Hæstiréttur íslands

Mál nr. 536/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 20

 

Þriðjudaginn 20. desember 2005.

Nr. 536/2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri)

gegn

X

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála  var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. desember 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. desember 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. desember 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að hann verði látinn sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms  Reykjavíkur 18.  desember 2005.

Lögreglustjórinn  í  Reykjavík  hefur  krafist  þess    X,  [kt. og heimilisfang],  verði  með  vísan  til  a-liðar  1.  mgr.  103.  gr.  laga  um  meðferð  opinberra  mála  nr.  19/1991  gert    sæta  gæsluvarðhaldi  til  föstudagsins  23.  desember  2005  kl.  16.00.   

Í  greinargerð  rannsóknara  kemur  fram    ávana-  og  fíkniefnadeild  rannsakar  meint  fíkniefnabrot  kærða  sem  varðar  innflutning  á  miklu  magni  fíkniefna  til  landsins  falið  í  bifreið  sem  kærði  flutti  með  sér  til  landsins  þann  13.  þ.m.  frá  Danmörku  með  ferjunni  Norrænu  um  Seyðisfjörð.  Lögreglan  hafi  lagt  hald  á  fíkniefni    kvöldi  15.  þ.m.  sem  talið      hafi  verið  flutt  til  landsins  í  bifreiðinni.    Kærði  hafi  verið  handtekinn  í  gær  kl.  16.12  á  Keflavíkurflugvelli.  Kærði  neiti  allri  aðild    innflutningi  fíkniefna  og  hafi  greint  frá  því    hann  hafi  ekki  haft  vitneskju  um    fíkniefni  væru  falin  í  bifreiðinni.  Á  þessu  stigi  rannsóknarinnar  þurfi    yfirheyra  kærða  frekar  og  fleiri  einstaklinga,  þ.m.t.  nefndan  B,  sem  málinu  kunna    tengjast  eða  veitt  geta  upplýsingar  við  rannsóknina  auk  annarra  einstaklinga  sem  kunna    tengjast  málinu  en  ekki    vitað  hverjir  séu  á  þessu  stigi  rannsóknarinnar.    Einnig  kunni  meira  magn  fíkniefna    hafa  verið  flutt  til  landsins  í  umræddri  sendingu  sem  ekki  hafi  ennþá  fundist.    Þykir  þannig  brýnt    vernda  rannsóknar­hagmuni  á  þessu  stigi  málsins.  Þá  liggi  fyrir    kærði    búsettur  í  Danmörku  og  dvöl  hans  hér  á  landi    aðeins  miðuð  við  stuttan  tíma  og  dvalarstaður  hans    á  [...]  á  meðan  dvöl  hans  varir.    mati  lögreglu    þannig  gera  ráð  fyrir    fengi  kærði  fullt  frelsi  myndi  hann  reyna    koma  sér  undan  frekari  rannsókn. 

Rannsóknar  vísar  til  þess    sakarefnið    talið  geta  varðað  við  173.  gr.  a.  almennra  hegningarlaga  nr.  19/1940.    Um  heimild  til  gæsluvarðhalds    vísað  til  a-  og  b-liða  1.  mgr.  103.  gr.  laga  um  meðferð  opinberra  mála  nr.  19/1991.

Kærði hefur mótmælt kröfu rannsóknara.  Hann vísara til þess að ekki sé neitt fram komið um að hann hafi flutt inn þau fíkniefni sem lögreglan lagði hald á 15. desember sl.  Telur hann því ekki rökstuddan grun fyrir liggja um aðild hans að þessum innflutningi.  Þá telur hann í öllu falli að nægilegt sé að hann verði látinn sæta farbanni.

Í máli þessu liggur fyrir að kærði hefur játað að hafa komið til landsins með bifreið sem rökstuddur grunur liggur fyrir um að í hafi verið fólgið verulegt magn fíkniefna. Að mati dómara er því  fram kominn  rökstuddur  grunur  um    kærði  hafi  framið  verknað  sem  fangelsisrefsins  er  lögð  við.  Með  hliðsjón  af  rannsóknarstöðu  málsins  fellst  dómari  á    brýnt      koma  í  veg  fyrir    kærði  hafi  samband  við  samverkamenn  sína  eða  hugsanleg  vitni. Er  því  skilyrði  a-liðs  1.  mgr.  103.  gr.  laga  nr.  19/1991  fullnægt  fyrir  gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhaldstíma er stillt í kröfu rannsóknara. Verður því fallist á kröfuna eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskarorði.

Skúli  Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð

Kærði,  X,  skal  sæta  gæsluvarðhaldi  til  föstudagsins  23.  desember  2005  kl.  16.00.