Hæstiréttur íslands

Mál nr. 103/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


           

Föstudaginn 26. febrúar 2010.

Nr. 103/2010.

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Arnar Þór Stefánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. febrúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi „þar til dómur fellur í máli hans mánudaginn 8. mars 2010, kl. 15.00.“ Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að hann verði einungis látinn sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til mánudagsins 8. mars 2010 klukkan 15.

                                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. febrúar 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...],[...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans mánudaginn 8. mars 2010, kl. 15.00.

                Í greinargerð lögreglustjórans segir, að með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 29. desember 2009, hafi verið höfðað sakamál á hendur X og fleiri mönnum. Sé ákærðu gefið að sök mansal gagnvart stúlkunni A, 19 ára litháískum ríkisborgara, sem beitt hafi verið ólögmætri nauðung, frelsissviptingu og ótilhlýðilegri aðferð áður en og þegar hún var send til Íslands, sem og í meðförum ákærðu hér á landi, sem tóku við stúlkunni, fluttu hana og hýstu í því skyni að notfæra sér hana kynferðislega. Sé brot ákærðu aðallega heimfært til 1. tl. 1. mgr. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 5. gr. laga nr. 40/2003, en til vara við sama ákvæði, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga.

Þá kemur fram í greinargerð lögreglustjórans að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu málsins frá 18. október sl. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi rannsókn þess teygt anga sína víða. Liggi fyrir rökstuddur grunur um að ákærði tengist glæpasamtökum í Litháen, en ákærði sé ríkisborgari þar í landi. Vísist nánar um það til hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Telji greiningardeildin enn fremur að vitnum í málinu, þ. á m. brotaþola, stafi veruleg hætta af kærða verði hann látinn laus. Þá sé vísað til þess að ákærði sé erlendur ríkisborgari og þyki hætta vera á því að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn. Aðalmeðferð í máli ákærða sé lokið og sé farið fram á gæsluvarðhald þar til dómur gengur í málinu þann 8. mars nk.

Með vísan til framangreinds, gagna málsins, b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess beiðst að ofangreind krafa nái fram að ganga.

Af hálfu ákærða er kröfu um gæsluvarðhald mótmælt og þess krafist að henni verði hafnað.

Ákærði hefur samkvæmt framansögðu ásamt fleiri mönnum verið ákærður fyrir mansal gagnvart stúlkunni A, 19 ára litháískum ríkisborgara. Slíkt brot getur varðað allt að 8 ára fangelsi samkvæmt 1. mgr. 227. gr. a almennra hegningarlaga. Samkvæmt gögnum málsins er ákærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot það sem honum er gefið að sök. Ákærði er erlendur ríkisborgari og verður því að telja hættu á því að hann muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn áður en mál hans er til lykta leitt. Þá verður að líta til þess að í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra þar sem m. a. kemur fram að vitnum, þ. á m. brotaþola, stafi hætta af ákærða. Er á það  fallist að öðrum geti stafað veruleg hætta af ákærða verði hann látinn laus. Aðalmeðferð í málinu er lokið og hefur dómsuppkvaðning verið ákveðin mánudaginn 8. mars nk. Með vísan til alls framangreinds og b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjórans, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

                Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans mánudaginn 8. mars 2010, kl. 15.00.