem flutti efnin til landsins.  Hafi sá aðili verið handtekinn 29. september sl. og viðurkennt aðild sína að málinu, en hann kveðst hafa flutt efnin innvortis til landsins 18. september sl. Sætir hann nú gæsluvarðhaldi vegna málsins.  Hitt símanúmerið [...] hafi einnig verið ritað á miðann.  Þennan sama dag hafi lögreglan framkvæmt húsleit og lagt hald á síma með númerinu [...]. Hafi rétthafi símans verið handtekinn og sæti hann sömuleiðis gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Sá aðili sem hafi flutt efnin til landsins hafi greint frá því í lögregluskýrslu að hann hafi verið í Skype samskiptum við Íslending þegar hann hafi verið staddur í [...].  Sá aðili hafi leiðbeint honum hvar og hvenær hann ætti að hitta aðila sem afhenti honum hálft kíló af amfetamíni.  Hann kvaðst svo hafa sett sig aftur í samband við þennan Íslending í gegnum Skype þegar hann hafi verið kominn til landsins og efnin komin niður úr honum.  Þá hafi Y komið og sótt efnin og greitt honum. Hann kvaðst ekki vita hvað þessi maður heiti en að hann gangi undir nafninu A á Skype.

Við skoðun á símagögnum megi sjá að Y hafi haft símasamband við kærða X strax eftir að hann hafi móttekið ofangreind fíkniefni 20. september sl. Y hafi í skýrslutökum hjá lögreglu greint frá því að kærði X hafi beðið hann 25. september sl. um að koma ofangreindum 30. grömmum af amfetamíni til ónefnds manns í miðbæ [...] og að hann hafi verið í þeim erindagjörðum er hann hafi verið handtekinn í umrætt sinn.  Við skoðun á tölvu Y megi sjá að hann hafi 18. september sl. verið í skype sambandi við aðila að nafni A þar sem hann m.a. segr: „Sæll.  Ég reyndi að hringja í þig hérna áðan.  Ég er ekki með númerið þitt svo endilega sendu mér það hér svo ég geti haft sambandi við þig aftur síðar“ A svari:  „[...] hringi eftir svona 30 min Sjá megi síðan samskiptasögu milli þeirra með símtölum á Skype hinn 20.9.2014, 21.9.2014 og 23.9.2014.   Símanúmer kærða X sé [...].

Kærði er því undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnainnflutningi og sölu-og dreifingu fíkniefna. Rannsóknin málsins sé á frumstigi. Lögregla telji ljóst að fleiri aðilar tengist þessu máli og þurfi að hafa upp á þeim og taka af þeim skýrslur. Að mati lögreglu megi ætla að ef kærði verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að ræða við samverkamenn og hafa áhrif á framburð þeirra eða koma undan munum. Rannsókn málsins sé því á viðkvæmu stigi og sé afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina. Sakarefnið varði við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana-og fíkniefni og 173. gr. a. alm. hgl. en brot gegn því ákvæði varðar allt að 12 ára fangelsi.

Það sé því nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 8. október nk. kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.

Með vísan til þess sem nú hefur verið rakið, svo og rannsóknargagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á frumstigi. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og er krafa lögreglustjóra því tekin til greina þó þannig að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.  Jafnframt er fallist á að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 6. október nk. kl. 16:00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur.