Hæstiréttur íslands
Mál nr. 521/2002
Lykilorð
- Kærumál
- Upplýsingaskylda
- Fjarskipti
|
|
Mánudaginn 2. desember 2002. |
|
Nr. 521/2002. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn Tali hf. (Ragnar Aðalsteinsson hrl.) |
Kærumál. Upplýsingaskylda. Fjarskipti.
T hf. var gert skylt að láta lögreglu í té upplýsingar um svokölluð IMEI númer þeirra símtækja, sem nánar tilgreind símanúmer hafa verið og verða notuð í á nánar tilgreindu tímabili, en jafnframt hvaða önnur símanúmer voru notuð í símtækjunum á umræddu tímabili og hverjir séu skráðir fyrir þeim.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. nóvember 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. nóvember 2002, þar sem varnaraðila var gert skylt að veita sóknaraðila upplýsingar um svokölluð IMEI númer þeirra símtækja, sem [...] nánar tilgreind símanúmer hafa verið og verða notuð í á tímabilinu frá 1. september 2002 til og með 8. desember sama árs, en jafnframt hvaða önnur símanúmer voru notuð í símtækjunum á umræddu tímabili og hverjir séu skráðir fyrir þeim. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og sér dæmdur kærumálskostnaður.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur
Eins og nánar greinir í hinum kærða úrskurði rannsakar sóknaraðili nú ætlaðan innflutning á miklu magni af fíkniefnum hingað til lands. Telji hann að sá, sem standi að innflutningi efnanna, sé notandi þeirra símanúmera, sem eru tilgreind í kröfu hans. Í málatilbúnaði sóknaraðila er meðal annars vísað til þess að ætluð brot hafi lengi verið í undirbúningi. Að því virtu má fallast á að rétt sé að verða við kröfu hans að því er varðar lengd þess tímabils, sem hann krefst upplýsinga um. Með þessari athugasemd verður hinn kærði úrskurður staðfestur með vísan til forsendna hans.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. nóvember 2002.
Ár 2002, föstudaginn 8. nóvember, er á dómþingi, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Sigurði H. Stefánssyni héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði úrskurði, að Landsímanum hf., Tali hf. og Íslandssíma hf., sé skylt að veita ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík (áfd) upplýsingar um IMEI númer þeirra símtækja sem símanúmerin [...] hafa verið og verða notuð í frá og með 1. september 2002 til og með 8. desember 2002, en jafnframt hvaða símanúmer hafa verið notuð í þeim símtækjum (Imei númerum) sem koma í ljós við framangreinda könnun, á sama tímabili, og hverjir eru rétthafar allra þeirra símanúmera sem koma í ljós við framangreindar athuganir.
[...]
Verið er að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og má ætla að ef þau sönnuðust, þá myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi sbr. 173.gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Á grundvelli framlagðra gagna þykir vera rökstuddur grunur um stóran þátt X í stórfelldum innflutningi fíkniefna til Íslands. Samkvæmt því og með vísun í 87. gr. sbr. b-lið 86. gr. laga nr. 19/1991 er fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík.
Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Landsímanum hf., Tali hf. og Íslandssíma hf., er skylt að veita ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík (áfd) upplýsingar um IMEI númer þeirra símtækja sem símanúmerin [...] hafa verið og verða notuð í frá og með 1. september 2002 til og með 8. desember 2002, en jafnframt hvaða símanúmer hafa verið notuð í þeim símtækjum (Imei númerum) sem koma í ljós við framangreinda könnun, á sama tímabili, og hverjir eru rétthafar allra þeirra símanúmera sem koma í ljós við framangreindar athuganir.