Hæstiréttur íslands
Mál nr. 294/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 7. júní 2006. |
|
Nr. 294/2006. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Jón Magnússon hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. laga nr. 91/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júní 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. júlí 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á að fyrir hendi sé sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot, sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Um er að ræða skipulagða starfsemi sem lýtur að innflutningi á miklu magni fíkniefna og er brotið þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Ú r s k u r ð u r Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júní 2006.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. júlí 2006, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint stórfellt fíkniefnabrot. Lagt hafi verið hald á 15.227,90 g af amfetamíni og 10.283,05 g af hassi sem falin hafi verið í bifreið sem flutt hafi verið til landsins frá [...]í Hollandi. Fíkniefnin hafi fundist við leit tollgæslu þann 3. apríl sl. Bifreiðin hafi verið flutt inn á nafni meints vitorðsmanns kærða, Y. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni frá því fíkniefnin fundust og hafi hljóðupptökubúnaði og gerviefnum verið komið fyrir í bifreiðinni og símar grunaðra hlustaðir. Bifreiðin hafi verið tollafgreidd og sótt nokkrum dögum síðar og flutt á bifreiðastæði við heimili nefnds Y. Æ, Þ og X höfðu sótt bifreiðina á umrætt bifreiðastæði að kvöldi 13. apríl sl. Hafi þeir flutt bifreiðina í verkstæðishúsnæði við [...] en þeir hafi verið handteknir skömmu síðar. Aðkoma á vettvangi og hljóðritað samtal við bifreiðina í húsnæðinu bendi eindregið til þess að kærði og samferðamenn hans hafi verið að móttaka efnin með því að fjarlægja þau úr bifreiðinni.
Kærði neiti aðild að málinu að öðru leyti en því að hann kvaðst hafa haft vitneskju um að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. Kærði kvaðst hafa boðist til að aðstoða við að flytja bifreiðina og koma henni í verkstæðishúsnæðið á [...] sem hann hafði til umráða. Sé nánar vísað til framburðarskýrslna kærða frá 21. apríl sl. og 2. og 11. f.m. og 1. þ.m. Kærði hafi ekki viljað greina frá nöfnum eða meintum verknaðarþáttum annarra sem tengjast málinu. Framburður kærða þyki ótrúverðugur, hann þyki ekki vera í samræmi við framburð nefnds Þ, sbr. framburðarskýrslur hans frá 14., 19. og 28. apríl sl. og 10. f.m. og framburðarskýrslu Æ frá 3. og 15. f.m. Fyrir liggi að kærði og Æ þekkist frá fyrri tíð, kærði hafi sótti Æ á flugvöllinn sama dag og þeir voru handteknir, farangur Æ hafi fundist á heimili kærða en fram hafi komið í framburðarskýrslum Æ frá 3. og 15. f.m., að hann hafi komið hingað til lands gagngert í þeim tilgangi að sinna tilteknum erindrekstri hér á landi fyrir ónafngreinda sendendur fíkniefnanna.
Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 14. apríl sl., nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. 276/2006, þar sem rannsóknarhagsmunir voru lagðir til grundvallar. Rannsókn málsins sé ekki lokið en unnið sé að frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnslu. Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé að minnsta kosti talin tengjast móttöku fíkniefnanna hér á landi. Frekari rannsókn málsins kunni að leiða í ljós enn meiri aðild hans að málinu. Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna. Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið meinta brot kærða þyki þannig mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði og reikna megi með að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli ljúki með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu annarra sakborninga sem setið hafa gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sætt gæsluvarðhaldi fram að dómi þegar legið hafi fyrir sterkur rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi á miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Sé ekki ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 sé ekki fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. apríl sl. vegna rannsóknarhagsmuna. Samkvæmt rannsóknargögnum er rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að stórfelldu fíkniefnabroti sem varðað getur fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Brotin eru þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. júlí 2006, kl. 16:00.