Hæstiréttur íslands

Mál nr. 227/2004


Lykilorð

  • Málskostnaðartrygging
  • Frávísun frá Hæstarétti


Miðvikudaginn 3

 

Miðvikudaginn 3. nóvember 2004.

Nr. 227/2004.

Erik Jensen

(Steingrímur Þormóðsson hrl.)

gegn

Kaupþingi Búnaðarbanka hf.

(Kristinn Hallgrímsson hrl.)

 

Málskostnaðartrygging. Frávísun máls frá Hæstarétti.

Máli E gegn K hf. var vísað frá Hæstarétti þar sem málskostnaðartrygging var ekki afhent innan frests sem E hafði til að afhenda trygginguna.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 1. júní 2004. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.

Stefndi lagði fram í Hæstarétti greinargerð 10. ágúst 2004, þar sem hann krafðist staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar hér fyrir dómi.

Með bréfi 14. júlí 2004 krafðist stefndi þess með vísan til b. liðar 1. mgr. 133. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 166. gr. sömu laga, svo sem henni var breytt með 20. gr. laga nr. 38/1994, að áfrýjanda yrði gert að setja tryggingu fyrir greiðslu málskostnaðar fyrir Hæstarétti. Fallist var á þá kröfu með ákvörðun réttarins 14. október 2004. Var fjárhæð málskostnaðartryggingar ákveðin 200.000 krónur og áfrýjanda veittur tveggja vikna frestur til að afhenda skilríki fyrir henni. Slík skilríki hafa ekki verið afhent í samræmi við ákvörðun réttarins.

Af þeim ástæðum, sem að framan greinir, og með skírskotun til 3. mgr. 133. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 166. gr. sömu laga, svo sem henni var breytt með 20. gr. laga nr. 38/1994, verður málinu vísað sjálfkrafa frá Hæstarétti.

Áfrýjandi verður dæmdur til að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.

Áfrýjandi, Erik Jensen, greiði stefnda, Kaupþingi Búnaðarbanka hf., 150.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.