Hæstiréttur íslands
Mál nr. 406/2009
Lykilorð
- Fjárdráttur
- Opinberir starfsmenn
- Skilorð
|
|
Mánudaginn 21. desember 2009. |
|
Nr. 406/2009. |
Ákæruvaldið(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Alfreð Atlasyni (Helgi Birgisson hrl.) |
Fjárdráttur. Opinberir starfsmenn. Skilorð.
A var sakfelldur fyrir fjárdrátt í opinberu starfi með því að hafa misnotað stöðu sína sem fjármálastjóri bæjarsjóðs G og dregið þremur félögum í sinni eigu, samtals 9.221.324 krónur, með því að millifæra fé af bankareikningum bæjarsjóðs á bankareikninga félaganna. Voru brot hans talin varða við 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. A játaði að hafa framið þau brot sem honum voru gefin að sök og taldist sök hans því sönnuð. Með vísan til þess að brot A, sem framið var í opinberu starfi, þar sem hann dró sér ríflega 9.200.000 krónur í fimm skipti á sjö mánaða tímabili þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. Fram kom að A hefði ekki áður sætt refsingu. Þá hefði hann ekki leynt broti sínu heldur játað það hreinskilningslega og endurgreitt það fé sem hann dró sér. Að þessu gættu voru sex mánuðir af refsingu A bundnir skilorði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 2. júlí 2009. Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafist að refsing ákærða verði þyngd.
Ákærði krefst staðfestingar héraðsdóms.
Með vísan til forsendna héraðsdóms og þess að brot ákærða, sem framið var í opinberu starfi, þar sem ákærði dró sér ríflega 9.200.000 krónur í fimm skipti á sjö mánaða tímabili þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Hann leyndi ekki broti sínu, hefur játað það hreinskilningslega og endurgreitt það fé sem hann dró sér. Að þessu gættu verður refsing hans bundin skilorði svo sem nánar greinir í dómsorði.
Ákærði verður dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað málsins eins og í dómsorði segir, en skipaður verjandi hans, Helgi Birgisson hæstaréttarlögmaður, fer ekki fram á málsvarnarlaun sér til handa.
Dómsorð:
Ákærði, Alfreð Atlason, sæti fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu sex mánaða af refsivistinni og sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði áfrýjunarkostnað málsins,15.464 krónur.
Dómur Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 24. júní 2009.
Mál þetta, sem tekið var til dóms 29. maí sl., er höfðað af ríkissaksóknara með útgáfu ákæru 22. apríl 2009 gegn Alfreð Atlasyni, kt. 010962-4479, Arnarsmára 20, Kópavogi, ,,fyrir fjárdrátt í opinberu starfi, með því að hafa misnotað stöðu sína sem fjármálastjóri bæjarsjóðs Garðabæjar og dregið eftirtöldum þremur félögum í sinni eigu eða aðila sér tengdum, samtals kr. 9.221.324, með því að millifæra fé af bankareikningum bæjarsjóðs á bankareikninga félaganna, eins og hér greinir:
1. Þann 27. desember 2007 millifært kr. 378.482 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
2. Þann 27. desember 2007 millifært kr. 324.841 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
3. Þann 24. janúar 2008 millifært kr. 725.837 af reikningi 0546-26-00001 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-15-200527.
4. Þann 27. maí 2008 millifært kr. 5.924.664 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins NEF, kennitala 520171-0109, númer 515-26-4479.
5. Þann 25. júlí 2008 millifært kr. 1.867.500 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning sameignarfélagsins Audit, kennitala 441001-3390, númer 1158-26-004410.
Telst þetta varða við 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 138. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði krefst vægustu refsingar.
Ákærði hefur skýlaust játað að hafa framið þau brot er honum eru gefin að sök og er játning hans studd sakargögnum í öllum atriðum. Sök hans telst því sönnuð og eru brotin rétt færð til refsiákvæðis í ákæru. Málið verður því dæmt samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar er þess að gæta að ákærði hefur verið sakfelldur fyrir að draga sér umtalsverða fjárhæð. Hann var opinber starfsmaður í skilningi 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ber að beita refsiþyngingarákvæði þeirrar lagagreinar. Á hinn bóginn verður litið til þess að ákærði gerði enga tilraun til að leyna fjárdrættinum. Þá hefur ákærði játað brot sitt hreinskilningslega og lét af starfi vegna þess. Hann endurgreiddi féð að öllu leyti skömmu eftir starfslok. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi en eftir atvikum þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af málinu.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Alfreð Atlason, sæti fangelsi í 6 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.