Hæstiréttur íslands

Mál nr. 135/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Þriðjudaginn 25. febrúar 2014.

Nr. 135/2014.

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

X

(Óskar Sigurðsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. febrúar 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 23. febrúar 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 5. mars 2014 klukkan 13 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að sér verði ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 21. mars 2014, en það er sama krafa og hann gerði í héraði. Þessi kröfugerð er sóknaraðila heimil samkvæmt 4. mgr. 199. gr., sbr. 4. mgr. 195. gr. laga nr. 88/2008.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar er fallist á með héraðsdómi að fullnægt sé skilyrðum til að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til 5.  mars 2014 á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga. Samkvæmt þessu verður úrskurðurinn staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 23. febrúar 2014.

Lögreglustjórinn á Selfossi hefur gert þá kröfu að X, kennitala [...], til heimilis að [...], verði úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til klukkan 13:00 föstudaginn 21. mars 2014. Jafnframt gerir lögreglustjóri þá kröfu að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist stendur, sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

Kærði krefst þess að öllum kröfum lögreglustjóra verði hafnað. Til vara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður styttri tími.

Í greinargerð lögreglunnar á Selfossi kemur fram að klukkan 06:14 aðfaranótt 22. febrúar sl., hafi verið tilkynnt um eld á neðri hæð hússins nr. [...] við [...] á [...], en þar býr A, kennitala [...], barnsmóðir og fyrrverandi sambýliskona kærða, X, ásamt þriggja ára syni þeirra. Í greinargerð lögreglustjóra segir að fyrsta aðkoma á vettvang hafi bent til þess að um íkveikju væri að ræða og styðji frumrannsókn lögreglu og tæknideildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins þær grunsemdir.

Kærði hafi verið handtekinn framangreindan morgun grunaður um íkveikju að [...], en neitað sök við yfirheyrslu hjá lögreglu síðar um daginn. Segir í greinargerð lögreglustjóra að rannsókn málsins sé yfirgripsmikil, varði mjög alvarlegt sakarefni og sé skammt á veg kominn. Eftir sé að taka skýrslu af vitnum, staðreyna ferðir varnaraðila umrætt kvöld og framkvæma nauðsynlegar rannsóknaraðgerðir, m.a. á fatnaði kærða og leita sakargagna. Ætla megi að kærði geti torveldað rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brotið, skjóta undan munum, ellegar reyna að hafa áhrif á vitni.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að um langa hríð hafi mikið gengið á í samskiptum kærða og fyrrverandi sambýliskonu hans og barnsmóður. Til meðferðar hjá Héraðsdómi Suðurlands sé nú ákæra á hendur kærða fyrir ætluð brot gegn 217., 231. og 1. mgr. 257. gr. almennra hegningar nr. 19/1940, en undir rannsókn þess máls hafi kærði sætt nálgunarbanni í tvo mánuði á árinu 2012. Þá sé nú til rannsóknar hjá lögreglu kærur á hendur kærða fyrir líkamsárásir þann 16. janúar sl., m.a. gegn fyrrverandi sambýliskonu kærða. Í framhaldi af því máli hafi Héraðsdómur Suðurlands, þann 24. janúar sl., staðfest ákvörðun lögreglustjóra um tólf mánaða nálgunarbann kærða gagnvart konunni. Segir í greinargerð að kærði hafi ítrekað rofið umrætt nálgunarbann og eru tilgreind nokkur tilvik um smáskilaboð í gegnum síma frá kærða til konunnar sem og hótanir í hennar garð. Nánar tiltekið sé um að ræða tilvik 19., 22. og 23. janúar sl. og 6., 14. og 22. febrúar sl. Samtals séu nú til rannsóknar hjá lögreglu tólf mál þar sem kærði hafi stöðu sakbornings. Í greinargerð lögreglustjóra segir að með hliðsjón af háttsemi kærða að undanförnu telji lögregla að augljóst sé að kærði komi til með að halda áfram brotum sínum verði hann ekki látinn sæta gæsluvarðahaldi meðan málum hans sé ólokið í réttarvörslukerfinu.

Þá telur lögreglustjóri sýnt, með hliðsjón af háttsemi kærða gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni undanfarnar vikur, að raunveruleg hætta sé á að kærði vinni konunni mein. Svo virðist sem kærði virði í engu nálgunarbann það sem hann nú sætir. Þá virðist brotavilji hans og ásetningur til að valda konunni tjóni og miska vera skýr og einbeittur. Verði því ekki séð að nein önnur úrræði geti verndað hana fyrir árásum varnaraðila, eins og nú sé komið, annað en að svipta hann frelsi sínu.

Lögreglustjóri telur sakarefni varða við 164. gr., 217. gr., 218. gr. og 232. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds vísar lögreglustjóri til a., c. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

 Samkvæmt rannsóknargögnum hefur kærði játað flest þau brot önnur sem gerð er grein fyrir í greinargerð lögreglustjóra. Samkvæmt rannsóknargögnum er rannsókn þeirra mála langt komið eða lokið. Eins og þau mál liggja nú fyrir og með vísan til sakarferils kærða þykir ekki sýnt að ákærði verði dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar komi til sakfellingar, sbr. 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að íbúarnir á efri hæð hússins nr. [...] við [...] hafi verið í fasta svefni þegar eldurinn kom upp. Annar íbúinn hafi vaknað við sprengingu og í framhaldi af því fundið brunalykt, en gluggi á svefnherbergi þar sem viðkomandi svaf hafi verið opinn. Þá hafi eldtungu lagt út um svefnherbergisglugga á neðri hæðinni og náð upp að glugga á annarri hæð. Umrædd íbúð á neðri hæð hússins var mannlaus þegar að var komið og liggur fyrir í gögnum málsins að fyrrverandi sambýliskona kærða yfirgaf heimili sitt fyrr umrædda nótt í kjölfar þess að kærði setti sig í samband við hana, en barnið hafi dvalið hjá skyldfólki umrædda helgi. Við fyrirtöku kröfunnar fyrir dómi kom fram hjá lögreglustjóra að rannsóknargögn hafi ekki enn borist frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en rannsókn málsins bendi til þess að um íkveikju hafi verið að ræða og vísaði lögreglustjóri í því sambandi til sprengingar sem vitni búsett á efri hæð hússins vaknaði við og þess að upptök eldsins virðast vera á einum stað í íbúðinni eins og framlagðar myndir af vettvangi sýni. Lögreglustjóri vísaði til þess að framburður kærða um ferðir hans umrædda nótt stangist á við framburði vitna og þá bendi smáskilaboð í gegnum síma, sem kærði sendi vitni umrædda nótt áður en eldurinn kom upp, til þess að kærði tengist máli þessi. 

Rannsókn á bruna í húsinu nr. [...] við [...] er á frumstigi.  Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn málsins bera með sér, er fallist á að kærði sé undir rökstuddum grun um meinta íkveikju. Til rannsóknar er ætlað brot gegn 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem fangelsisrefsing liggur við. Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á að skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé uppfyllt, þannig að ætla megi að kærði muni torvelda rannsókn máls þessa gangi hann laus, svo sem með því að afnám merki eftir brot, skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni. Gæsluvarðhaldstími þykir hæfilegur eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Þá verður fallist á kröfu lögreglustjóra á grundvelli b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, allt eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ragnheiður Thorlacius héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, kennitala [...], skal sæta gæsluvarðhaldi þó ekki lengur en til miðvikudagsins 5. mars 2014, klukkan 13:00. Kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.