Hæstiréttur íslands
Mál nr. 797/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. desember 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. desember 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember 2017 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 12. desember 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 22. desember nk. kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Kærði sé einn af tveimur eigendum fyrirtækisins A ehf. sem reki [...] staðsettar að [...]. Lögreglan hafi við rannsókn sína aflað upplýsinga og gagna þess efnis að verslunin hafi verið stofnuð fyrir fjármuni sem voru ágóði af brotastarfsemi kærða og meðeiganda hans Y, en hann sé búsettur í [...]. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleiri aðilum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna.
Fyrir liggi að við upphaf stofnunar verslunarinnar þá hafi verið millifærðar inn á fyrirtækið B ehf., sem hafi einnig verið í eigu kærða og Y, samtals 28 milljónir, en hluti af þeim peningum hafi verið greiddur með reiðufé inn í fyrirtækið. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd.
Við rannsókn málsins hafi lögreglu borist upplýsingar þess efnis að kærði standi að innflutningi á fíkniefnum hingað til lands, n.t.t. innflutningi á amfetamínvökva sem fluttur hafi verið vel falinn í bifreiðum sem komið hafi með ferjunni Norrænu. Það liggi fyrir að lögreglan hér á landi hafi síðastliðna mánuði fundið og lagt hald á amfetamínvökva sem hafi fundist vel falinn i bifreiðum einstaklinga sem komið hafi hingað til lands með ferjunni Norrænu. Um sé að ræða [...] einstaklinga og sé talið að þeir tengist þeim hópi sem rannsókn lögreglu hafi beinst að hér á landi, sem og í Póllandi.
Til viðbótar rannsókn lögreglu þá hafi pólsk lögregluyfirvöld haft til rannsóknar mál er varði skipulagða brotastarfsemi og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins. Í máli pólsku lögreglunnar sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti þar sem kærði hafi á skipulegan hátt með öðrum aðilum komið að inn- og útflutningi á ótilgreindu magni af fíkniefnum frá Póllandi til Íslands og Bretlands. Telji pólska lögreglan að kærði hafi hagnast um hundruð milljóna króna á þess konar ólöglegum viðskiptaháttum. Hafi pólsk yfirvöld gefið út evrópska handtökuskipun á hendur kærða vegna þessa máls og óskað eftir því formlega við íslensk lögregluyfirvöld að kærði verði handtekinn hér á landi.
Í greinargerðinni kemur fram að nánar sé vísað í fyrirliggjandi gögn hvað varði rökstuðning lögreglu með kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hafi aflað sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem og peningaþvætti. Kærði hafi verið handtekinn fyrr í dag og leit framkvæmd á heimili hans og í verslunum A sem og hjá öðrum sakborningum. Við leitirnar hafi verið lagt hald á mikið magn af gögnum, símum, tölvum, bókhald félagsins ofl. og sé ljóst að lögregla þurfi nú að fara yfir haldlögð gögn og sé mjög mikilvægt að lögreglan fái tækifæri til að bera gögnin undir kærða sjálfstætt á meðan hann sæti gæsluvarðhaldi. Talsvert reiðufé, sem nemi andvirði nokkurra milljóna króna, hafi fundist á heimili kærða og annarra sakborninga. Telji lögregla brýna nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi, í einangrun, á þessu stigi máls þar sem ljóst sé að ef kærði gengur laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn, eða þeir sett sig í samband við hann, sem og möguleg vitni. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögreglu hafi ekki tekist að leggja hald á nú þegar.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Niðurstaða
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar um nokkurt skeið mál er varði skipulagða brotastarfsemi sem tengist innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn lögreglu hafi verið unnin í samstarfi við pólsk og hollensk yfirvöld. Rannsókn lögreglu hafi beinst að fyrirtækinu A ehf. og aðilum er tengist því. Kærði sé einn af tveimur eigendum fyrirtækisins A ehf. sem reki [...] staðsettar að [...]. Lögreglan hafi við rannsókn sína aflað upplýsinga og gagna þess efnis að verslunin hafi verið stofnuð fyrir fjármuni sem voru ágóði af brotastarfsemi kærða og meðeiganda hans Y, en hann sé búsettur í [...]. Lögreglu hafi ítrekað borist upplýsingar þess efnis að kærði, ásamt fleiri aðilum, standi að reglulegum fíkniefnasendingum hingað til lands og að fyrirtækið A sé notað til að þvætta ólögmætan ávinning af brotastarfsemi, m.a. sölu fíkniefna.
Fyrir liggi að við stofnun verslunarinnar hafi verið millifærðar inn á fyrirtækið B ehf., sem hafi einnig verið í eigu X og Y, samtals 28 milljónir, en hluti af þeim peningum hafi verið greiddur með reiðufé inn í fyrirtækið. Peningarnir hafi svo verið millifærðir yfir á A ehf. og tilgreint að um lán væri að ræða í bókhaldi fyrirtækjanna en hvergi sé að sjá í gögnum málsins að lánin hafi verið endurgreidd.
Við rannsókn málsins hafi lögreglu borist upplýsingar þess efnis að kærði standi að innflutningi á fíkniefnum hingað til lands, n.t.t. innflutningi á amfetamínvökva sem fluttur hafi verið vel falinn í bifreiðum sem komið hafi með ferjunni Norrænu. Það liggi fyrir að lögreglan hér á landi hafi síðastliðna mánuði fundið og lagt hald á amfetamínvökva sem hafi fundist vel falinn i bifreiðum einstaklinga sem komið hafi hingað til lands með ferjunni Norrænu. Til viðbótar rannsókn lögreglu þá hafi pólsk lögregluyfirvöld haft til rannsóknar mál er varði skipulagða brotastarfsemi og hafi þau formlega óskað eftir aðstoð lögreglu hér á landi við rannsókn málsins. Í máli pólsku lögreglunnar sé kærði undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti þar sem kærði hafi á skipulegan hátt með öðrum aðilum komið að inn- og útflutningi á ótilgreindu magni af fíkniefnum frá Póllandi til Íslands og Bretlands. Telji pólska lögreglan að kærði hafi hagnast um hundruð milljóna króna á þess konar ólöglegum viðskiptaháttum. Hafi pólsk yfirvöld gefið út evrópska handtökuskipun á hendur kærða vegna þessa máls og óskað eftir því formlega við íslensk lögregluyfirvöld að kærði verði handtekinn hér á landi.
Kærði var handtekinn var handtekinn fyrr í dag og leit framkvæmd á heimili hans og í verslunum A ehf. sem og hjá öðrum sakborningum. Við leitirnar hafi verið lagt hald á mikið magn af gögnum, símum, tölvum, bókhald félagsins ofl. og talsvert reiðufé, sem nemi andvirði nokkurra milljóna króna. Ljóst sé að lögregla þurfi nú að fara yfir haldlögð gögn og sé mjög mikilvægt að lögreglan fái tækifæri til að bera gögnin undir kærða sjálfstætt á meðan hann sæti gæsluvarðhaldi.
Fallist er á það með lögreglu að kærði sé í ljósi ofangreinds og þeirra gagna sem lögreglan hefur aflað sér að kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti sem og peningaþvætti. Ætluð brot kærða eru talin varða við 175. gr. a, 173. gr. a og 264.gr. almennra hegningarlaga og geta varðað allt að 6 ára fangelsi og eftir atvikum 12 ára fangelsi.
Þá er fallist á að brýna nauðsyn beri til að kærði sæti gæsluvarðhaldi í einangrun á þessu stigi máls þar sem kærði gæti sett sig í samband við meinta samverkamenn eða þeir haft samband við hann, og möguleg einnig vitni. Þá er nauðsynlegt að tryggja kærði nái ekki að spilla eða koma undan gögnum er lögreglu hefur ekki þegar tekist að leggja hald á nú þegar.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, alvarleika málsins og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála er fallist á að krafan skuli ná fram að ganga eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Dómari fellst ekki á með verjanda að vægari úrræði komi til greina í máli þessu, svo sem farbann. Þá eru ekki á þessu stigi efni til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma þar sem með hliðsjón af atvikum öllum, gögnum málsins og því sem rakið hefur verið, bendir allt til að rannsókn verði umfangsmikil og teygi sig til annarra landa. Um heimild til einangrunar meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til 2. mgr. 98. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga en eins og rakið hefur verið krefjast brýnir rannsóknarhagsmunir þess að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Þórður Clausen Þórðarson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. desember 2017, kl. 16:00. Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.