Hæstiréttur íslands
Mál nr. 549/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 2. október 2009. |
|
Nr. 549/2009. |
Ákæruvaldið(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. september 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. september 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 14. október 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Ákæra á hendur varnaraðila var gefin út 1. október 2009.
Hinn kærði úrskurður verður staðfestur með vísan til forsendna hans.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. september 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 14. október 2009 kl. 16:00.
Lögregla segir að kærða hafi hinn 9. janúar sl. verið vísað úr landi og bönnuð endurkoma hingað næstu 5 ár. Útlendingastofnun hafi tekið þessa ákvörðun.
Kærði hafi af tilviljun fundist hér í gærdag. Fyrir dómi sagðist hann hafa dvalið hér síðan í apríl. Lögregla hefði leyft sér að koma inn í landið er hann hefði skýrt aðstæður sínar.
Með dvöl sinni hér er sennilegt að kærði hafi gerst brotlegur við útlendingalög nr. 96/2002. Varðar brot hans hugsanlega við a-lið 1. mgr. 57. gr., sbr. 4. mgr. 42. gr Verður fallist á það með lögreglu að nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhald til þess að tryggja nærveru hans þar til dómur fellur í máli hans, en ella sé hætt á að hann reyni að komast úr landi. Hugsanleg mistök einstakra löggæslumanna við að heimila honum komu hingað til lands breyta ekki stöðunni að þessu leyti. Fullyrðingar kærða um þetta efni eru ósannaðar.
Samkvæmt b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 verður kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til 14. október nk.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp dóminn.
Úrskurðarorð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 14. október 2009 kl. 16:00.