Hæstiréttur íslands
Mál nr. 85/2003
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
Þriðjudaginn 11. mars 2003.
Nr. 85/2003. Lögreglustjórinn í Reykjavík
(Egill Stephensen saksóknari)
gegn
X
(Hilmar Ingimundarson hrl.)
Kærumál. Gæsluvarðhald. B liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. mars 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. mars 2003, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 16. apríl nk. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi, ef til þess kemur, verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Samkvæmt gögnum málsins er varnaraðili þýskur ríkisborgari og hefur verið búsettur í Þýskalandi. Í málatilbúnaði sóknaraðila kemur meðal annars fram að rannsókn hafi áður beinst að varnaraðila vegna fíkniefnabrota, en hann hafi farið af landi brott áður en tókst að birta honum ákærur í þeim málum. Ekki hafi verið unnt að fá hann framseldan hingað, því þýsk lög banni framsal þarlendra ríkisborgara. Hann hafi síðan verið handtekinn í Hollandi á síðasta ári og framseldur til Íslands 3. janúar sl. Með vísan til þessa má ætla að varnaraðili muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér á annan hátt undan málsókn eða fullnustu refsingar. Er því fullnægt skilyrðum til að beita gæsluvarðhaldi yfir varnaraðila á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, en ekki verður fallist á að farbann geti hér komið í stað gæsluvarðhalds. Þegar af þessum ástæðum verður niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. mars 2003.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess með vísan til b-liðar 1.mgr og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan máli hans er ekki lokið, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 16. apríl 2003 klukkan 16.00.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram [...]
Með vísan til fyrirliggjandi gagna og greinargerðar þykir kærði vera undir sterkum grun um þátttöku í stórfelldu broti sem varðað getur hann allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173.gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 .
Að mati dómsins eru brot kærða þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Auk þess liggur fyrir að kærði hefur áður reynt að komast undan réttvísinni en hann fór úr landi eftir að ákærur vegna fíkniefnabrota höfðu verið gefnar út á hendur honum á árinu 2000. Má því ætla að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér á annan hátt undan málsókn eða fullnustu refsingar. Verður því ekki fallist á að farbann geti komið hér í stað gæsluvarðhalds.
Með vísan til framangreinds eru því uppfyllt skilyrði b-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála fyrir gæsluvarðhaldi yfir kærða. Verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 16. apríl 2003 klukkan 16.00.