Hæstiréttur íslands
Mál nr. 740/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
- Útlendingur
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. nóvember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. nóvember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að vægari úrræðum verði beitt.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Krafa sóknaraðila um gæsluvarðhald yfir varnaraðila er reist á a. og b. liðum 1. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Með ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 30. október 2017 og 22. nóvember sama ár eru varnaraðila gefin að sök tiltekin brot, meðal annars gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Að því gættu er fullnægt skilyrðum b. liðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016 til þess að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er. Þegar af þeirri ástæðu verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur mánudaginn 27. nóvember 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að X, fæddum [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. desember 2017, kl. 16:00.
Í greinargerð sækjanda kemur fram að X hafi sótt um hæli á Íslandi í september 2015 og kvaðst heita þá X og vera frá Marokkó, m.a. komi fram í viðtali hans að hann kvaðst hafa setið í fangelsi í Marokkó í fimm mánuði vegna þátttöku sinnar í andspyrnuhreyfingu. X hafi staðfest nafn sitt í viðtalinu og við lögreglu. Búið sé að taka ákvörðun um hælisumsókn X og hafi honum verið synjað um vernd síðast með ákvörðun kærunefndar útlendingamála þann 26. janúar 2017. Unnið sé að því brottvísa X frá Íslandi. Embætti Ríkislögreglustjóra hafi í því skyni sent formlega beiðni til yfirvalda í Marokkó um að útbúa ferðaskilríki fyrir kærða og taka á móti honum og hafi sendiráð Íslands í Osló einnig komið að samskiptunum milli landanna. Þá hafi RLS ásamt sendiráði Íslands verið í stöðugum samskiptum við sendiráð Marokkó í Ósló, Noregi, og knúið á afgreiðslu beiðninnar sem sé enn í vinnslu. X hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 3. september sl. samfleytt til dagsins í dag með úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstiréttur hafi í tvígang staðfest úrskurði héraðsdóms með dómum nr. 595/2017 og 683/2017.
Lögregla hafi ítrekað haft afskipti af X undanfarna mánuði vegna m.a. hótana, ógnandi og annarlegrar hegðunar hans, ofbeldis og fíkniefnalagabrota. Í kjölfar þess hafi farið fram ógnarmat á X hjá embætti Ríkislögreglustjóra þar sem m.a. hafi verið óskað eftir upplýsingum frá erlendum löggæslustofnunum um X. Við gerð matsins hafi komið í ljós að X hafði birt mynd á facebook-síðu sinni þann 1. ágúst sl. tengda hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams og ritað Ísland undir myndina.
Einnig hafi komið í ljós að X hafi ekki gefið upp eftirnafn sitt við íslensk yfirvöld, eftirnafn hans mun vera X og hann því villt á sér heimildir með því að leyna eftirnafni sínu. X hafi gefið það upp við fyrirtöku fyrri gæsluvarðhalds að hann kysi að nota ekki ættarnafn sitt en útskýrir í engu hvers vegna hann hafi ekki gefið nafnið upp við lögreglu fyrr en um tveimur árum eftir hælisumsókn sína. Þá hafi einnig komið upplýsingar að utan að hann hefði gefið upp nokkur mismunandi nöfn og útgáfur af nafni sínu og annað fæðingarár, m.a. í Noregi, Belgíu, Hollandi og Frakklandi. Þá hafi upplýsingar fylgt frá alþjóðlegum löggæslustofnunum um að X hafi gerst sekur um þjófnaði í Noregi á árinu 2014, notað fölsuð ferðaskilríki í Hollandi, brotið útlendingalög í Frakklandi á árinu 2008 og sé hann skráður í málaskrá lögreglu í Marokkó fyrir ofbeldi og hótanir í garð foreldra sinna árið 2012. Niðurstaða ógnarmats RLS hafi verið að X væri brotamaður og fullt tilefni til að lögregla ynni í hans málum vegna ógnandi og undarlegs atferlis hans. Ríkislögreglustjóra hafi síðan borist nýjar upplýsingar sem hafi orðið til þess að ógnarmatið hafi verið uppfært þann 27. september sl. Kærði muni hafa meðan hann sætti gæsluvarðhaldi í september sýnt af sér ógnandi og niðrandi hegðun gagnvart bæði samföngum sínum og starfsmönnum. Kærði hafi sagst vera liðsmaður ISIS hryðjuverkasamtakanna og skrifað áróður tengdan samtökunum í klefa sínum, en RLS hafi ekki fengið upplýsingar sem staðfesta að kærði sé tengdur ISIS. Þá hafi kærði haft uppi hótanir og ógnandi hegðun gagnvart starfsmönnum, sem og almenningi. Kærði hafi lýst því yfir við fyrri fyrirtöku gæsluvarðhalds að hann kannist ekki við að hafa haft uppi slíkar hótanir eða aðra hegðun í gæsluvarðhaldinu og frekari rannsókn á því stendur ekki yfir að svo stöddu.
Lögreglustjóri hafi gefið út ákæru dagsetta 30. október sl. og hafi nú gefið út nýja ákæru þann 22. nóvember sl. vegna neðangreindra brota kærða. Næsta fyrirtaka málsins sé þann 29. nóvember nk.
,,[…]
Lögreglu barst tilkynning um kærða þar sem hann var nakinn og blóðugur og gengi berserksgang. Hafði kærði m.a. brotið topplúgu á bifreið og tekið um andlit manns, rifið af honum gleraugun og klínt blóði í fötin hans. Kærði kvaðst hafa neytt lyfja og reykt marihúana áður en þetta gerðist og því hafi hann ekki getað ráðið við sig og ekki geta útskýrt hegðun sína.
[…]
Kærði tekinn við að reykja marihúana. Efnin tekin af honum.
[…]
Starfsmaður hjá hælisteymi Reykjavíkurborgar tilkynnir um undarlega hegðun hælisleitanda og taldi hann vera í geðhvörfum. Hafði kærði þar brotið rúðu og viðurkenndi það þar sem verkamenn hafi verið að vinna í húsinu fyrr um daginn.
[…]
Starfsmaður hjá hælisteymi Reykjavíkurborgar tilkynnir um fíkniefnaneyslu kærða á heimili fyrir hælisleitendur á […]. Þá vildi starfsmaðurinn jafnframt leggja fram kæru á hendur kærða fyrir eignaspjöll, en kærði hafði eyðilagt fánastöng einhverjum dögum áður. Játaði kærði vörslur kannabisefna sem fundust á honum, sem og eignaspjöllin.
[…]
Starfsmaður í húsnæði fyrir hælisleitendur tilkynnir um kærða. Starfsmenn voru að vísa honum úr húsnæðinu en hann hafði einnig fíkniefni í vörslum sínum. Var hann að reykja marihúana þegar lögreglan kom á vettvang og kastaði frá sér poka með efnum í, sem lögreglan haldlagði.
[…]
Tilkynnt um mann á sölustað [...] í [...]. Var þar um kærða að ræða. Hafði hann beðið um að fá að fara á salerni en ekki fengið. Varð hann þá ósáttur og heimtaði að fá gaffal. Var honum einnig neitað um það og hótaði hann þá að eyðileggja posa á staðnum ef hann fengi ekki gaffal. Þegar honum var aftur neitað, reif hann í snúrur sem voru í posum í afgreiðslunni og eyðilagði tvo posa. Þá fór hann út og reif rúðuþurrku af bifreiðinni [...] sem stóð fyrir utan staðinn og fótspor voru á bifreiðinni. Er lögregla kom á staðinn var hann farinn af vettvangi, en fundu lögreglumenn hann í [...]. Sáu þeir hann ganga rakleiðis framhjá afgreiðslukössum verslunarinnar. Handtóku þeir hann, en við handtökuna datt svitalyktareyðir undan úlpu hans og vildi kærði meina að lögreglumenn hefðu komið þessu fyrir á honum. Við handtökuna spurði kærði lögreglumenn hvort þeir væru ekki vopnaðir byssum og hvort þeir gætu ekki skotið hann.
Önnur mál sem eru eða hafa verið til meðferðar og rannsóknar hjá lögreglu undanfarna mánuði eru eftirfarandi:
[…]
Tilkynnt um kærða þar sem hann var með óspektir í íbúð fyrir hælisleitendur. Hafði hann neytt mikils magns af áfengi og neytt maríhúana.
[…]
Þá var tilkynnt um mann með ólæti á samkomustaðnum [...]. Kærði var þar í annarlegu ástandi og æstur og gestir og starfsfólk [...] var hrætt við hann. Var hann handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar.
[…]
Starfsmaður hælissviðs tilkynnir um að kærði hafi sagt við sig: „Perhaps I need to get a gun and kill somebody to be able to get in jail, I want to be in jail". Þó var kærði yfirvegaður þegar hann lét þessi orð falla. Kærði hefur viðurkennt að hafa uppi þessi ummæli og kvaðst aðspurður ekki vita hvort að hann myndi gera það sem hann hótaði.
[…]
Sjúkrabíll fenginn til að aðstoða kærða, sem var með brjóstverk. Í sjúkrabílnum á leiðinni á slysadeild sýndi hann af sér afbrigðilega hegðun sökum vímuástands og ekki var hægt að sinna honum á slysadeild vegna þessa. Var hann vistaður í fangaklefa. Í fangaklefa neitaði hann að fá föt til að klæðast eða mat og drakk einungis eitt vatnsglas.“
Þá séu einnig bókanir í lögreglukerfinu frá 30. ágúst til 1. september sl. þar sem lögregla hafi ítrekað þurft að hafa afskipti af kærða vegna hegðunar hans, en hann hafi t.d. neitað að yfirgefa húsnæði [...], verið ógnandi við starfsfólk og gesti tjaldsvæðisins í [...] og hótað öryggisverði Securitas sem starfi í þjónustumiðstöð fyrir hælisleitendur líkamsmeiðingum. Þá hafi kærði einnig verið handtekinn fyrir þjófnað á rakspíra þann 5. október 2015 í máli nr. […].
Þann 1. september sl. Hafi verið tekin ákvörðun á grundvelli a. og b. liðar 114. gr. um að kærða yrði gert að sæta tilkynningarskyldu á lögreglustöð, en honum hafði áður verið vísað úr húsnæði á vegum Útlendingastofnunar og hafi því verið húsnæðislaus. Lögregla hafi þurft að hafa afskipti af kærða og handtaka hann vegna ástands og brota í tvígang þann 2. september sl. og þyki því ljóst að kærði lét ekki af hegðun sinni þrátt fyrir að reynt hafi verið að beita vægari úrræðum.
Að mati lögreglu séu skilyrði a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 uppfyllt enda liggur fyrir að X hafi villt á sér heimildir með því að fela eftirnafn sitt, þá hafi hann sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að hann ógni almannahagsmunum bæði með ofbeldishneigðri hegðun, ógnandi og annarlegri háttsemi sinni og ítrekuðum hótunum gagnvart starfsmönnum og almennum borgurum. Talið sé fullt tilefni til að taka hótanir hans alvarlega, sem og annarlega og ofbeldishegðun hans undanfarna mánuði, þar sem lögregla hafi margítrekað haft af honum afskipti. Ekkert lát virðist vera á ógnandi og hættulegri hegðun hans þrátt fyrir að hann hafi sætt gæsluvarðhaldi samkvæmt tilkynningum í september og því að mati lögreglu sé ekki unnt að beita vægari úrræðum en áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Vegna framangreinds sé að mati lögreglu nauðsynlegt að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en ekki verður talið að vægari ráðstafanir hafi eða nái ætluðum tilgangi til að vernda almannahagsmuni og koma í veg fyrir ofbeldishegðun, sem og sjálfskaðandi hegðun, með vísan til 2. mgr. 115. gr. sömu laga.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sé þess beðist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða
Samkvæmt gögnum málsins var ákærði upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald frá og með 3. september sl. og síðan aftur 18. september sl., 2. október sl. og síðast 30. október sl. til dagsins í dag á grundvelli a- og b-liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 með úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Tveir úrskurðir hafa verið kærðir til Hæstaréttar sem staðfest hefur báða úrskurðina, samanber mál nr. 595/2017 og 683/2017. Þá hafa tvær ákærur verið gefnar út á hendur ákærða, annars vegar 30. október sl. og hins vegar 22. nóvember sl. Næsta fyrirtaka málsins er 29. nóvember nk.
Krafa lögreglustjóra í máli þessu byggist á ákvæðum a- og b-liðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016, um útlendinga. Samkvæmt a-lið ákvæðisins má handtaka útlending og setja hann í gæsluvarðhald ef ekki liggur fyrir hver útlendingurinn er, útlendingurinn neitar að gefa upp hver hann er eða ef rökstuddur grunur er um að hann gefi rangar upplýsingar um hver hann er. Í b-lið sama ákvæðisins er að finna heimild til handtöku og gæsluvarðhalds ef útlendingur sýnir af sér hegðun sem gefur til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum.
Með vísan til greinargerðar lögreglu, gagna málsins og þess sem rakið hefur verið er fallist á það mat lögreglu að skilyrði a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 séu, uppfyllt. Þá er fallist á það mat lögreglu að nauðsynlegt sé að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en ekki verður talið með vísan til hegðunar ákærða sem rakin er í greinargerð lögreglu, að vægari ráðstafanir nái tilætluðum tilgangi til þess að vernda almannahagsmuni og koma í veg fyrir sjálfskaðandi hegðun, sbr. 2. mgr. 115. gr. sömu laga.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins og a. og b. liðar 115. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, er fallist á kröfu lögreglu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákærði, X, fæddur [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember, kl. 16:00.