Hæstiréttur íslands

Mál nr. 419/2013


Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Málskostnaður


Dómsatkvæði

                                     

Fimmtudaginn 21. nóvember 2013.

Nr. 419/2013.

Þrotabú Baugs Group hf.

(Heiðar Ásberg Atlason hrl.)

gegn

Banque Havilland S.A.

(Jóhannes Bjarni Björnsson hrl.)

Niðurfelling máls. Málskostnaður.

Mál þrotabús BG hf. gegn B var fellt niður fyrir Hæstarétti að kröfu þess fyrrnefnda en félagið dæmt til greiðslu málskostnaðar að kröfu B.

Dómur Hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Benedikt Bogason og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. júní 2013. Með bréfi til réttarins 4. nóvember sama ár tilkynnti áfrýjandi að hann félli frá áfrýjun málsins. Af hálfu stefnda var með bréfi 11. sama mánaðar gerð krafa um málskostnað fyrir Hæstarétti.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður málið fellt niður fyrir Hæstarétti.

Samkvæmt 2. mgr. 130. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 verður áfrýjandi dæmdur til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti svo sem segir í dómsorði.

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Áfrýjandi, þrotabú Baugs Group hf., greiði stefnda, Banque Havilland S.A., 800.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.