Hæstiréttur íslands

Mál nr. 55/2004


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 3

 

Þriðjudaginn 3. febrúar 2004.

Nr. 55/2004.

Sýslumaðurinn á Selfossi

(Ásta Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Jón Einar Jakobsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2004. Kærumálsgögn bárust réttinum 2. febrúar sama árs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 31. janúar 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. febrúar 2004. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 31. janúar 2004.

                Lögreglustjórinn á Selfossi hefur krafist þess X, nú í haldi lögreglunnar á Selfossi, verði á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. febrúar 2004, kl. 16:00.

          [...]

      Kærði er grunaður um íkveikju og fjársvik, sbr. 164. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og liggur fangelsisrefsing við brotunum ef sök sannast. Kærði hefur neitað sakargiftum. Rannsóknargögn þau sem fyrir liggja veita hins vegar sterka vísbendingu um aðild hans að málinu, þrátt fyrir skýringar hans á veru sinni á staðnum. Verður að fallast á það með fulltrúa lögreglustjóra að rökstuddur grunur sé fram kominn um að hann tengist meintum brotum. Almannahætta gat verið til staðar. Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er á byrjunarstigi, meint brot eru alvarleg og hætta er á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintum brotum og hann hefur tengsl við, þykja skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans á Selfossi um að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er.

Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

          Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. febrúar 2004, kl. 16:00.