Hæstiréttur íslands

Mál nr. 336/2003


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 26

 

Þriðjudaginn 26. ágúst 2003.

Nr. 336/2003.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Böðvar Bragason lögreglustjóri)

gegn

X

(Kristján Stefánsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. ágúst 2003. Kærumálsgögn bárust réttinum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2003, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 26. september 2003. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Í greinargerð sóknaraðila til Hæstaréttar kemur fram að brot þau, sem varnaraðili er grunaðar um og gerð er grein fyrir í úrskurði héraðsdóms, séu enn á rannsóknarstigi. Þrátt fyrir þetta er ekki gerð krafa um að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi með vísan til a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Varnaraðili hefur neitað aðild að mörgum þessara brota. Hins vegar ber til þess að líta að tekist hefur að tengja muni, sem fundust við húsleit að Q, sem mun vera dvalarstaður varnaraðila samkvæmt skýrslum vitna, við flest þeirra. Þá eru umrædd brot framin á skömmum tíma. Samkvæmt sakavottorði varnaraðila var hann 13. febrúar 2003 dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex mánaða fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár fyrir nytjastuld. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

            

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2003.

Árið 2003, föstudaginn 22. ágúst, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Páli Þorsteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, með lögheimili að Ö, en dvalarstað að Q, verði á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi frá lokum þess gæslu­varðhalds sem hann nú sætir, en lýkur í dag kl. 16:00, uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til 26. september 2003, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að þann 15. ágúst sl. hafi kærði verið úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur til að sæta gæsluvarðhaldi til kl. 16:00 í dag á grundvelli a-liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 að kröfu lögreglustjórans í Reykjavík. Aðdragandi þeirrar kröfu hafi verið að kærði hafi verið grunaður um aðild, ásamt Y og Z, að fjölda innbrotsmála og þjófnaða. Húsleit hafi verið gerð að Q þann 15. ágúst sl., sem sé heimili Z og að sögn vitna einnig heimili kærða. Við þá leit hafi fundist töluvert af þýfi [...]. Lögregla hafi náð að tengja marga af hinum haldlögðu munum við brot.  Um sé að ræða ýmis þjófnaðarbrot, innbrot og fjársvik framin á undanförnum dögum og vikum. Málin séu öll á rannsóknarstigi og kærði hafi játað aðild sína að nokkrum málanna.

                [...]

Þá kveðst lögregla hafa grun um að kærði tengist fleiri afbrotum.  Ljóst sé af framangreindu að kærði hafi síðustu mánuði verið í fjöldamörgum afbrotum og í mikilli neyslu fíkniefna. Þess megi geta að við húsleit að Q hafi einnig verið lagt hald á um 16 grömm af amfetamíni og rúmt gramm af kókaíni.  Þann [...] febrúar sl. hafi kærði hlotið dóm fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem hann hafi verið dæmdur í sex mánaða fangelsi en refsingin verið skilorðsbundin til þriggja ára.  Hann hafi því rofið skilorð fyrrgreinds dóms með brotum sínum.

Áréttað er að stöðva beri og verði þennan afbrotaferil kærða.  Af framansögðu verði ekki annað talið en að yfirgnæfandi líkur séu á að hann haldi áfram brota­starfsemi sinni fari hann frjáls ferða sinna og því sé nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi.  Að mati lögreglunnar séu því miklir hagsmunir af því að orðið verði við kröfu hennar svo koma megi í veg fyrir frekari afbrot og lögreglu og ákæruvaldi verði unnt að ljúka málum hans.  Stefnt sé að því að gefa út ákæru á hendur kærða á fyrirhuguðum gæsluvarðhaldstíma vegna þeirra afbrota sem hann hafi framið og séu til meðferðar hjá lögreglu.

Lögreglan kveður kærða vera grunaðan um brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 svo og brot gegn 248. gr. sömu laga.  Með vísan til alls framanritaðs, framlagðra gagna og loks með vísan til c-liðar 1. mgr. 103. gr., laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að krafan verði tekin til greina eins og hún sé fram sett.

 

Lögreglan í Reykjavík hefur nú til rannsóknar mörg innbrots- og þjófnaðarmál sem framin hafa verið með stuttu millibili á undanförnum dögum. Samkvæmt gögnum máls er rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að þeim málum þrátt fyrir neitun kærða þar um. Með vísan til framanritaðs og rannsóknar­gagna málsins má ætla að kærði muni halda áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið.  Er því fallist á að skilyrðum um gæsluvarðhald kærða samkvæmt c-lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt.  Krafa lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi verður tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ú r s k u r ð a r o r ð

Kærði, X sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstu­­dagsins 26. september 2003, kl. 14.00.

                                                                                Páll Þorsteinsson.