Hæstiréttur íslands

Mál nr. 602/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


Föstudaginn 16

 

Föstudaginn 16. nóvember 2007.

Nr. 602/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Baldursson hdl.)

 

Kærumál. Farbann.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. nóvember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. nóvember 2007, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð för frá Íslandi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 20. desember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Ákæra á hendur varnaraðila var gefin út 13. nóvember 2007 þar sem honum eru gefin að sök ýmis þjófnaðar- og hylmingarbrot í félagi við aðra. Með vísan til þess er fallist á með sóknaraðila að uppfyllt séu skilyrði 110. gr., sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr., laga nr. 19/1991 fyrir farbanni varnaraðila og verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Dómsorð:

       Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. nóvember 2007.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu um að úrskurðað verði að X, kt. [...], verði bönnuð för frá Íslandi á meðan mál hans eru fyrir dómi, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 20. desember nk., kl. 16.00.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar rúmlega tuttugu þjófnaðarmál úr verslunum, þar sem í öllum tilvikum hafi verið um að ræða að stolið hafði verið á opnunartíma verslananna með kerfisbundnum hætti dýrum smávarningi. Um mánaðamót september/október vöknuðu grunsemdir um að hópur fólks, frá Litháen, sem hér dvelur, stæði að þjófnuðunum. Gerð hafi verið húsleit í íbúð á 3. hæð í Y, Reykjavík, 2. október sl. Í íbúðinni héldu til nokkrir Litháar, þar á meðal ákærði. Við húsleitina hafi verið lagt hald á mikið magn af munum, svo sem fatnað, snyrtivöru og ýmsan tæknibúnað. Í kjölfarið hafi ákærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fimmtudaginn 4. október sl. og í áframhaldandi gæsluvarðahald frá miðvikudeginum 10. október sl. til 19. október sl. en þann dag hafi ákærði verið úrskurðaður í farbann til 1. nóvember sl. sem var svo framlengt til dagsins í dag.

Í dag höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu opinbert mál á hendur ákærða, ásamt fimm öðrum litháískum ríkisborgurum.  Í ákæruskjali sé ákærða gefið að sök að hafa á tímabilinu 4. ágúst til 30. september framið í félagi sjö þjófnaðarbrot, að auki sé honum gefið að sök eitt hilmingarbrot.

Þá hafi lögreglan enn til rannsóknar þrjú mál þar sem ákærði sé sterklega grunaður um aðild.  Rannsókn þeirra mála sé vel á veg komin og má ætla að unnt verði að ljúka rannsókn þeirra á allra næstu dögum.

Við rannsókn mála ákærða hafi komið í ljós að hann hafi takmörkuð tengsl við landið.  Það sé því mat lögreglustjóra að nauðsynlegt sé að tryggja nærveru hans hér á landi til að hann geti ekki komið sér undan málsmeðferð fyrir dómi.  

Í ljósi framangreinds, hjálagðra gagna og þeirra sjónarmiða sem fram koma í b-lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að fallist verði á framkomna kröfu.

Því hefur verið slegið föstu með dómi Hæstaréttar Íslands frá 5. nóvember sl. að skilyrði hafi verið fyrir því að félagar kærða, sem nú hafa verið ákærðir í félagi við kærða fyrir fjölmörg auðgunarbrot, sættu farbanni á grundvelli 110. gr., sbr. b-lið 1.mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Kærði var einnig úrskurðaður í farbann á sínum tíma, en kærði ekki úrskurðinn til Hæstaréttar. Fulltrúi lögreglustjóra hefur lagt fyrir dóminn afrit af ákæru frá því í dag þar sem varnaraðili er ákærður fyrir brot er hafa verið grundvöllur að farbanni yfir honum.  Verður því talið að lögregla hafi hraðað svo sem kostur er meðferð mála varnaraðila. Ætti að vera unnt að ljúka málum varnaraðila fyrir 20. desember nk. Verður því fallist á beiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti farbanni svo sem greinir í úrskurðarorði.

Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kærða, X, kt. [...], er bönnuð för frá Íslandi á meðan mál hans eru fyrir dómi, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 20. desember nk., kl. 16.00.